Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 13
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Fréttir 13
veittar upplýsingar um stöðu mála.
Það kom Sylvíu í raun á óvart
hversu miklar upplýsingar hún gat
fengið frá sendiráðinu í ljósi þess
hvernig lögfræðingurinn hafði greint
henni frá málavöxtu.
„Mér finnst mjög ljótt að gera
þetta, að segja mér að fólkið sé allt
látið og það í svona slysi. Ég veit
auðvitað ekkert hvað hann var að
hugsa, en ég skil þetta ekki. Ég fékk
þessar upplýsingar strax frá sendi-
ráðinu,“ segir hún og hrósar starfs-
fólki þýska sendiráðsins á Íslandi í
hástert. Það hafi verið allt af vilja gert
til að aðstoða hana og koma á þessari
tengingu sem er henni afar dýrmæt.
Fann upprunann
„Ég veit núna að ég er barn þýskrar
konu og Tyrkja. Það segir mér ým-
islegt um mig sjálfa. Ég er blóðheit,
kannski svolítið snögg upp og verð
fljótlega brún – nema á fótunum,“
segir hún og brosir. Nafnið Sylvía
fylgdi henni líka heim frá Þýska-
landi. Hún segist einnig rekja marga
persónueiginleika sína til íslensku
foreldra sinna. „Ég er líka mjög lík
þeim að mörgu leyti, stundum alveg
ótrúlega lík þeim.“
Hún hefur ekki fengið öll svörin
við spurningum sínum, þótt hún viti
sumt. Blóðmóðir hennar eignaðist
sex börn, tvær telpur og fjóra drengi,
og gaf þau öll til ættleiðingar.
Sylvía veit ekki til þess að hún eigi
samfeðra systkini sjálf, en segist hafa
heyrt að í hópnum séu bræður sem
eru tvíburar. Þeir virðast þó ekki hafa
farið á sama heimilið og voru að lík-
indum ættleiddir hvor í sínu lagi.
Ættleiðingin var lokuð að því leytinu
að hún gat ekki sjálf haft samband
við systkini sín. Þau urðu sjálf að
fá upplýsingar um hana og hennar
hagi í gegnum millilið, það er sendi-
ráðið, og það var svo í þeirra hönd-
um hvort þau myndu hafa samband.
Þau fengu öll netfangið hennar og
aðrar upplýsingar til að hægt væri að
hafa samband. Sendiráðið fann allan
hópinn og öll systkini hennar vita því
af henni, sem og blóðmóðir hennar.
Blóðfaðir hennar hefur ekki svarað
kalli sendiráðsins, en hún hefur skrif-
ast á við blóðmóður sína.
Þá hefur hún náð sambandi við
þrjú af fimm systkinum og hitt tvö
þeirra. Tveir bræður hennar hafa
ekki svarað, en vita af henni og hafa
netfangið hennar. Það eru líklega tví-
burarnir. „Það er kannski ekki skrítið
að fólk vilji ekki umturna öllu, en ef
þetta hefði verið ég hefði ég skrifað
þeim um leið. Vonandi láta þeir í sér
heyra einhvern tímann.“
Blóðmóðir hennar reyndist vera
mikill ferðalangur og var síðast þegar
Sylvía vissi í Noregi. „Ég hef minni
áhuga á að komast í samband við
hana,“ segir hún. „Mér finnst það
óneitanlega svolítið sérstakt að hún
hafi eignast sex börn og gefið þau
öll, en ég veit auðvitað ekkert hvers
vegna hún gerði það.“
Ómetanleg tenging
Sambandið við systur hennar og
bróður hefur verið Sylvíu ómetan-
legt. „Ég er elst systkina minna hérna
heima, en ég er yngst úti. Þetta var
auðvitað skrítið. Skyndilega átti ég
fimm systkini – ég hélt þau væru
kannski eitt eða tvö,“ segir Sylvía og
brosir. Í ljós kom að systkini henn-
ar höfðu ekki miklar innri tengingar
og höfðu öll alist upp hvert í sínu
lagi. „En þau vissu ekki af mér, ekkert
þeirra, eftir því sem ég kemst næst.
Ekki fyrr en ég fór að leita. Ég veit að
systir mín er svo í sambandi við blóð-
móður okkar þótt ég sé það ekki sjálf.“
Bíómyndaupplifun
„Fyrsta systkinið mitt hafði sam-
band við mig í ágúst 2013. Svo kom
þetta bara svona eitt af öðru og ég
fór svo út í apríl 2014. Þá fór ég með
dóttur minni og hitti systur mína og
dóttur hennar. Við hittumst í Frank-
furt. Við ákváðum að fara bara í
nokkra daga, svona ef þetta skyldi
ekki heppnast. Ég gerði mér alveg
grein fyrir því að þetta gat orðið
gott, en ég vissi að þetta gat verið
slæmt. En ég varð bara að taka þessa
áhættu. Þetta hafði setið svo lengi í
mér.“
Þegar hún loksins hitti svo systur
sína var það tilfinningaþrungin
stund. „Hún bara grét og grét. Þetta
var svona eins og í bíómynd,“ segir
hún. „Ég hafði eiginlega ekki tíma
til að gera neitt nema að halda utan
um hana.“
Sylvía fór aftur út í vor og voru þá
miklir fagnaðarfundir. „Núna þegar
við hittumst aftur þá bara ríghélt
hún í mig.“
Þau systkinin sem hafa náð að
tengjast, hafa samband í gegn-
um netið, spjalla saman í tölvu-
póstum og sjá myndir á Facebook.
Systurdóttir hennar hefur svo kom-
ið hingað til lands tvisvar á síðustu
tveimur árum.
Í maí síðastliðnum fóru þær
Sylvía og Manuela, systir hennar,
að hitta bróður þeirra, Peter. Hann
glímir við alvarleg veikindi og í raun
vissi Sylvía ekki hvort hún væri að
fara að hitta hann í fyrsta og jafn-
framt síðasta sinn. „En ég ákvað
að ég vildi fara að hitta hann núna,
hvernig sem það færi svo. Mér
fannst það mjög mikilvægt.“
Sylvía leggur sig fram um að læra
þýsku og er að taka áfanga í þýsku
til að komast nær systkinum sín-
um, en þau tala flest takmarkaða
ensku. „Þetta kemur smátt og smátt.
Ég þyrfti líklega að komast til Þýska-
lands, búa og vinna og þá kemur
þetta. Þangað til læri ég þetta bara í
skólanum hérna heima.“
Sér ekki eftir neinu
„Ég myndi aldrei vilja skipta á neinu
– ég ólst upp hjá yndislegum for-
eldrum og er í góðu sambandi við
föður minn. En ég hvet fólk til að
fara og leita ef það hefur áhuga á
því. En það verða allir að gera sér
grein fyrir því að þetta getur farið
á báða vegu. Þetta geta verið von-
brigði, en þetta getur verið mikil
hamingja. Ég gerði það og ég sé ekki
eftir því.“ n
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER gluggaþvottavörur,
allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
gólfþvottavélum
Tilboð fyrir hótel og
gistiheimili í apríl/maí!
„Það var samt ekki
þannig að ég væri
sérstaklega að leita að
blóðforeldrum mínum,
heldur systkinum mínum.
Systkini Hér eru þau Manuela, Peter og Sylvía. Þau hittust í fyrsta
sinn í maí, en Peter glímir við alvarleg veikindi. Sylvía veit því ekki
hvort eða hvenær hún fær tækifæri til að hitta hann aftur. Það var
því mikilvægt að þau náðu að hittast í vor.
Mynd Úr einkaSaFni
Fjölskylda
Bróðursonur Sylvíu
er sláandi líkur henni
eins og sést vel á
þessari mynd.
Mynd Úr einkaSaFni
Stór hópur Hér má sjá Sylvíu og systkinabörn hennar,
systur og dóttur Sylvíu. Á myndinni eru einnig tengdabörn
Peters og Manuelu. Mynd Úr einkaSaFni