Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Page 23
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Kynningarblað - Matur & veitingar 7
Njóttu lífsins í Salthúsinu
Veislur fyrir öll tilefni
I
nni í hlýlegu og fallegu bjálka-
húsi í Grindavík er veitingastað-
urinn Salthúsið sem býður upp
á ferskan fisk, lamb og úrval
annarra girnilegra rétta. Þau sér-
hæfa sig einkum í dýrindis fiskrétt-
um, t.d. saltfiskréttum. Starfsfólk-
ið á Salthúsinu getur aðstoðað þig
við skipulagningu og undirbúning
fyrir hvaða tilefni sem er, hvort sem
það er árshátíð, brúðkaup, afmæli,
hanastél, fermingar erfidrykkjur,
móttökur, fundir, útskriftarveislur,
þorraveislur, jólahlaðborð, þema-
böll, starfsmannaskemmtanir, nám-
skeið og margt fleira. Boðið er upp
á spennandi hópmatseðla, bæði
ódýra og einfalda.
Hljómleikahald og dansleikir
Húsakynnin í þessu flotta bjálka-
húsi henta bæði minni og stærri
uppákomum, en þarna eru þrír
ólíkir salir sem taka frá 30 manns
í glæsilegum „A La Carté“ sal,
70 manns á efri hæð og um 100
manns í sal á neðri hæð. Samtals
komast um 200 manns fyrir í hús-
inu. Þarna eru tveir skjávarpar og
góð aðstaða fyrir vinnufundi með
þráðlausu neti. Svo eru þrjú að-
skild hágæða hljóðkerfi í húsinu
sem bjóða upp á góða aðstöðu
fyrir hljómleikahald og dansleiki.
Pantaðu draumaveisluna þína
Það er auk þess tekið vel í upp-
ástungur viðskiptavina varð-
andi veisluhöld, en starfsfólk
Salthússins hefur mikla ánægju
af því að setja saman drauma-
veisluna þína eða skipuleggja
spennandi óvissuferð. Salthúsið er
t.d. í góðri samvinnu við ATV 4x4
Fjórhjólaævintýri sem bjóða upp á
skemmtilegar ferðir við allra hæfi
um nágrenni Grindavíkur (sjá www.
atv4x4.is).
Salthúsið er í aðeins 35 mínútna
akstursfjarlægð frá höfuðborginni
og aðeins 6 mínútur frá Bláa lón-
inu. Borgarbúar geta því auðveld-
lega notið dýrindis kvöldverðar í
Salthúsinu og jafnvel dýft sér ofan í
jarðbað í leiðinni. Allar frekari upp-
lýsingar um Salthúsið má finna á
vefsíðunni salthusid.is. Borðpant-
anir fást í síma 426 9700 og 699 2665
eða með því að senda póst á salt-
husid@salthusid.is. n
Girnilegt Salthúsið
býður meðal annars upp á girnilega fiskrétti.
Salthúsið í Grindavík.
Hlýlegt andrúmsloft.
Hægt er að
panta í gegnum
síma og sækja
776 6705
(15-30 mín)
Viking Kebab
Engihjalla 8,
200 Kópavogi