Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 2
„Konan hlaut
margfalt brot á
mjaðmagrind,
brotnaði á öðrum
fæti, auk þess
sem nokkur rif-
bein gáfu sig. Ætt-
ingi hennar segir
að læknar hafi
sagt að einungis
hafi munað hárs-
breidd að hún
týndi lífinu.“
Konan er stórslösuð og var í
öndunarvél fyrstu dagana.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Tæplega sjötug kona slasaðist al-
varlega þegar rútu frá Kynnis-
ferðum var bakkað á hana, við
Leifsstöð, fyrr í mánuðinum.
Framkvæmdastjóri Reykjavík Exc-
ursions segir að þetta hafi verið
óhapp. Ekki sé við aðstæður á slys-
stað að sakast.
Konan var farþegi í rútunni,
föstudaginn 8. janúar, og nýstigin
út við Leifsstöð þegar slysið varð
klukkan rúmlega ellefu um morg-
uninn. Hún átti sér einskis ills von
þegar rútunni var bakkað á hana
þar sem hún var á leið með tösk-
una að flugstöðinni. Komið hefur
verið fyrir bílastæðum fyrir rútur
brottfararmegin við flugstöðina
en ekki virðist vera gert ráð fyrir
gangandi vegfarendum, því þar
eru engar gangbrautir.
Konan hlaut margfalt brot á
mjaðmagrind, brotnaði á öðrum
fæti, auk þess sem nokkur rifbein
gáfu sig. Ættingi hennar segir að
læknar hafi sagt að einungis hafi
munað hársbreidd að hún týndi
lífinu. Hún var í öndunarvél fyrstu
dagana en gekkst undir aðgerð
tveimur dögum eftir slysið, sem
gekk vel.
Þetta er afar sorglegt mál, segir
Kristján Daníelsson, framkvæmda-
stjóri Reykjavík Excursions. „Þetta
er mjög vanur bílstjóri, sem taldi
að allir væru farnir af stæðinu
þegar hann færði rútuna til að
komast áfram, því fleiri þurftu að
komast að.“
Hann sagðist ekki telja að neitt
væri athugavert við aðstæður á
slysstað. „Plássið er ágætt og sem
betur fer er ekki mikið um slys.“
Konan er íslensk en búsett í Sví-
þjóð. Hún var á leið þangað þegar
slysið varð. Hún var flutt í sjúkra-
flugi til Svíþjóðar í fyrrinótt þar
sem við tekur erfið meðferð og
endurhæfing. Engin ákvörðun
liggur fyrir um málsókn gegn
fyrirtækinu vegna aðstæðna þegar
slysið varð. Samkvæmt rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Suðurnesj-
um, kemur fram í lögregluskýrslu
um atburðinn að konan hafi hlotið
minniháttar meiðsl. Engir rann-
sóknarmenn voru því sendir á
vettvang þegar slysið varð. Lög-
reglu sé venjulega tilkynnt um
alvarleg meiðsl af einhverjum
hlutaðeigandi, en það hafi ekki
verið gert í þessu tilfelli. „Ég veit
ekkert um það. Við köllum bara til
lögreglu og sjúkrabíl en við sjáum
ekki um að tilkynna lögreglu um
hversu alvarleg meiðslin voru,“
segir Kristján Daníelsson.
Rannsókn Í lögregluskýrslu er talað um minniháttar meiðsl
Rútubílstjóri bakkaði
á konu við LeifsstöðEngir æðarungar í sumar
Formaður ÖBÍ segir að
langir biðlistar, heimsmet
í hlutastörfum og fjársvelt
starfsendurhæfing taki sinn
toll.
Ungu fólki í hópi öryrkja hefur
fjölgað gríðarlega á Íslandi, þeir eru
hlutfallslega miklu fleiri en á öðrum
Norðurlöndum. Þannig eru sextán
prósent allra á aldrinum 30 til 39
ára með örorku, samkvæmt nýrri
skýrslu sem ber saman velferðar-
kerfi Norðurlanda.
Ellen Calmon, formaður Öryrkja-
bandalagsins, segir að einkum sé um
að ræða fjölgun ungra karla í hópi
öryrkja. Ástæðurnar liggi ekki fyrir
en karlmenn eigi oft erfiðara með
að leita sér hjálpar fyrr en of seint.
Ellen segir að stærsti hópurinn
á örorku sé þar vegna stoðkerfis-
vanda og geðraskana: „Lægstu
launin eru of lág og margir þurfa
að vera í endalausum aukastörf-
um til að láta enda ná saman. Við
eigum heimsmet í hlutastörfum,
hér er ekki óalgengt að leikskóla-
kennarar starfi við veisluþjónustu
á kvöldin eða afgreiðslufólk skúri
fyrir aðra eftir vinnu. Streita og
vinnuálag í langan tíma tekur sinn
toll og á endanum lætur eitthvað
undan.“
Norðurlandamet í örorku hjá ungu fólki
Fjöldi ungra öryrkja á Norðurlöndunum
Hlutfall öryrkja af íbúum í aldurshópnum á árinu 2014. Heimild Nososco, nor-
ræna tölfræðinefndin.
Og Ellen segir ennfremur að ekki
megi gleyma biðlistunum: „Fólk
er að bíða mánuðum saman eftir
nauðsynlegum aðgerðum. Og það
er gríðarlega löng bið eftir viðtali
við geðlækni, þá eru starfsendur-
hæfingarstöðvar víðast hvar fjár-
sveltar.“
Ellen segir að samfélagið þurfi að
taka á þessum málum í stað þess að
einblína alltaf á hvað öryrkjar séu
margir og gera sér í hugarlund að
eitthvað annarlegt liggi þar að baki:
„Það verða alltaf til einhverjir sem
eru með skerta starfsorku. En við
þurfum að horfa til þess hvernig er
hægt að bæta samfélagið til að koma
í veg fyrir fjölgun og styðja fólk til
sjálfshjálpar í staðinn fyrir að fjár-
svelta þau úrræði sem fyrir eru.“ |
þká
20-29 ára 30-39 ára
Danmörk 4,6%
Færeyjar 1,5%
Finnland 5,3%
Ísland 10,4%
Noregur 3,9%
Svíþjóð 9,1%
Danmörk 9,6%
Færeyjar 1,7%
Finnland 8,0%
Ísland 16,5%
Noregur 7,9%
Svíþjóð 6,8%
Athugasemd. Sagt var frá því í Fréttatímanum í síðustu viku að Jón Gnarr
undirbyggi nýja Vaktar-seríu sem nefndist Öryggisvaktin og að fjórða þátta-
röð af Pressu hefði verið sett á ís. Jón Gnarr segir þetta rangt. Aðeins hafi
verið til skoðunar að framleiða jóla- og áramótaþátt af Næturvaktinni.
Beðist er velvirðingar á þessu. Hann segir jafnframt að ekkert hafi verið
ákveðið um framhald af Pressu 4.
Skáldsagan Víti í Vestmannaeyjum eftir
Gunnar Helgason verður að kvikmynd á
næsta ári. Bókin kom út árið 2011 og er
sú fyrsta af þremur um sorgir og sigra
fótboltastráksins Jóns Jónssonar. Verk-
efnið hlaut styrk úr handritasjóði frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands í fyrra en
það er SagaFilm sem framleiðir kvik-
myndina. „Mér til mikillar gleði keypti
SagaFilm réttinn árið 2011 og þetta hefur
verið í undirbúningi síðan,“ segir Gunn-
ar sem er í skýjunum með verkefnið.
„Við Jóhann Ævar Grímsson erum að
vinna í handritinu en stefnum á
að klára það í mars. Við gerðum
treiler að myndinni í vikunni
sem verið er að klippa núna.
Það er allt að gerast.“
Nýjustu talningar sýna að anda-
varpið við Reykjavíkurtjörn er enn
í erfiðri stöðu en þó gekk varpið
vel sumarið 2015 hjá nokkrum
andategundum. Hjá duggönd
hefur fjöldi unga ekki verið eins
hár í 30 ár en alls 27 ungar sáust.
Kríuvarpið er líka blómlegt eftir
að hafa rétt úr kútnum þegar nýtt
varpsvæði myndaðist í friðland-
inu. Slæmu fréttirnar eru hins-
vegar þær að engir æðarungar
komust á legg í sumar og afkoma
stokkandar var einnig léleg. Kalt
tíðarfar, fæðuskortur og afrán eru
líklegustu ástæðurnar.
Víti í Vestmannaeyjum
verður að kvikmynd
Gunnar Helgason er
kampakátur með það
að fótboltastrákurinn
Jón Jónsson fari á hvíta
tjaldið.
2 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016