Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Síða 28
Vikublað 18.–20. ágúst 201520 Lífsstíll
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
Betri kostir í brauðmeti
n Hugleiðingar um brauðmeti n Hugmyndir fyrir millimál n Fjölbreyttir möguleikar
Þ
egar fólk ákveður að taka sér
hollari og betri lífsstíl fyrir
hendur er oft þörf á miklum
breytingum. Eitt það erfið-
asta virðist vera að minnka
brauðneysluna, flestir eiga í svoköll-
uðu ástar-/haturssambandi við
brauðmeti. Viðkomandi veit að hvítt
brauð er ekki hollt í miklu magni, en
það er bara svo lúmskt gott að það
er erfitt að segja skilið við það. Þegar
ég var yngri var brauð talið mun
hollara en það er í raun og veru, það
voru allir með brauð í nesti á mín-
um skólaárum og oftar en ekki var
það hvítt brauð. Það gat maður svo
einnig keypt í mötuneyti skólans.
Nú er öldin önnur og þekk-
ingin orðin meiri og betri og því
mikið lagt upp úr hollari kostum í
brauðmeti. Enda er mikilvægt að
halda góðum heilkornum og trefj-
um í mataræðinu fyrir meltinguna
og annað. Með því að velja betri
kostina í brauðmetinu ertu að velja
vörur sem eru minna unnar heldur
en þær sem innihalda hvítt hveiti.
Að velja vel
Betri kostir eru til dæmis flatkökur,
speltrúgbrauð, hrökkbrauð, rískök-
ur, maískökur og svo framvegis. Svo
er einnig mikilvægt að velja hollt
meðlæti ofan á. Sumt hollustubrauð
á það þó til að innihalda mikið af
fræjum og getur því verið mjög hita-
einingaríkt.
Einnig er nauðsynlegt að hafa
bak við eyrað að þrátt fyrir að þetta
séu betri kostir þegar kemur að
brauðmeti, er mikilvægt að halda
fjölbreytileika í fæðunni yfir daginn.
Sjálf vel ég mér yfirleitt eitt af þeim
millimálum sem ég deili með hér á
síðunni yfir daginn í bland við aðra
hollustu.
Hugmyndir að millimálum sem
innihalda brauðmeti
Ég ákvað að taka saman nokkur
af mínum uppáhalds millimálum
sem innihalda brauðmeti, að sjálf-
sögðu með hollu meðlæti. Það er
ávallt mikilvægt að vera meðvit-
aður um hversu mikið er notað
af meðlætinu. Það að borða mik-
ið af hollum mat getur dregið úr
árangrinum eða valdið stöðnun.
Þetta snýst allt um að velja betri
kostina í hófi.
Gangi ykkur vel og þangað til
næst, Ale Ræktardurgur. n
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com
Úrvalið gott Ég tók saman brauðmetið á heimilinu mínu, ásamt því meðlæti sem ég er vön að nota ofan á, til þess að sýna ykkur að það
þarf alls ekki að vera leiðinlegt að velja betri kostina þegar kemur að brauðmetinu.
Súkkulaðirískökur með banana Hér
erum við með glútenlausar súkkulaðirískök-
ur sem ég fer sérstaklega í Kost að kaupa.
Þessar eru snilld til að grípa í ef mann langar
í eitthvað sætt. Ég nota tvær slíkar kökur og
sker niður miðlungsstóran banana sem ég
deili á þær báðar.
Gott á grillið Það hafa flestir hlegið að
mér þegar ég tala um að grilla flatkökur, en
um leið og þú smakkar muntu skilja af hverju
ég geri það. Ein besta uppgötvun sem ég hef
gert. Einnig grilla ég oft kjúklingaskinkuna
með þegar það á við.
Grillaðar flatkökur með avókadó
og kjúklingaskinku Þessi blanda er án
efa mín uppáhalds! Hér erum við að tala
um tvær grillaðar flatkökur, tvær grillaðar
kjúklingaskinkur og 50 grömm af avókadó
(um það bil hálfur) sem ég deili á báðar.
Til að setja punktinn yfir i-ið bæti ég við
iceberg-salati og smá salti ofan á avókadóið.
Flatkökur með léttsmurosti og
kjúklingaskinku Þessa blöndu má
einnig grilla, en í þetta sinn sleppti ég því.
Sem millimál er flott viðmið að fá sér tvær
flatkökur, hóflega af léttsmurostinum og
kjúklingaskinkuna. Oft smyr ég flatkök-
una og set svo á grillið, þannig bráðnar
smurosturinn og þetta minnir helst á
grillaða samloku.
Rískökur með lífrænu hnetusmjöri
Þessi blanda er einstaklega hentugt
millimál og nýtist einnig virkilega vel sem
máltíð fyrir æfingar. Þarna er mikil orka sem
er sniðugt að nýta í átökunum. Það sem ég
bendi hins vegar á er í rauninni tvennt, sem
er mikilvægt að hafa bak við eyrað. Það
skiptir máli hvernig hnetusmjör þú kaupir
þér, sum á markaðinum innihalda mikið af
viðbættum efnum eins og sykri. Ég kaupi
yfirleitt frá Sollu eða H.Berg. Ég fæ mér
tvær svona kökur og nota eina matskeið af
smjörinu og deili á báðar. Í einni matskeið af
hnetusmjöri eru um 100 hitaeiningar og því
auðvelt að bæta slatta af hitaeiningum við
með of miklu magni, þó svo að það líti ekki
út fyrir að vera mikið.
Hrökkbrauð með kotasælu, epli og
kanil Ég fæ mér yfirleitt tvö Finn Crisp
hrökkbrauð sem millimál. Ég set fyrst kota-
sæluna á, sker niður fjórðung af grænu epli
og strái smá kanil yfir fyrir enn betra bragð.
Flatkökur með banana Þú last rétt!
Flatkökur með banana er ein mesta snilld
sem ég veit og alveg fáránlega góð blanda.
Þá fæ mér tvær slíkar í millimál með
miðlungs banana sem ég deili á þær báðar.