Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 11
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Fréttir 11 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is FYRIRTÆKJA ÞJÓNUSTA Við sækjum og sendum endurgjaldslaust. Sparaðu starfsfólki tíma og fjármuni. Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki. það á síðasta ári og hef skrifað um þetta pistla. Ég er algjörlega andvíg- ur þessu,“ segir Ásmundur Friðriks- son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem ekki hefur farið leynt með af- stöðu sína í málinu. Hann kveðst vita að það verði erfitt að draga Ísland út úr aðgerðarhópnum gegn Rússum. „En það er fyrst og fremst hlutverk okkar þingmanna að standa vörð um atvinnulífið og vinnu fólksins í landinu. Það er númer 1, 2 og 3. Ég veit að það er erfitt að draga okkur út, en það verður að finna leið til þess.“ Styður aðgerðir „Ég styð aðgerðir okkar gagnvart út- þenslustefnu Rússa í Úkraínu og þar er þingflokkurinn einhuga að baki þeirri ákvörðun. Það er algjörlega ljóst,“ segir Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, þingflokksformaður Sjálf- stæðisflokksins. Hún segir hins vegar skjóta skökku við hversu verulega halli á Ísland í gagnaðgerðum Rússa. „Þýskaland getur enn keypt gas og olíu frá Rússum en við getum ekki selt Rússum fiskinn okkar. Stórar þjóðir úti í heimi ákvarða með hvaða hætti á að setja viðskiptabann á Rússa, og á hvaða vörur, og við tökum þátt í því sem stuðning við samskipti vest- rænna þjóða en síðan setja Rúss- ar þvingunaraðgerðir á móti og það bitnar verst á þessari litlu þjóð sem heitir Ísland,“ segir Ragnheiður og bætir við að bandalagsþjóðirnar verði að koma til móts við Ísland, ellegar verðum við að endurskoða málin. „Ef að sambandsþjóðir okkar munu ekki á nokkurn hátt veita okk- ur einhvern afslátt inn á markaði í Evrópu þá finnst mér verulega koma til skoðunar að við veltum fyrir okkur þátttöku í þessum viðskiptaþvingun- um. En aldeilis ekki að við drögum nokkurs staðar til baka afstöðu okkar gagnvart yfirgangi Rússa í Úkraínu.“ Ragnheiður segir að ekki hafi ver- ið kallaður til sérstakur þingflokks- fundur til að ræða þessi mál en stór þingflokksfundur hafi verið boðaður í næstu viku þar sem hún gerir fast- lega ráð fyrir að málin verði rædd. n Þ á sýnist mér að útflytjend- ur séu fyrst og fremst að hugsa um næsta ársreikn- ing. Það finnst mér býsna gróft,“ sagði Gunnar Bragi Sveins- son utanríkisráðherra í útvarps- þættinum Sprengisandi á sunnu- dag, um gagnrýni útgerðarmanna á stuðning Íslands við aðgerðir gegn Rússum. Gunnar Bragi hef- ur lýst því yfir að ólíklegt sé að stuðningurinn yrði afturkallaður og einhugur væri í ríkisstjórninni um málið. Hljótum að endurmeta stöðuna „Það hlýtur að koma til skoðun- ar hjá okkur, þegar afleiðingar við að skrifa undir slíkar þvinganir eru þær sem að raun ber vitni, að endurmeta stöðuna, sérstaklega þegar þeir sem við höfum stillt okkur upp við hliðina á, eru ekki tilbúnir að sýna samstöðu,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- ráðherra og formaður Sjálfstæð- isflokksins, í fréttum Stöðvar 2. Í Morgunblaðinu segir Bjarni að þvinganir ESB hafi breyst mikið síðan þær voru fyrst samþykktar og að endurskoða hefði átt málið eftir að Rússar hófu gagnaðgerð- ir. Af ummælum Bjarna að dæma virðist ekki alveg sá einhugur inn- an ríkisstjórnarinnar sem Gunnar Bragi vill meina. Stöndum stolt gegn Rússum „Að sjálfsögðu tekur Ísland þátt í refsiaðgerðum Evrópusambands- ins og vesturvelda gagnvart Rúss- landi. Ísland stendur stolt með vestrænum lýðræðisríkjum,“ skrifaði Unnur Brá Konráðsdótt- ir, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, á Facebook-síðu sína á mánu- dag. „Gleymum því ekki að það er Rússland sem er að beita Ís- land viðskiptaþvingunum. Ekki öfugt. Gleymum því ekki að að- gerðir Vesturlanda beinast gegn fámennri elítu en aðgerðir Rússa skaða almenning.“ Útganga veltur á tollum „Ef sú staða kæmi upp að þeir væru ekki að sýna okkur fulla samstöðu og skilning á okk- ar stöðu í þessu máli þá hljótum við að taka það inn í myndina varðandi ákvörðun okkar í fram- haldinu,“ sagði Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, í Vikulokunum á Rás 1 um helgina aðspurður hvort Ís- lendingar ættu að ganga út úr að- gerðum gegn Rússum ef ESB væri ekki reiðubúið að lækka tolla á ís- lenskar sjávarafurðir. n Þetta hafa þau sagt Gunnar Bragi stendur með ákvörðuninni – Efi læðist að Bjarna Skeptískur Brynjar Níelsson segir að hann sé á móti viðskiptaþvingunum, sérstaklega þegar tilefni þeirra sé ekki ærið. Ísland fái afslátt Ragnheiður Ríkharðs­ dóttir segir sambandsþjóðir verða að veita Íslandi afslátt inn á markaði sína. Eina leiðin er út Ásmundur Friðriksson segir að finna verði leiðir út úr refsiaðgerð­ unum gegn Rússum, þótt það sé erfitt. Ráðgátan óleyst Lögreglan á Suðurlandi rannsakar dularfulla kattadauðann Þ að er svo sem ekkert meira af málinu að frétta en að eitt kattarhræ hefur verið sent í krufningu. Okkur hafa ekki borist fleiri hræ og þetta er því það eina sem við höfum,“ segir Þorgrím- ur Óli Sigurðsson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, en sex kettir hafa drep- ist með dularfullum hætti í Hvera- gerði á undanförnum dögum og rannsakar lögreglan á Suðurlandi dauða þriggja þeirra. Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir þeim. Að sögn Aðalsteins Magnússon- ar, íbúa í Hveragerði, er útlit fyrir að fiskflökum hafi verið dreift um bæ- inn sem legið höfðu í frostlegi. Eitt slíkt fiskflak fannst beint á móti húsi Aðalsteins en annar katta hans var aflífaður fyrir stuttu. „Við bíðum því eftir að fá niður- stöður úr krufningu kattarins frá rannsóknarstofu HÍ að Keldum. Síðan var það fiskflakið sem talið er að væri eitrað; það hefur verið sent í rannsókn líka og við bíðum einnig eftir niður- stöðum úr henni,“ segir Þorgrímur. Aðalsteinn segir óhug vera í mönnum í Hveragerði. „Eftir að fiskflakið fannst fóru kettir í hverfinu að hrynja niður. Í kjölfar blóðprufu kattarins míns var talið að um eitur hefði verið að ræða,“ segir hann og bætir við: „Ég er búinn að loka hinn köttinn minn inni.“ n birna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.