Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 43

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 43
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 Lau- gardaga kl. 11-15 innréttingar danskar í öll herbergi heimilisins Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framh- liðum, klæðningum og einingum, geFa þér endalausa möguleika á að setja saman þitt eigið rými. við hönnum og teiknum Fyrir þig Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. sterkar og glæsilegar þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. be tr i s to Fa n sem var mjög óvenjulegt,“ segir Erlendur. „Indriði var einn af fáum frægum miðlum sem kallaði fram slíkar raddir sem allir heyrðu og svo eru líka til lýsingar á því þegar hann tókst á loft.“ Gerðu tilraunir á Indriða Upplifanir hópsins sem hittist reglulega heima hjá Einar H. Kvaran við Stýrimannastíginn í Reykjavík voru allar skráðar skilmerkilega niður í dagbækur og urðu lýsingarnar sífellt ítar- legri og magnaðri eftir því sem á leið. „Það er auðséð á því hvern- ig Haraldur Níelsson og Einar Kvaran gera sínar rannsóknir að þeir þekkja rannsóknir á frægum erlendum miðlum. Þeir stofnuðu, ásamt fleiri mektar- mönnum og konum í Reykjavík, félag í kringum Indriða sem kallaðist Tilraunafélagið og sömdu þau við Indriða um að hann héldi bara fundi með þeim og engum öðrum. Félagið var til húsa í hinu svokallaða Til- raunahúsi í Þingholtunum sem samanstóð af sal á neðri hæð- inni og lítilli íbúð fyrir Indriða á efri hæðinni. Á fundunum, sem voru haldnir í miklu myrkri, við lítinn kolaofn, var mjög gaum- gæfilega gætt að því að engin svik væru í tafli, t.d. með því að binda Indriða niður. Indriði var umtalaðasti maðurinn í Reykja- vík á þessum tíma, frá árunum 1905-1909, og fundirnir voru það vel sóttir að það var iðulega fullsetið á bekkjunum í salnum sem tók um 60 manns.“ Fann hundrað ára draug Um hvern einasta fund Til- raunafélagsins var gerð fundar- gerð þar sem allt sem átti sér stað var skráð niður. Fundar- gerðirnar höfðu verið týndar áratugum saman þegar þær fundust í dánarbúi ekkju séra Jóns Auðuns og komust í hendur Erlends. „Það voru þessar fund- argerðir sem urðu til þess að ég ákvað að rita sögu Indriða. Það eru þarna margar magn- aðar lýsingar en eitt atvik finnst mér standa upp úr. Á einum fundinum myndaðist ljósstólpi þar sem birtist mynd af manni sem sagðist vera fabrikant Jensen frá Kaupmannahöfn. Þessi fabrikant Jensen tilkynnti viðstöddum að það væri eldur í Kaupmannahöfn en hvarf svo aftur. Hann birtist svo aftur í lok fundarins og sagði að búið væri að ná tökum á eldinum. Á þessum tíma var ekkert fjar- skiptasamband en þegar næsta skip kom frá Kaupmannahöfn voru fundarhaldarar fljótir að ná sér í Politiken þar sem bak- síðufréttin var um brunann í Kaupmannahöfn. Bruninn hafði átt sér stað sama kvöld og fund- urinn og þetta töldu margir vera endanlega sönnun fyrir hæfi- leikum Indriða,“ segir Erlendur sem ákvað að grafast fyrir um þennan fabrikant Jensen við gerð bókarinnar, hundrað árum eftir miðilsfundinn í Þingholt- unum. „Það hafði komið fram á síðari fundum að fabrikant Jensen hét Emil að skírnarnafni og ég fann hann á skjalasafninu í Kaupmannahöfn. Hann bjó við St. Kongegade, í næsta húsi við brunann.“ Hefur aldrei upplifað neitt Indriði miðill var alltaf heilsu- lítill og fékk berkla mjög ungur. Hann lést 28 ára gamall á Vífils- staðahælinu. Erlendur dregur engar persónulegar ályktanir af heimildunum um Indriða miðil í bókinni heldur leggur einfald- lega fram þessar nýju upplýs- ingarnar ásamt fjölda annarra heimilda og ljósmynda. Erlend- ur hefur sjálfur aldrei upplifað slíka atburði og aðspurður seg- Haraldur Níelsson flutti skýrslu um rannsóknir Til- raunafélagsins á al- þjóðlegu þingi sálar- rannsóknamanna í Kaupmannahöfn árið 1921. ist hann trúa á allt og ekkert. „Ég hef vísindalegt viðhorf til veraldarinnar. Ég vil vita og ég vil vita með vissu ef mögulegt er. En það er svo ótalmargt sem við getum aldrei vitað og eigum engan möguleika á að vita og þá er það bara þannig. Ég veit að þessi fyrirbæri gerðust hjá Indriða en það er ekki hægt að spyrja af hverju. Það er eins og að spyrja af hverju jörðin snýst í kringum sólina. Mennirnir hafa búið til fyrir- bæri sem kallast þyngdarlög- mál en hversvegna það gerist vitum við ekki.“ |43fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.