Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Side 4
Vikublað 18.–20. ágúst 20154 Fréttir
REGAL hunda- og kattafóður
- góð næring fyrir dýrin þín
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
Inniheldur EKKI
• Hveiti, soja eða maís
• Aukaefni
• Erfðabreytt matvæli
• Sykur eða mjólkurafurðir
Fella niður
dómsmálið
Stjórn Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga (Fíh) hefur tek-
ið ákvörðun um að fella niður
dómsmál það sem félagið hef-
ur höfðað gegn íslenska ríkinu
í tengslum við lagasetningu á
verkfall hjúkrunarfræðinga sem
starfa hjá ríkinu.
Í síðustu viku féll dómur í
Hæstarétti í máli BHM gegn rík-
inu þar sem íslenska ríkið var
sýknað af kröfum BHM.
Stjórn Fíh taldi
ýmis veigamikil
atriði í mála-
tilbúnaði fé-
lagsins gegn
ríkinu vera
frábrugðin því
sem tekist var
á um í dómsmáli
BHM en málatilbúnaður Fíh
væri þó einnig byggður á mörg-
um af sömu efnisrökum og tek-
ist var á um í dómsmáli BHM.
„Telja verður ljóst af forsend-
um í dómi Hæstaréttar, að
rétturinn fellst ekki á flestar af
þeim röksemdum sem haldið
hefur verið á lofti af hálfu
stéttarfélaganna. Samkvæmt
dóminum telur Hæstiréttur að
staða kjaradeilu aðila og önn-
ur atvik séu með þeim hætti að
réttlætanlegt hafi verið fyrir rík-
ið að grípa inn í deiluna með
lagasetningu.
Þegar af þeirri ástæðu tel-
ur stjórn Fíh sýnt að áfram-
haldandi rekstur dómsmáls þess
gegn ríkinu muni ekki skila fé-
laginu og félagsmönnum þeirri
niðurstöðu sem vænst var þegar
dómsmálið var höfðað,“ segir í
til kynningunni en stjórn Fíh lýs-
ir yfir vonbrigðum með niður-
stöðu Hæstaréttar í máli BHM.
F
erðamenn sem koma við í
Kirkjufjöru í Dyrhólaey virða
ekki lögregluborða og fara ít-
rekað inn fyrir lokað svæði.
Þannig leggja þau sig í stórhættu
en ástæðan fyrir því að svæðinu
var lokað er sú að á föstudaginn
hreif alda með sér sex ferðamenn
á haf út.
Lögreglan brá á það ráð að setja
upp lögregluborða til að loka af
svæðinu en miðað við ljósmyndir
sem Davíð Þór Gunnarsson tók fyr-
ir DV um helgina eru fáir og jafnvel
enginn sem virðir lokunina. Lög-
regluborðinn er þessi hefðbundni
guli lögregluborði en á honum
stendur „Aðgangur bannaður“ og
einnig „Lögreglan“.
Engar aðrar upplýsingar er að
finna á svæðinu um þetta stór-
hættulega brim, hvorki á íslensku
né ensku.
„Ég held að allir þeir ferðamenn
sem ég ljósmyndaði hafi verið full-
meðvitaðir um það að svæðið væri
lokað. Þeir bæði skriðu og hoppuðu
yfir bandið til að komast nær,“ segir
Davíð Þór.
„Ef ég væri staddur erlendis og
kæmi að svona stað þar sem búið
væri að loka af svæði með gulum
borða og á borðanum væri mynd af
lögregluskildi þá væri ég ekkert að
hoppa yfir hann.“ n
atli@dv.is
Fara inn fyrir merkt svæði lögreglunnar til að taka myndir
Í lífshættu fyrir ljósmynd
Í stórhættu
Hér sést
einnaf þeim
ferðamönnum
sem virtu ekki
lokunina.
Mynd dÞG
Hópkaup rekin á
annarri kennitölu
n Móberg keypti ekki gamla rekstrarfélagiðn Hefur ekki áhrif á viðskiptavini
S
ölusíðan Hópkaup er nú rek-
in á kennitölu félags sem
nýir eigendur hennar stofn-
uðu árið 2012 en ekki hafa
fengist upplýsingar um hvort
allar kröfur á fyrrverandi eiganda
síðunnar hafi verið gerðar upp þegar
sala á vörumerkinu gekk í gegn fyrr
í sumar. Síðan er nú í eigu Móbergs
ehf. en nafni dótturfélags þess var
breytt í Hópkaup ehf. nokkrum vik-
um áður en móðurfélagið tilkynnti
um kaupin í síðustu viku.
Keypti hugmyndina
Móberg er í eigu Skorra Rafns Rafns-
sonar, eiganda Netgíró, Bland, 433.
is, Wedo og Móa Media og stofn-
anda íslenska smálánafyrirtækisins
Hraðpeningar. Dótturfélag Móbergs
keypti Hópkaup af DCG ehf. sem er
í eigu Leifs Alexanders Haraldsson-
ar, stofnanda smálánafyrirtækjanna
Kredia ehf. og Smálán ehf. Sölusíð-
an var áður rekin af öðru félagi í eigu
Leifs, H19 ehf., sem hét Hópkaup ehf.
fram að 10. júlí síðastliðnum þegar
nafni þess var breytt, sama dag og
dótturfélag Móbergs tók heitið upp.
Lárus Gísli Halldórsson, stjórn-
armaður í Hópkaupum, staðfestir í
samtali við DV að Móberg hafi ekki
tekið við gamla rekstrarfélagi sölu-
síðunnar, sem var stofnað í byrjun
árs 2011, og að umrætt dótturfélag
þess hafi fengið nýtt nafn.
„Við keyptum reksturinn af gamla
Hópkaup og tökum við því félagi í
þeirri mynd sem það hefur verið í.
Eldra rekstrarfélagið er hjá gömlu
eigendunum. Við vorum í raun að
kaupa hugmyndina og setja hana
inn í samsteypuna hjá okkur. Gagn-
vart notendum og viðskiptavinum er
allt óbreytt en það er ný kennitala og
nýir eigendur,“ segir Lárus.
Ábyrgist öll bréf
Eins og kom fram í fréttatilkynn-
ingu Móbergs um kaupin þá er Hóp-
kaup fyrirtæki sem býður upp á vör-
ur og þjónustu með afslætti, en með
þeim fyrirvara að ákveðinn lág-
marksfjölda fólks þurfi til að tilboð-
in verði virk. Félagið keypti á sama
tíma eignarhaldsfélagið Leit.is sem
hefur rekið íslenskan leitarvef frá ár-
inu 1999.
Lárus svarar aðspurður að nýir
eigendur sölusíðunnar ábyrgist öll
Hópkaupsbréf, það er þær ávísanir á
vörur og þjónustu sem viðskiptavin-
ir hennar hafa keypt, sem enn eru í
gildi. Tekur hann fram að gildistími
inneignar sé skilgreindur á bréfun-
um sjálfum.
„Félagið mun efla verulega þau
tækifæri sem almenningi gefst til að
kaupa vörur og þjónustu með veru-
legum afslætti í krafti fjöldans,“ seg-
ir Lárus. Ekki náðist í Leif Alexander
Haraldsson við vinnslu fréttarinnar.
Samkvæmt nýjasta ársreikningi
Hópkaupa ehf. tapaði það tæpum
64 þúsund krónum árið 2013. Félag-
ið, sem hét þá 1808 ehf., átti þá eignir
upp á 305 þúsund krónur en skuld-
aði ekkert. Nýjasti ársreikningur H19
ehf., áður Hópkaup ehf., er einnig
frá árinu 2013 en félagið var þá rekið
með rúmlega 35 milljóna króna tapi.
Eignir félagsins námu þá rúmum 28
milljónum en skuldirnar rétt rúmum
46 milljónum. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Eigandi Móbergs
Skorri Rafn Rafnsson
segir kaupin á Hóp-
kaupum og Leit.is koma
til með að styrkja og
auka umsvif Móbergs á
netinu.