Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 16
Vikublað 18.–20. ágúst 2015
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þá er lagt af stað í land-
vinninga viðbjóðsleikans
Vigdís Hauksdóttir, um meinta andúð Láru Hönnu bloggara á henni og Framsókn. – DV
Ólga í Sjálfstæðis-
flokknum
Ólga er innan Sjálfstæðisflokks-
ins vegna afstöðu formannsins,
Bjarna Benediktssonar, til við-
skiptaþvingana gagnvart Rúss-
landi. Einkum mun óánægjan
vera í röðum frjálslyndari hægri
manna sem
endurspeglast
meðal annars í
skrifum Þórlind-
ar Kjartanssonar á
Deiglunni og um-
mælum Þorsteins
Pálssonar í viðtali
við Eyjuna. Er það mál manna í
þessum armi flokksins að hvers
kyns fráhvarf frá viðskipta-
þvingunum gagnvart Rússum
feli í sér meiri háttar breytingu á
áratuga gamalli stefnu flokks-
ins í utanríkismálum. Fari svo
að Bjarni fylgi stefnu útgerðar-
manna frekar en utanríkisráð-
herra í hans eigin ríkisstjórn má
búast við að ólgan nú sé aðeins
sýnishorn af því sem koma skal.
Furðuleg umræða
Umræðan um þátttöku Íslands
í refsiaðgerðum vesturveldanna
gegn Rússum hefur tekið á sig
margar furðulegar myndir á síð-
ustu dögum. Þannig virðist þess
misskilnings hafa gætt hjá sum-
um á hægri væng stjórnmálanna
að þær aðgerðir séu sérstaklega á
vegum Evrópusambandsins.
Svo er þó augljóslega ekki en
auk langsamlega flestra ríkja
Evrópu – bæði utan og innan ESB
– þá styðja einnig lýðræðisþjóð-
ir á borð við Bandaríkin, Japan,
Nýja-Sjáland, Ástralía, Kanada
og Japan refsiaðgerðirnar gegn
ráðamönnum í Kreml. Þá hafa
aðgerðir Rússa á Krímskaga og í
austurhluta Úkraínu, í trássa við
alþjóðalög, verið fordæmdar af
öllum fimmtán þjóðum Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna nema
tveimur – Kína og Rússlandi.
Hvert einasta orð hefur
staðist tímans tönn
Lára Hanna Einarsdóttir, um reiði Vigdísar yfir tveggja ára gamalli Facebook-færslu hennar. – DV
Að sjálfsögðu tekur Ísland þátt í
refsiaðgerðum gagn vart Rússlandi
Unnur Brá Konráðsdóttir, sem talaði þvert gegn orðum formanns síns um sama mál. – DV
F
erðamannastraumurinn til Ís-
lands hefur náð nýjum hæð-
um. Við státum af því að vera
þægileg heim að sækja og góð-
ir gestgjafar. Margt bendir þó til þess
að við náum ekki að sinna því hlut-
verki jafn vel og við vildum. Fréttir
um helgina um miklar raðir í Leifs-
stöð í bland við illa hirta flugstöðina
er ekki sú mynd sem við viljum gefa
gestum okkar, hvort sem þeir eru að
koma eða fara..
Fljótlega dregur úr þessum mikla
straumi. Kúfurinn er senn að baki.
Stjórnvöld á sviði ferðamála verða
að bregðast við nú þegar og koma
þessum hlutum í það horf að sómi
sé að. ISAVIA, sem annast rekstur
Leifsstöðvar, þarf að gera betur. Það
er ekki ásættanlegt að ruslafötur séu
yfirfullar og rusl dreifist um flugstöð-
ina. Þessi mikli fjöldi ferðamanna
hlýtur að gefa ISAVIA meiri tekjur og
krafan er að starfsfólki verði fjölgað
til að anna þessu verkefni á sóma-
samlegan hátt.
Sama gildir um önnur svið ferða-
þjónustunnar. Stjórnvöldum ber að
flýta vinnu við að koma á einhvers
konar náttúrugjaldi sem nýtt verði til
uppbyggingar á viðkvæmum svæð-
um. Tryggja þarf öryggi á hættuleg-
um stöðum og stuðla að viðunandi
hreinlætisaðstöðu. Það er enginn
tími til stefnu. Rökin liggja fyrir og
búið að margtyggja þau af öllum að-
ilum. Nú væri mikilsvert að sann-
ir náttúruvinir hegði sér sem slíkir
og leggi lið þeirri aðferð sem hent-
ugust er. Láti pólitík ekki ráða för.
Í stað gagnrýni verði samvinna og
samstarf um útfærslu náttúrugjalds/
passa/skatts/greiðslu, eða hvaða
nafni menn vilja nefna þá gjald-
töku sem blasir við að vera sjálfsögð.
Þetta þarf að vera eitt af fyrstu ver-
kefnum þegar Alþingi verður sett,
fyrri hluta september. Þegar nýtt
ferðamannatímabil rennur upp á
næsta ári þurfum við að vera í stakk
búin til að taka utan um þessi mál.
Þá verða engar afsakanir í boði. Það
er skammur tími til stefnu og okk-
ur ber að nota hann vel. Við þurfum
að hlúa að orðstír okkar sem ferða-
mannaland og um leið að tryggja
að náttúruperlur standi áfram und-
ir nafni. Tíminn til að koma þessum
hlutum í rétt horf er núna. n
M
enn og þjóðir trúa enn á
kraftaverk þótt vísindin
hafi útilokað þau bjánaleg-
ustu en tekið við af þeim á
vissan hátt og trúnni sem prestar
mölluðu í kirkjum en vísindamenn
núna með tilraunum á músum.
Þá er ekki minnst á markaðshjá-
trú, fjármálahjátrú, femínistahjá-
trú og stjórnmálahjátrú með eða án
einræðisherra. Þjóðahjátrú tengd
einstaklingum byggist oft á þeim.
Einnig geta þjóðir trúað á forseta eða
forsætisráðherra, menn og konur.
Til að verða dýrkaður er gott að
hafa fæðst flugríkur eða risið úr fá-
tækt til metorða og ekki sakar að
koma frá útkjálka, hafa í æsku mok-
að úr fjósi, orðið fyrir einelti, lækn-
ast af hæfilegri geðtruflun, áfengis-
sýki, vera með laskað móðurlíf eða
hafa jafnvel brotið af sér, því batnandi
manni er best að lifa.
Hjátrú er þess eðlis að hún lúrir í
sálinni og ekki beitt hversdags nema
til matgæsku, bætiefnaáti og öðru sem
léttir leiðann yfir að vera ekki snilling-
ur en geta fengið uppbót með hjálp-
armeðulum svo hægt verði að ljúga
að maður virki sjálfan sig í tengslum
við umhverfið og þekkingu á heimin-
um. En þegar mikill vandi steðjar að
þjóðum gýs hjátrúin upp. Þá er leitað í
flýti að kraftaverkakarli á æðri stöðum.
Konur eru lægra settar hvað varðar
lausnarorðin. Þær ráða á sviði krafta-
verka hrukkukremsins, jóga og góð-
verkahlaupa gegn krabbameini. Síst
er að undra að núna „þegar við fáum
að kenna á Rússum í alvöru“ sé svip-
ast um eftir lausnara. Beiðni um hann
koma frá smábátasjómönnum, að for-
setinn fari að tala við einkavin sinn,
Pútín, og komi með lausn á sölu mak-
rílsins sem enginn veit hver á; kannski
stolinn frá öðrum kvótaþjóðum. Það
skiptir engu máli í íslenskri réttlætis-
hugsun.
Engan skyldi undra að sjómenn
finni snjallræði sem varðar Bessa-
staði, þeir munu fyrstir hafa stung-
ið upp á því að við fengjum magnað-
an kvenforseta. Núverandi forseti er
líka magnaður og hefur leitaði bjarg-
ráða til annars forseta í tengslum við
þjóðarstolt þegar hann bað Clinton
að láta gera hetjumynd um Leif Ei-
ríksson í anda kvikmyndarinnar um
Pocahontu. Clinton hreifst en sagð-
ist engu ráða í Hollywood. Kannski
tekst betur með Pútín. En hví ekki að
senda Jón Gnarr í peysufötum eða
Pál Óskar í búningi á víkingaskipi?
Líklega mundu goðin sigla heilir í
höfn og hvetja smábátasjómenn til
frekari markílveiða og ríkisstjórn-
ina að koma ekki nálægt öðru en ál-
veravæðingu.
Svipaður barnsskapur er ekki
séríslenskt fyrirbrigði í samtíman-
um á bjargráðasviðinu. Forsætisráð-
herra Grikkja fór með eiginkonuna
í betliför til Moskvu að leita lausna
hjá Pútín. Eiginkonan lætur aldrei
sjá sig opinberlega en ástæðan fyr-
ir undantekningunni var sú að hún
kom kommúnisma inn hjá eigin-
manninum á unglingsárum þeirra
og átti í förinni að leika á komm-
úníska strengi í Kreml. En þar rík-
ir þá hvorki sovétskt bræðralag né
marxismi; markaðshyggja komin í
staðinn. Forsætisráðherrann leit-
aði á aðrar slóðir og fékk til bjargar
amerískan svikahrapp, Glenn Kim,
úr banka Lehman Brothers sem olli
mesta bankahruni fégráðugra þjóða
samtímans. Hægt er að segja að ráð
gríska vinstrimannsins hafi svínvirk-
að, að snúa við blaðinu. Hann gekk í
lið með fyrrum andstæðingum og át
ofan í sig gríska vinstragumsið fyrir
skammtímalausn.
Kannski reynir ríkisstjórn okkar
svipað, að éta ofan í sig „skagfirska
prinsipið“ og hefja til vegs óvenju-
lega visku Birgittu Pírata sem segir
að maður eigi aldrei að láta öll eggin í
sömu körfu. Sigmundur gæti líka far-
ið til Færeyinga og Grænlendinga og
beðið þá að smygla fiskinum okkar til
Rússlands og láta óseljanlega skag-
firska kindaskrokka fljóta með í pakk-
anum. n
Tíminn er naumur og hann er núna
Kraftaverk „En hví ekki að senda Jón Gnarr í peysufötum eða Pál Óskar
í búningi á víkingaskipi?
Guðbergur Bergsson
rithöfundur
Kjallari
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
„ Í stað gagnrýni
verði samvinna og
samstarf um útfærslu
náttúrugjalds/passa/
skatts/greiðslu, eða
hvaða nafni menn vilja
nefna þá gjaldtöku sem
blasir við að vera sjálf-
sögð.
Mynd EGGErt SKúLaSon