Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 72
56 Menning Helgarblað 25.–29. júní 2015 Ferðalag um skynfærin Listaverk fyrir eyru, nef, húð og augu á norræna samtímalistartvíæringnum N orræni tvíæringurinn í sam- tímamyndlist, Momentum 8, var opnaður fyrr í mánuðinum í iðnaðar- borginni Moss í nágrenni Óslóar í Noregi og stendur yfir fram í september. Tuttugu og átta lista- menn víða að úr heiminum taka þátt í tvíæringnum, þar af fjórir frá Ís- landi: Bjarni H. Þórarinsson, Steina (Steina Vasulka), Steingrímur Ey- fjörð og Hrafnhildur Arnardóttir aka Shoplifter, en þau tvö síðastnefndu hafa skapað ný verk sérstaklega fyrir sýninguna. Birta Guðjónsdóttir, einn fjögurra sýningarstóra sýningarinn- ar, ræddi við DV um Momentum. „Tvíæringurinn hefur færst frá því að vera með sérstaka áherslu á Norður lönd yfir í það að vera alþjóð- legur tvíæringur, sem á sér stað á Norðurlöndunum,“ segir Birta. Hún segir að sýningarstjórateymið hafi hugsað um hvernig listtvíæringur- inn hefur mótast sem ákveðið form, eða stofnun, í listheiminum. „Okkur langaði að nýta þá sérstöðu forms- ins sem vettvangs til sköpunar nýrra verka. Vel rúmur helmingur verk- anna er þannig sérstaklega gerð- ur fyrir sýninguna. Við vildum nota tækifærið til nýsköpunar, en með því tekur maður áhættu – því maður veit ekki alveg hver lokaútkoman verður.“ Sjónsviðið þrengt Yfirskrift tvíæringsins í ár er rörsýni, (e. tunnel vision), en orðið er upp- haflega notað yfir sefasýkis fyrirbæri sem lýsir sér þannig að sjónsvið einstaklings þrengist og eyðir út jaðarsvæðum sjónarinnar líkt og horft sé í gegnum rör. Það er þó ekki einungis né fyrst og fremst hið læknisfræðilega ástand sem er til umræðu heldur einnig rör- sýni hins intervædda samtíma: „Við verðum fyrir óhemju miklu áreiti upplýsinga í samfélaginu í dag. Við fórum að velta því fyrir okkur hvernig við vinnum úr þessu í samtímanum, hvaða áhrif upplýsingaflæðið hefur á mann og hvaða aðferðum maður beitir til að takast á við það. Við vís- um til dæmis í skrif Eli Pariser um hið svokallaða „you-loop“ sem er hug- tak yfir það hvernig maður fær að- eins svörun sem byggir á manns eig- in áhuga, fyrri leit, þegar maður leitar upplýsinga. Google- leitarniðurstöður verða þrengri og þrengri og byggja á áhugasviði þess sem leitar.“ „Við veltum líka fyrir okkur hvaða samfélagssjúkdómar það eru sem hrjá okkur núna, til dæmis ADHD sem er talið beintengt þessu áreiti. Þá er næsta skref að velta fyrir sér lyfjamarkaðnum, bæði löglegum og ólöglegum lyfjum, og svo andlega markaðnum, iðnaði andlegra lausna. Á áttunda áratugnum tók fólk hug- víkkandi efni, en seinna urðu þau að hörðum úthaldsefnum – á kóka- ín-áratugnum – og svo núna er það efni sem hafa þau áhrif að þrengja og fókusera, Ayahuasca-ferðamanna- iðnaðurinn færist í aukana í Evrópu.“ Að skynja listina Birta segir að sýningarstjórarnir hafi haft áhuga á að vinna með lista- mönnum sem „skapa sér sitt eigið rör“ – hafa skapað sér svæði þar sem ákveðin lögmál og lógík gilda en mögulega ekki utan þess: sjálf- sprottin kerfi eða kerfi sem falla utan samþykktra sviða akademíu og vís- inda. Í innsetningu sem Steingrímur Ey- fjörð vann í mörgum ólíkum miðlum sérstaklega fyrir tvíæringinn vinnur hann til að mynda með rökvísi sam- særiskenninga. „Í teikningum sín- um, málverkum og skúlptúrum fjall- ar hann m.a. um samsæriskenningar. Hann er mikill áhugamaður um þær og hefur viðað að sér miklu efni á sér- hæfðum umræðuvettvöngum sem þrífast á internetinu. Frá kenningum um pólitískt samsæri til yfirnáttúru- legra fyrirbæra sem samsæriskenn- ingasmiðir uppljóstra að valdamiklir aðilar feli fyrir fyrir okkur.“ Sum verkanna byggjast á skýrri afmörkun þess sem er innan og utan rörsins – hins innra og ytra. Hrafn- hildur Arnardóttir vann verk fyrir tvíæringinn sem Birta segir tengj- ast þessari afmörkun. Verkið hennar er unnið úr litríku gervihári. „Verkið tengist þeim hluta sýningarinnar sem lýtur að klúbbnum, næturklúbbn- um sem afmörkuðu hugarástandi.“ Þar sem maður upplifir tæmingu eða tóm, með eða án skynvíkkandi efna. Þar sem öll skynáhrif magnast, öll snerting, hljóð, hreyfing og ljós og verður að mjög sérstöku svæði fyrir skynveruna,“ segir Birta. Skynáhrifin eru mikilvæg því sýn- ingarstjórarnir vildu sérstaklega fá til liðs við sig listamenn sem skapa bein skynjunaráhrif: „Í sýningunni erum við ekki að fjalla um skynjun heldur að bjóða upp á ferðalag um öll skyn- færin,“ segir Birta. Þannig skapar japanska listakon- an Fujiko Nakaya rými fyllt af raun- verulegri þoku sem vætir gestina, norska lyktarlistakonan Sissel Tolaas skapar sérstakan ilm fyrir tvíær- inginn og tónlistarkonan Zhala hefur skapað hljóðmynd fyrir sýninguna. n Þoka Aðeins um helmingur listamanna á norræna samtímalistatvíæringnum Momentum 8 er frá Norðurlöndum. Þokuinnsetning japönsku listakonunnar Fujiko Nakaya er eitt þeirra verka sem er hluti af hátíðinni. Samsæri Steingrímur Eyfjörð vinnur meðal annars með rökvísi samsæriskenninga í inn- setningu sem hann vann fyrir Momentum 8. Rörsýni Birta Guðjónsdóttir er einn fjögurra sýningarstjóra Momentum 8, og velta þeir fyrir sér hugmyndum um rörsýni á tvíæringnum. Litríkt gervihár Hrafnhildur Arnardóttir skapaði nýtt verk fyrir norræna myndlistartvíæringinn í Moss. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Espresso t ime bo l la l í nan fæst í s tærr i Hagkaups vers lunum Espresso time bollalínan er björt, litaglöð lína fyrir kaffi elskendur. Bollarnir eru 100ml postulíns- bollar sem eru uppþvottavéla- og örbylgjuvænir. Einfaldir og þægilegir. Kaupauki Gjafapoki fylgir við kaup á tveimur bollum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.