Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 19
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Kynningarblað - Matur & veitingar 3
Einfaldleiki og alúð
P
rimo er veitingastað-
ur í hjarta miðborgarinn-
ar sem býður upp á alvöru
ítalska matargerð þar sem
ferskleiki og gæði hráefn-
isins fær að njóta sín. Einfaldleiki
og alúð einkennir matreiðsluna og
sólin og gleðin sem umlykur Mið-
jarðarhafið fær að skína í gegnum
matinn frá Primo.
Lagað frá grunni
Á matseðli Primo finnur þú
heimagert pasta eins og lasagne,
gnocchi og cannelloni ásamt
klassískum pastaréttum frá hin-
um ýmsu héruðum Ítalíu. Ricotta-
osturinn hefur verið fastur liður
á borðum Ítala frá bronsöld en á
Primo er hann lagaður frá grunni.
Bræðurnir Kristinn og
Brynjar, matreiðslu-
menn Primo, leggja
gríðarlega áherslu á
meðhöndlun hráefn-
isins, að það sé gert af
alúð og af virðingu fyr-
ir hinni ítölsku matar-
hefð. Á matseðlinum
er svo einnig að finna
ljúffengt antipasti, úr-
val af kjöti og fisk og
á eftirréttaseðlinum
leynist að sjálfsögðu
panna cotta og tiramisu
ásamt öðru góðgæti.
Napólska pitsan
Á Primo eru bakaðar
einstakar pitsur. Brynj-
ar hefur hartnær ára-
tuga reynslu af pitsubakstri en þegar
hann hóf störf á Primo langaði hann
að færa sig nær uppruna pitsunnar
eða til napólsku pitsunnar. Napólska
pitsan, sem má kalla móður pitsunn-
ar, er einfaldleikinn uppmálaður þar
sem hvert hráefni fær að njóta sín til
fullnustu. Deigið blæs mikið út en er
þunnt og stökkt. Sósan er búin til úr
þroskuðum og sólkysstum tómötum
og ofan á sósuna er lagður ferskur
mozzarella-ostur.
Fersk basilíka og
jómfrúarólífu-
olía fullkomna
svo þessa klass-
ísku og margróm-
uðu pitsu. Á þess-
um grunni eru
byggðar dásam-
legar pitsur og á matseðlinum munu
allir finna pitsu við sitt hæfi.
Fullkominn endir
Eftir góða máltíð er það til siðs í
mörgum héruðum Ítalíu að bjóða
upp á kælt Limoncello. Limoncello
er líkjör sem er búinn til úr sítrón-
um og er sætur og súr á sama tíma.
Limoncello á sér langa sögu á Ítal-
íu og trúa því margir að drykkurinn
hafi lækningarmátt. Hvort það sé
satt eður ei vita Kristinn og Brynj-
ar að Limoncello er hinn fullkomni
endir á góðri máltíð og bjóða mat-
argestum Primo að ljúka máltíðinni
á ítalska vegu.
Veitingastaðurinn er í fallegu
húsi við Bankastræti í Reykjavík.
Þar er hugguleg stemning og kjörið
umhverfi fyrir rómantíska máltíð,
gæðastund með fjölskyldunni og
borðhald fyrir stærri hópa. Primo
býður bæði upp á hádegisverð og
kvöldverð og í hádeginu er boðið
upp á pitsu-, pasta- og fisk dags-
ins á einstaklega góðu verði. Elhús-
ið er opnað klukkan 11.30 alla daga
nema laugardaga þegar opnað er
klukkan 12.00 og er opið til 22.00 á
virkum dögum en til 23.30 á föstu-
dögum og laugardögum. Borða-
pantanir eru í síma 553-4200 og
finna má matseðla og aðrar upplýs-
ingar á vefsíðu Primo, www.primo.
is. n
Alvöru ítölsk matargerð hjá Primo
Alúð Á Primo eru
bakaðar einstakar
pitsur. MyNd ArNAsoN.Me
Hlýlegt Andrúmsloftið
á Primo er hlýlegt og gott.
MyNd ArNAsoN.Me
Hráefni
Mikil áhersla
er lögð á
meðhöndlun
hráefnisins.
MyNd ArNAsoN.Me