Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 20
Vikublað 18.–20. ágúst 20154 Matur & veitingar - Kynningarblað
Úrvalskjöt og hágæðavín
Hrossakjötið sérstaklega vinsælt
Þ
egar sest er til borðs í Gamla
vínhúsinu, í hlýlegu og vina-
legu umhverfi sem minnir
helst á ítalskan vínkjallara,
fer óhjákvæmilega um þig
sælutilfinning. Sérstaklega ef þú
kannt að meta gott kjöt og gott vín
á góðu verði. Þjónustufólkið er auk
þess einstaklega vinalegt og lætur
þér líða enn betur.
Fyrsta flokks hráefni
Húsið sérhæfir sig í grilluðum steik-
um, en vinsælustu diskarnir eru
nautasteik með bérnaisesósu og
frönskum kartöflum, hrossafille
piparsteik með rjómalagaðri græn-
piparsósu og bakaðri kartöflu og
hrefnusteik með grænpiparsósu,
grænmeti og bakaðri kartöflu. Hrá-
efnið er alltaf ferskt og fyrsta flokks.
Unnur Arna Sigurðardóttir, einn
eigendanna, nefnir sérstaklega að
hrossakjötið hafi aukist gríðarlega í
vinsældum á undanförnum árum,
sérstaklega á meðal Íslendinga, og
nú er meira beðið um það en nauta-
kjötið.
Rétta vínið
Það skiptir miklu máli að sötra á
rétta víninu með steikinni og þar
komum við svo sannarlega ekki að
tómum kofunum. Gamla vínhúsið
býður upp á úrval hágæðavína frá
Suður-Ameríku, Ástralíu, Bandaríkj-
unum og Evrópu. Eigendur staðar-
ins eru sérstaklega vel að sér í þess-
um fræðum, en þau hafa ferðast víða
um heim til að heimsækja vínhéruð
og kynna sér framleiðsluna.
Frekari upplýsingar um matseðil-
inn og bókanir má finna á vefsíðunni
www.gamlavinhusid.is, en Gamla
vínhúsið er staðsett bæði í Reykjavík
og Hafnarfirði. n
Gamla vínhúsið Hlýlegt
og gott andrúmsloft.
Vínúrval Það skiptir miklu máli að
hafa rétta vínið með steikinni.
Piparsteikin svíkur engan.
Góðgæti Nautasteik með bérnaisesósu.