Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 23
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Kynningarblað - Matur & veitingar 7 Njóttu lífsins í Salthúsinu Veislur fyrir öll tilefni I nni í hlýlegu og fallegu bjálka- húsi í Grindavík er veitingastað- urinn Salthúsið sem býður upp á ferskan fisk, lamb og úrval annarra girnilegra rétta. Þau sér- hæfa sig einkum í dýrindis fiskrétt- um, t.d. saltfiskréttum. Starfsfólk- ið á Salthúsinu getur aðstoðað þig við skipulagningu og undirbúning fyrir hvaða tilefni sem er, hvort sem það er árshátíð, brúðkaup, afmæli, hanastél, fermingar erfidrykkjur, móttökur, fundir, útskriftarveislur, þorraveislur, jólahlaðborð, þema- böll, starfsmannaskemmtanir, nám- skeið og margt fleira. Boðið er upp á spennandi hópmatseðla, bæði ódýra og einfalda. Hljómleikahald og dansleikir Húsakynnin í þessu flotta bjálka- húsi henta bæði minni og stærri uppákomum, en þarna eru þrír ólíkir salir sem taka frá 30 manns í glæsilegum „A La Carté“ sal, 70 manns á efri hæð og um 100 manns í sal á neðri hæð. Samtals komast um 200 manns fyrir í hús- inu. Þarna eru tveir skjávarpar og góð aðstaða fyrir vinnufundi með þráðlausu neti. Svo eru þrjú að- skild hágæða hljóðkerfi í húsinu sem bjóða upp á góða aðstöðu fyrir hljómleikahald og dansleiki. Pantaðu draumaveisluna þína Það er auk þess tekið vel í upp- ástungur viðskiptavina varð- andi veisluhöld, en starfsfólk Salthússins hefur mikla ánægju af því að setja saman drauma- veisluna þína eða skipuleggja spennandi óvissuferð. Salthúsið er t.d. í góðri samvinnu við ATV 4x4 Fjórhjólaævintýri sem bjóða upp á skemmtilegar ferðir við allra hæfi um nágrenni Grindavíkur (sjá www. atv4x4.is). Salthúsið er í aðeins 35 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni og aðeins 6 mínútur frá Bláa lón- inu. Borgarbúar geta því auðveld- lega notið dýrindis kvöldverðar í Salthúsinu og jafnvel dýft sér ofan í jarðbað í leiðinni. Allar frekari upp- lýsingar um Salthúsið má finna á vefsíðunni salthusid.is. Borðpant- anir fást í síma 426 9700 og 699 2665 eða með því að senda póst á salt- husid@salthusid.is. n Girnilegt Salthúsið býður meðal annars upp á girnilega fiskrétti. Salthúsið í Grindavík. Hlýlegt andrúmsloft. Hægt er að panta í gegnum síma og sækja 776 6705 (15-30 mín) Viking Kebab Engihjalla 8, 200 Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.