Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Blaðsíða 37
Vikublað 18.–20. ágúst 2015 Fólk 29
Beikon og stuð
á Skólavörðustíg
n Ljúfir tónar n Ilmandi beikon
B
eikonhátíðin á
Skólavörðustíg er
orðinn árviss við-
burður og set-
ur mikinn svip á
borgarlífið. Ljósmyndari
DV var á svæðinu á
laugardaginn og tók þess-
ar skemmtilegu myndir. n
ragga@dv.is
Mótmælahópurinn Þessir gárungar höfðu klætt verðandi brúðguma upp sem Valla
og létu hann halda á ljómandi fínu mótmælaskilti.
Þessi jakkaföt verða ekki toppuð
Jakob Frímann miðborgarstjóri horfir
dolfallinn á amerískan beikongest í mest
viðeigandi jakkafötum dagsins.
Maður-
inn með
nikkuna
Reynir
Jónasson
mætti með
nikkuna
og setti
skemmti-
legan svip
á hátíðina.
Á ferðinni Ellý Ármanns og dóttir hennar,
Ellý, kátar á leið upp Skólavörðustíginn.
Biðin eftir beikoninu Mikill mannfjöldi lagði leið sína á hátíðina um helgina. Flestir
sneru heim með beikon í maga!
H
ún segir sögur af konu sem
gleypti glerflygil í fullri stærð
og leyfir okkur að heyra
hvernig hann glamrar inni í
henni þegar hún hreyfir sig.
Hún skimar eftir jarðætum og kyrjar á
sinn einstaka hátt um ketti með ráða-
brugg í bakgarðinum. Hugmynda-
flugið virðist engin takmörk eiga sér
og hún talar stórkostlega fallegt mál.
Steinunn Eldflaug Harðardóttir,
eða DJ Flugvél og geimskip, er einn
sérstæðasti tónlistarmaður sem Ís-
land hefur alið. Mál manna er að hún
gæti verið hin nýja Björk – ef nógu
margir munu kunna að meta einstak-
an stíl hennar.
Þriðji hljómdiskur Steinunnar,
Nótt á hafsbotni, kom út nýverið og af
því tilefni hélt tónlistarkonan magn-
aða neðansjávartónleika á Húrra,
laugardagskvöldið 15. ágúst.
Steinunn er algjörlega óhrædd við
að fara ótroðnar slóðir í tónlist sinni
og skapar þannig hljóðheim sem er
engu líkur. Sjálf kallar hún hana el-
ektróníska furðutónlist. Röddin henn-
ar er eins og mjúkur bjölluhljómur
sem lokkar og hreyfir við þeim sem á
hlýða og það er hreinlega ekki hægt
að vera í vondu skapi þegar tónarnir
hljóma.
Vinur útsendara DV á tónleik-
unum lét þau orð falla að hann gæti
hlustað á hana endalaust, hún ætti
að lesa inn hljóðbækur. Þar hitti hann
naglann á höfuðið því Þórunn Hjart-
ardóttir, mamma Steinunnar, á far-
sælan feril í innlestri hljóðbóka,
sömuleiðis afinn, Hjörtur Pálsson,
og amma hennar, Steinunn Bjarman,
hefur lesið útvarpssögur á Rás 1.
Steinunn fékk tónleikagesti til að
föndra fiska, setja þá á prik, og mæta
með á tónleikana. Fiskarnir þetta
kvöld voru úr pappír, glimmer, sum-
ir prjónaðir og sumir með ljósi! Söng-
konan veitti glæsileg verðlaun fyrir
þrjá flottustu fiskana, boli og hljóm-
diska, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Í lokin dreif hún mannskapinn út
á götu þar sem hún tryllti lýðinn með
örlítilli flugeldasýningu eins og henni
einni er lagið. n
Verkfærin hennar Steinunnar Raf-
magnspíanó og trommuheilar og alls konar
glingur er meðal þess sem Steinunn notar til
að skapa einstaka tónlist sína.
Neðansjávar-
tónar og glamúr
n DJ Flugvél og geimskip með tónleika á Húrra
n Einstök gleði í furðulegri raftónlist
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Nótt á hafsbotni Svona
lítur nýja platan út.
Laser,
glimmer
og neon!
Sviðsmynd
Steinunnar
er einstök
á hverjum
tónleikum.
Hún klæðist
litríkum fatn-
aði með alls
konar áferð,
málar sig í
framan með
neonlitum og
festir ljós á
hendur sínar.
Steinunn í sínu nátt-
úrulega umhverfi
Þarna verða töfrarnir til!
MyNdiR SigtRygguR ARi