Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 22
Vikublað 18.–20. ágúst 20156 Matur & veitingar - Kynningarblað
Kjúklingastaðurinn Suðurveri fagnar 48 ára afmælinu
Einn elsti skyndibita-
staðurinn í Reykjavík
K
júklingastaðurinn Suður-
veri, Stigahlíð 45–47, er lík-
lega elsti starfandi skyndi-
bitastaðurinn í Reykjavík.
Staðurinn hóf starsfemi sína
í Suðurveri árið 1967 og fagnar því 48
ára afmæli sínu nú í ár. Jón Eyjólfs-
son tók við rekstri veitingastaðarins
í september 2006 og er þriðji eig-
andi hans. Ári síðar var Jón búinn að
stækka og endurnýja allan veitinga-
staðinn.
Gómsætur
kjúklingur
Kjúklingastaður-
inn í Suðurveri sér-
hæfir sig auðvitað í
kjúklingaréttum. Sér-
kryddaðir steiktir
kjúklingabitar eru án
efa aðalsmerki staðar-
ins en á matseðl-
inum kennir ým-
issa grasa. Á kvöldin
er hægt að fá heilan
grillaðan kjúkling
sem er hægeldað-
ur upp á gamla mát-
ann. Þannig helst hann
bragðmikill og safa-
ríkur. Karríkjúklingur-
inn er líka gríðarlega
vinsæll, borinn fram
með hrísgrjónum og
dásamlegri karrísósu.
Kjúklingaborgarinn er lag-
aður úr heilum kjúklinga-
bringum og borinn fram með
frönskum sem sumir vilja meina
að séu þær bestu í bænum.
Ekki bara kjúklingur
Kjúklingastaðurinn í Suður-
veri ber nafn með
rentu en það útilokar þó ekki aðra
gómsæta rétti af matseðlinum. Fyrir
hina sem kjósa hamborgara þá verða
þeir alls ekki sviknir og er djúp-
steikti fiskurinn fyrir löngu orðinn
að föstum lið vikunnar hjá mörg-
um íbúum í hverfinu. Nautasteikin
bráðnar í munni með kryddsmjöri,
smjörsteiktum sveppum og bragð-
góðri sósu sem er að sjálfsögðu lög-
uð á staðnum.
Reyndar eru
allar sósurn-
ar sem fást
á Kjúklinga-
staðnum
heimalagað-
ar frá grunni rétt
eins og hrásalatið,
sem er víst að nálgast
heimsfrægð. Mikil leynd
er yfir uppskriftinni sem
hefur haldist eins frá
opnun, 1967. Það er
lagað daglega og er
því alltaf ferskt. Jón
segir að svo vin-
sælt sé það að fyrir
hver jól komi heilu
fjölskyldurn-
ar sem kaupa
það í magni með
jólasteikinni.
Þverskurður
samfélagsins
Þéttur hópur
fastagesta hefur haldið
tryggð við staðinn í gegnum
árin. Það er alltaf mikið að gera
á Kjúklingastaðnum í Suðurveri
og í hádeginu og á kvöldin er
staðurinn iðandi af lífi. Kúnna-
hópurinn er breiður og á hverj-
um degi sest þverskurður af
þjóðfélaginu niður til að seðja
hungrið eða grípur matinn með
heim. Jón segir að staðinn sæki
allir, allt frá unglingunum í hverfinu,
þjóðþekktum einstaklingum, eldri
borgurum, að fjölskyldufólki.
Notalegt umhverfi
Jón leggur mikið upp úr því að skapa
traustum viðskiptavinum sínum
huggulegt andrúmsloft. Bæði bekk-
ir og borð eru stór og breið þannig
að vel fer um fólk og er allur matur á
staðnum borinn fram á alvöru borð-
búnaði og sker sig þannig úr frá öðr-
um skyndibitastöðum.
Kjúklingastaðurinn í Suðurveri
er opinn alla daga frá kl. 11.00 til
21.30. n
„Mikil leynd er yfir
uppskriftinni sem
hefur haldist eins frá
opnun, 1967.