Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 42
Mynd | Rut Sigurðardóttir Erlendur Haraldsson dulsálarfræðingur hefur rannsakað reimleika og upp- lifanir fólks af dulrænum atburðum alla sína starfs- ævi og leitað um leið svara við spurningum sem flestir vísindamenn sniðganga. Erlendur gaf nýlega út bók um upphaf spíritismans hér á landi og Indriða Indriðason, miðilinn sem gerði allt vitlaust í Reykjavík í upphafi síðustu aldar. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Spíritismi hefur alltaf verið mjög sterkur á Íslandi. Líklega er það vegna þjóðtrúarinnar en það er þó fyrst og fremst vegna kynna fjölda manna af Indriða Indriðasyni, merkilegasta miðli sem uppi hefur verið á Íslandi,“ segir Erlendur Haraldsson, prófessor í dulsálar- fræði, sem hefur ritað fjölda bóka og greina um dulræn málefni, nú síðast um Indriða Indriðason miðil og upphaf spíritisma í Reykjavík. Setti allt á fleygiferð á fundum Það var fyrir algjöra tilviljun að Indriða Indriðasyni, ungum sveitastrák úr Dölunum, var boð- ið í heimsókn árið 1905 til Einars H. Kvaran, eins helsta spíritista Reykjavíkur, þar sem hann upp- lifði hæfileika sína í fyrsta sinn. „Einar H. Kvaran hafði lesið sér til um spíritisma og verið að prófa sig áfram með miðilsfundi en það gerðist sama og ekki neitt fyrr en Indriði kom til sögunn- ar,“ segir Erlendur. „Indriði var nýfluttur í bæinn og bjó heima hjá Karlottu nokkurri sem var í hópnum hans Einars og bauð honum að mæta á fund. Indriði var ekki fyrr sestur en hlutir í herberginu fóru á fleygiferð og borðið kippist til. Lætin voru svo mikil að Indriði varð hræddur og vildi hlaupa í burtu. Hópur- inn róaði hann niður og upp frá þessu héldu þau reglulega fundi með Indriða.“ „Það leið ekki á löngu áður en Indriði byrjaði að falla í trans og farið var að tala í gegnum hann og eins fóru að gerast ýmis önnur fyrirbæri eins og ljósfyrirbæri og ósjálfráð skrift. Heima hjá Einari voru líka hljóðfæri sem byrjuðu að hljóma líkt og spilað væri á þau án þess að nokkur kæmi nálægt þeim. Svo fóru að heyrast raddir sem venjulega ein- hver í hópnum þekkti og það var hægt að tala við þessar raddir, Miðillinn sem gerði allt vitlaust í Reykjavík Indriði Indriðason miðill ólst upp í Dölunum við Breiðafjörð. Hann flutti um tvítugt til Reykjavíkur og var fyrir tilviljun boðið á miðilsfund árið 1905 þar sem ótrúlegir hlutir áttu sér stað. Indriði var einn umtalaðasti maður Reykja- víkur á árunum 1905-1909. Bók Erlends er gefin út í Englandi og kallast Indridi Indridason – The Icelandic Physical Medium. Erlendur Haraldsson lærði heimspeki, vann sem blaðamaður og bjó með uppreisnarmönnum í Kúrdistan áður en hann ákvað að nema dulsálarfræði í Þýskalandi. Þegar Erlendur hafði lokið doktorsprófi, árið 1974, flutti hann aftur heim til Íslands og þá var hans fyrsta verk að gera rannsókn á upp- lifun þjóðarinnar af dulrænum atburðum. Þessi fyrsta rannsókn sinnar tegundar leiddi í ljós að tveir þriðju þjóðarinnar höfðu orðið fyrir einhvers- konar dulrænni reynslu; komist í kynni við reimleika, hugsanaflutning eða átt merkilega drauma. Áhugi Erlendar á því yfirnáttúrulega varð kveikjan að stofnun styrktarsjóðs við Háskóla Íslands fyrir ekki alls löngu. Sjóðurinn styrkir rannsóknir á dulrænum fyrirbærum og dulrænni reynslu. Tilraunafélagsfundir voru haldnir heima hjá prófessor Haraldi Níelssyni á efri hæðinni í Mið- stræti, allt þar til íbúar neðri hæðar kvörtuðu um hávaða og flytja þurfti fundina annað. Einar Kvaran bjó í þessi húsi við Stýri- mannastíg þar sem hópur spíritista hittist reglulega árið 1907, áður en Tilrauna- félagið var stofnað í Þingholtunum. HVAÐ FÆR ÞINN BÓNDI Í DAG? HERRASVUNTA NÚ 3.894 KR ÁÐUR 5.990 KR MICHAEL KORS ÚTSALA SKÓR -30% KRINGLUNNI 42 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.