Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 3
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Fréttir 3 E F LI R a lm an na te ng sl / H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Velkomin í okkar hóp! Viltu léttast, styrkjast og losna úr vítahringnum? Staðurinn - Ræktin Innritun hafin á fyrstu TT námskeið haustsins! Alltaf frábær árangur á TT! Ný TT námskeið hefjast 30. ágúst  Nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS O-GRILL O-Grill 3500 kr. 32.950 O-Grill 1000 kr. 27.950 Borðstandur kr. 9.595 Taska kr. 2.995 Í ferðalagið Á svalirnar Í garðinn Á pallinn Allt árið S ala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var 0,8 prósentum minni í lítr- um talið en í sömu viku fyr- ir ári. Þetta kemur fram í tölum sem Vínbúðin birti á mánu- dag. Samtals seldust 719 þúsund lítrar af áfengi þessa vikuna en í fyrra seldust 725 þúsund lítrar. Alls komu 127.500 viðskiptavinir í Vín- búðirnar í vikunni, sem eru 0,4 pró- sentum færri viðskiptavinir en í sambærilegri viku í fyrra. Á vef Vínbúðarinnar kemur fram að sala á föstudeginum hafi verið 2,4 prósentum minni í ár en í fyrra. Á móti kemur að salan á laugardaginn 1. ágúst var tæplega 7 prósentum meiri en á sambærileg- um laugardegi í fyrra. Alls seldust tæplega 112 þúsund lítrar af áfengi þann dag. Föstudagurinn fyrir verslunar- mannahelgi er jafnan einn anna- samasti dagur ársins og í ár var engin undantekning á því, að sögn Vínbúðarinnar. Tæplega 260 þús- und lítrar seldust á föstudeginum og rúmlega 41 þúsund viðskipta- vinir komu í Vínbúðirnar. Sama dag fyrir ári seldust 266 þúsund lítr- ar og rúmlega 42 þúsund viðskipta- vinir komu í Vínbúðirnar. Salan í Vínbúðinni Vestmannaeyjum var rúmlega 18 prósentum minni í ár en í fyrra og munar þar mestu um söluna á föstudeginum, sem var um það bil 25 prósentum minni í ár en í fyrra. Salan í Vínbúðinni Akur- eyri var mjög svipuð á milli ára, en þar var 0,6 prósenta aukning í sölu á milli ára. Salan í Vínbúðinni Egilsstöðum var 3 prósentum meiri en í fyrra. Hins vegar var salan á Flúðum 18,2 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra. Sala fyrstu sjö mánuði ársins er 3,3 prósentum meiri í lítr- um talið í samanburði við sama tímabil í fyrra. Alls hafa selst um 11,3 milljónir lítra, en á sama tíma í fyrra var salan 10,9 milljónir lítra. Hafa ber í huga að sala verslunar- mannahelgarinnar er að mestu í júlí í ár en í fyrra var sala föstudags- ins og laugardagsins með sölutöl- um ágústmánaðar. n Minna seldist af áfengi Landinn rólegri í aðdraganda verslunarmannahelgar N eytendastofa kannaði veitingastaði og kaffihús í og við miðbæ Reykjavík- ur í þeim tilgangi að athuga hvort farið væri eftir reglum um verðmerkingar. Á vef Neytendastofu kemur fram að skoðað hafi verið hvort matseðill væri við inngöngu- dyr og hvort upplýsingar um magn drykkja kæmu þar fram. „Ef neytendur eru sestir til borðs og byrjað að þjónusta þeim þegar þeir sjá matseðil getur verið erfitt að hætta við ef maturinn þykir dýr. Þess vegna hafa lengi verið í gildi reglur um að matseðill eigi að vera sýnileg- ur við inngöngudyr. Skoðaðir voru 39 staðir og voru 33 þeirra með mat- seðil við inngang. Aftur á móti vant- aði upplýsingar um magn drykkja á matseðli hjá 25 veitingastöðum,“ segir á vef Neytendastofu. Jafn- framt hvetur Neytendastofa neyt- endur til að vera á verði og koma ábendingum til skila í gegnum raf- ræna neytendastofu á vefslóðinni neytendastofa.is. n Ekki farið að reglum Matseðlar ekki alltaf sýnilegir við inngang Skýrar reglur Reglurnar kveða á um að matseðlar skuli vera sýnilegir við inngang. Mynd Sigtryggur Ari Þrír hluthafar keyptu 10% hlut Andra Halldór Friðrik, Daði og Adrian tóku yfir hlut fyrrverandi framkvæmdastjóra H.F. Verðbréfa A ndri Guðmundsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa, seldi tæplega 10% hlut sinn í félaginu til þriggja núverandi hluthafa samhliða því að hann hætti störfum og tók sæti í stjórn annars verðbréfafyrirtækis, Fossum mörkuðum, í byrjun júní á þessu ári. Þeir Halldór Friðrik Þorsteinsson, stjórnarformaður og meirihlutaeig- andi H.F. verðbréfa, Daði Kristjáns- son, framkvæmdastjóri, og Adrian Sabido, forstöðumaður markaðsvið- skipta, keyptu allir um 3,25% hlut af Andra, eða samtals um 9,75%. Þetta má lesa út úr uppfærðum hluthafa- lista á heimasíðu félagsins en hlutur Halldórs nemur í dag 61,7%. Daði á hins vegar 9,76% á meðan hlutur Adrian nemur 6,5%. Andri hafði verið fram- kvæmdastjóri H.F. Verðbréfa frá ár- inu 2011 áður en hann lét af því starfi um síðustu áramót vegna brottflutn- ings til Svíþjóðar. Andri, sem situr einnig í stjórn Viðskiptaráðs Íslands, hélt þó áfram sem yfirmaður fyrir- tækjaráðgjafar fyrst um sinn en hætti síðan skömmu síðar alfarið störfum hjá félaginu. Hagnaður H.F. Verðbréfa á síðasta ári nam ríflega 50 milljónum króna. Heildareignir voru um 273 milljónir og eiginfjárgrunnur félagsins var 219 milljónir í árslok 2014. n hordur@dv.is Fór til Fossa Andri var framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa frá 2011 til 2014.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.