Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Síða 18
Vikublað 18.–20. ágúst 20152 Matur & veitingar - Kynningarblað
Veisluþjónusta og ljúfmeti
Sérsniðnar veislur frá Culina
C
ulina, sem þýðir eldhús á lat
ínu, er alhliða veisluþjón
usta með bækistöðvar á höf
uðborgarsvæðinu, en býður
landsmönnum þjónustu til
sjávar og sveita. Hjá Culina er hægt
að panta veitingar fyrir hefðbundnar
veislur s.s. brúðkaup, fermingar og
jólahlaðborð, en líka fyrir öll önnur
tækifæri, smá og stór. Culina sérhæf
ir sig einnig í þemaveisum af ýms
um toga þar sem þema veislunnar
endurspeglast í matnum.
Persónuleg þjónusta
Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeist
ari, eigandi og framkvæmdastjóri
Culina, hefur leitast við að sér
sníða veislur að óskum viðskipta
vina hverju sinni og leggur áherslu
á persónulega þjónustu, en hún set
ur saman matseðla í samvinnu við
viðskiptavinina. Dóra hefur áratuga
reynslu af grænmetisréttum, en kjöt
og fiskur eru líka á matseðlinum.
Hún hefur einnig mikla reynslu af því
að vinna með fæðuóþol og ofnæmi
og eru allir réttir eldaðir frá grunni.
Engin aukaefni eða óþörf rotvarnar
efni eru í réttunum frá Culina.
Sælkeravörur í úrvali
Culina er ekki eingöngu veisluþjón
usta heldur framleiðir fyrirtækið ljúf
meti undir sínum merkjum sem eru
mörg hver orðin fastir liðir á borðum
landsmanna. Má þar nefna klassískt
gúmmelaði eins og aiolihvítlauks
sósu, hummus og döðluchutney
en einnig nýstárlegar og ómótstæði
legar kræsingar eins og rauðrófu
grafna bleikju og lakkríssmjör. Hjá
Culina er líka bakað grófasta brauðið
í bænum og einnig hörkex, sem er
glútenlaust hráfæðiskex.
Ljúfmetið frá Culina fæst í Búrinu
Grandagarði og Frú Laugu bænda
markaði sem er með verslanir við
Laugalæk og á Óðinsgötu. Helgina
29.–30. ágúst verður svo haldinn í
Hörpu stærsti matarmarkaður lands
ins þar sem forvitnir matgæðingar
geta m.a. nálgast ljúfmetið frá Culina.
Culina veitingar & veisluþjón
usta er til húsa á Skemmuvegi 12 í
Kópavogi. Frekari upplýsingar má
nálgast í síma 8925320 eða með því
að senda póst á netfangið er dora@
culina.is. Heimasíðan er www.
culina.is. n
Góðgæti Sérsniðin veisluþjónusta frá Culina.
Sérframleiðsla
Döðluchutney frá Culina.
Skemmtilegt andrúmsloft
á Laundromat Café
Nýr og gómsætur matseðill
L
aundromat Café var
opnað árið 2011 í
Austurstræti og er á
skömmum tíma orðið
að þekktu kennileiti
í Reykjavík. Alls eru staðirn
ir nú fjórir, en hinir þrír eru í
Kaupmannahöfn. Skemmti
legt andrúmsloft er allsráð
andi á staðnum, en hug
myndin að Laundromat er að
bjóða fólki að þvo fötin sín, fá
sér að borða, lesa bók, drekka
kaffi eða vafra á netinu í þægi
legu og afslöppuðu umhverfi.
Frá morgni til kvölds
Dagurinn byrjar snemma á Laundro
mat og togar morgunverðarmat
seðillinn til sín bæði hungraða
ferðamenn, fólk á leið til vinnu og
barnafólk. Það er alltaf mikið að gera
á Laundromat og þegar morgun
vaktinni lýkur tekur hádegið við með
nýjum matseðli sem er í gangi langt
fram á kvöld. Nú er hægt að njóta
sérstaks morgunverðarmatseðils
allt til 16.00 á daginn en um helgar
er einnig boðið upp á hinn klassíska
„brunch“matseðil með ýmsum nýj
ungum á borð við bláberja og ban
anapönnukökur.
Nýr matseðill
Glenn Moyle er yfirmatreiðslumað
ur staðarins og er frá NýjaSjálandi.
Eftir að hafa starfað sem matreiðslu
maður í NýjaSjálandi í nokkur ár
fékk hann ferðabakteríuna og ferð
aðist um heiminn áður en hann
kom til Íslands. Hann hefur unnið
að nýjum matseðli fyrir Laundro
mat sem nú er kominn í gagnið. Á
matseðlinum er enn að finna klass
íska rétti sem Laundromat er rómað
fyrir en Glenn hefur bætt við nýjum
og spennandi réttum eins og Laun
dromat antipasti sem er tilvalinn
snarlréttur til þess að njóta með vin
um yfir góðum drykk. Glenn leggur
mikla áherslu á að nota alltaf fers
kasta og besta hráefni sem völ er á
hverju sinni og að allir réttir Laun
dromat séu lagaðir frá grunni.
Laundromat Café er opnað klukk
an 8.00 alla virka daga og er opið til
24.00. Á föstudögum og laugardög
um er opið til 01.00. Laundromat er
við Austurstræti 9 í Reykjavík og er
síminn 5877555 og heimasíðan er
www.thelaundromatcafe.com. n