Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 15
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Fréttir Erlent 15 Smart föt fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464 Stærðir 38-54 Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is Allir taldir af eftir flugslys Flugfélagið bannað innan ESB F imm úr áhöfn og 49 farþegar létust í flugslysi á Papúa í Indónesíu á sunnudag. Þrjú börn og tvö ungbörn voru far- þegar um borð. Allir farþegarnir voru frá Indónesíu. Björgunarsveit- ir fundu brakið á mánudag eftir að áhöfn björgunarþyrlu kom auga á það í miklu skóglendi í Bintang- fjöllunum. Reyk lagði frá brakinu þegar björgunarsveitir fundu það, en slæmt veður á svæðinu hefur tafið björgunaraðgerðir. Brakið er í 2.600 metra hæð. Það voru íbúar í þorpi rétt við Oksibil sem sögðust hafa séð flugvél hrapa á sunnudag og voru í kjölfar- ið ræstar út fjölmargar björgunar- sveitir, bæði í lofti og á landi. Vélin hafði farið af stað frá Jayapura, höf- uðborg Papúa-héraðs í Indónesíu, og átti að fara til Oksibil. Flugið átti að standa í um 50 mínútur. Vélin var í eigu indónesíska flug- félagsins Trigana Air og af gerðinni ATR-42. Alls hafa tíu vélar Trig- ana Air farist síðan flugfélagið var stofnað árið 1991. Það hefur ver- ið á bannlista Evrópusambandsins (ESB) síðan 2007 en einungis fjór- um indónesískum flugfélögum er heimilt að fljúga til landa ESB. Vél- in sem fórst var tekin í notkun fyrir 27 árum. n Slæmt orðspor Flugfélagið, Trigana Air, hefur verið bannað innan Evrópusam- bandsins. Bakarísmatur fullur af seðlum Svífast einskis til að smygla varningi milli landa M enn leita ýmissa leiða til þess að koma ólöglegum varningi svo sem peningum fíkniefnum eða öðru, milli landa. Hvort sem það eru lifandi froskar eða bakarísmatur fullur af seðlum þá er ljóst að þeir sem á annað borð vilja brjóta af sér, geta verið ansi hugmyndaríkir. n Mennskt fiskabúr Þessi svunta var sérútbúin fyrir konu sem hafði hana undir pilsinu sínu í flugi frá Singapúr til Melbourne. Í pokunum voru svo 51 lifandi gullfiskur og sjaldgæfar tegundir. Tollverðir sögðust hafa fyllst grunsemdum þegar þeir heyrðu vatnshljóð þegar konan gekk framhjá þeim. Sakleysið uppmálað Mikki mús var ekki eins sakleysislegur og hann er flesta aðra daga. Þegar tollverðir skoðuðu hann nánar kom í ljós byssa sem hafði verið falin vel og rækilega í fóðrinu á tuskudýrinu. Hún var snarlega gerð upptæk. Óvæntur glaðningur? Inni í þessum páskaeggjum reyndist vera dágóður slatti af kókaíni. Tollverðir á LAX-flugvellinum í Los Angeles fundu rúm sex kíló af kókaíni í farangri manns. Voru efnin falin í sælgætis páskaeggjum, en einnig í fóðri ferðatöskunnar. Talið er að endursöluvirði þessa magns af kókaíni sé um 13 milljónir króna. Óíþrótta- mannslegt Það fer ekki saman, íþróttir og reykingar. Þessi smyglari virðist ekki hafa haft vit á því, en hann reyndi að koma sígarettum til Þýskalands, í eldgömlum fótbolta. Á hraðferð Þessi dúfa átti að flytja fíkniefni inn í fangelsi á Kosta Ríka. Fangaverðir handsömuðu dúfuna á einum af svölum fangelsisins en í pokanum framan á henni voru fjórtán grömm af kókaíni og önnur fjórtán af maríúana. Hver örlög dúfunnar verða fylgdu ekki sögunni. Smá álpappír Þýskir tollverðir gerðu þessi skinkuhorn upp- tæk í rassíu sinni þegar þau voru að rannsaka glæpahring sem var grunaður um stórtækan peningaþvott. Myndir reuterS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.