Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Side 86

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Side 86
70 Fólk Helgarblað 25.–29. júní 2015 Fæst hjá Jóni & Óskari. Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind. Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is. Norðurljós Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum. Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis. Northern lights PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 43 98 9 Men frá 16.900 kr. Lokkar 15.900 kr. Fuglafælurnar frá Scarecrow eru mannúðleg og vistvæn lausn sem halda fuglum varanlega frá. Nánari upplýsingar www.fuglavarnir.is sala@fuglavarnir.is Sími 896 1013 Þarftu að halda fuglum frá? Hentar m .a. fyrir fiski skip, löndunar bryggjur og fiskeld i Komin í draumastarfið n Svava Kristín er nýr íþróttafréttamaður á Stöð 2 n Ekki bara ráðin af því hún er kona É g spilaði fótbolta og hand- bolta hér áður þannig ég þekki þennan íþróttageira vel. Og hef mikinn áhuga á íþróttun- um,“ segir hin 25 ára gamla Svava Kristín Grétarsdóttir sem tók nýlega við starfi íþróttafréttamanns á Stöð 2. „Svo stefndi ég á það, alveg frá því að ég var barn, að starfa í fjöl- miðlum. Það er því ekkert leiðinlegt að fá að sameina þetta tvennt.“ Gekk ótrúlega vel Svava er þó ekki alveg ókunn fjöl- miðlum því síðastliðið ár hefur hún starfað á útvarpsstöðinni FM 95,7, þar sem hún stýrir tónlistarþætti um helgar. „Ég var því aðeins komin inn í bransann, þó að þetta sé alveg tvennt ólíkt. Það eina sem er eins er að ég er í beinni útsendingu á báð- um stöðum,“ segir Svava, en tekur fram að hún tali hins vegar allt öðru- vísi sem íþróttafréttamaður heldur en þáttastjórnandi á FM 95,7. Svava las íþróttafréttir í fyrsta skipti 1. júní síðastliðinn og viður- kennir að hafa verið mjög stressuð fyrir útsendingunni. „Ég vissi ekki hvernig ég átti að haga mér rétt fyrir útsendingu,“ segir hún og hlær. „En fyrsta skiptið gekk ótrúlega vel,“ bæt- ir hún við. Fór á íþróttafréttanámskeið Þótt Svava hafi engan bakgrunn í fréttamennsku þá fékk hún nasaþef- inn af henni þegar hún fór á nám- skeið í íþróttafréttamennsku sem RÚV hélt fyrir konur í vetur. Og þekk- ingin sem hún öðlaðist þar nýtist henni vel í dag. „Þegar ég sá nám- skeiðið auglýst skráði ég mig strax. Ég hef sjaldan verið jafn fljót að skrá mig í eitthvað,“ segir hún kímin. „Mér finnst þetta frábært framtak hjá RÚV. Með þessu vöktu þeir athygli á því að konur geta alveg verið íþrótta- fréttamenn eins og karlmenn.“ Á námskeiðinu var skyggnst inn í heim íþróttafréttamanna og farið yfir nokkur grundvallaratriði sem gott er að kunna skil á í fréttamennsku. „Þeim leist bara vel á mig“ Svava gerði sér ekki miklar vonir um að hún fengi starf sem íþróttaf- réttamaður á Stöð 2 í kjölfarið, enda margir gamlir íþróttafréttahaukar sem hafa séð um að gera íþróttunum skil hjá fyrirtækinu. „En svo spurðist það út að ég hefði farið á námskeiðið hjá RÚV og mér var boðið starf. Ég var bara á röltinu um ganga fyrir- tækisins þegar ég var spurð hvort ég hefði áhuga og ég var ekki lengi að svara játandi. Viku síðar var ég kom- in í prufur.“ Svava tekur þó fram að hún hafi ekki fengið starfið bara af því hún er kona – henni hafi verið gert það ljóst þegar hún var ráðin. „Þeim leist bara vel á mig og það var plús að ég er kona.“ Allir jákvæðir Aðspurð segist Svava bara hafa feng- ið jákvæð viðbrögð frá fólki eftir að andlitið á henni fór að sjást á skján- um. „Fólk er rosalega ánægt að sjá kvenmann í þessu starfi. Sérstaklega á Stöð 2. Ég fæ líka mikinn stuðn- ing innan fyrirtækisins þar sem all- ir hafa tekið vel á móti mér. Síðustu vikur hafa verið algjör draumur. Ég geri mér reyndar alveg grein fyrir því að til að byrja með fæ ég ekki að heyra neikvæðar raddir. Fólk hlífir mér. En ég veit að þær koma. Það er bara þannig í þessum bransa og ég bíð spennt eftir því. Ég er með nógu breitt bak til að þola gagn- rýni, annars hefði ég aldrei farið út í þennan bransa. Það eru til dæm- is alltaf einhverjir karlar þarna úti, kannski aðallega þeir sem eldri eru, sem kunna ekki við að láta kven- mann segja sér fréttir af íþróttum.“ Var á leið í nám Svava stefndi á nám í fjölmiðlafræði eftir stúdentspróf og var búin að finna skóla í Þýskalandi sem henni leist vel á þegar henni bauðst starf- ið á FM 95,7. Þá var hún komin of nálægt draumnum til að fresta hon- um fyrir nám. Hún segir hins vegar aldrei að vita hvað hún geri í fram- tíðinni „Það eina sem ég veit núna er að ég er í nýju starfi sem ég kann rosalega vel við mig í.“ Svava er fædd og uppalin í Vest- mannaeyjum og öll fjölskyldan hennar býr þar. Hún er því dugleg að kíkja út í Eyjar þegar tími gefst. Sjálf er hún búin að koma sér vel fyrir í höfuðborginni og kann vel við sig þar. Hún er laus og liðug en segist ekki finna fyrir auknum áhuga karlpeningsins eftir að hún byrjaði í íþróttafréttunum, enda skammur tími liðinn. „Það fylgir þessu alltaf einhver smá athygli en það er bara gaman að því,“ segir hún kímin að lokum. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Íþróttafréttamaður Svava Kristín sótti námskeið í íþróttafréttamennsku sem RÚV hélt fyrir konur í vetur. „Þeim leist bara vel á mig og það var plús að ég er kona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.