Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 34
Mynd | Rut Sigurðardóttir
Gísli Ragnar Sumarliðason
greindist með sykursýki
níu ára gamall og bjóst
við að þurfa að glíma við
sjúkdóminn til æviloka. Eftir
að nýru hans gáfu sig, fyrir
fimm árum, fékk hann nýtt
nýra og bris og losnaði við
sykursýkina.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Líf mitt breytist svo mikið eftir
aðgerðina að þetta er eins og svart
og hvítt,“ segir Gísli Ragnar sem
ekki hefur þurft að sprauta sig
með insúlíni í rúm þrjú ár.
Aðdragandinn að líffæraígræðsl-
unni var langur. Eins og algengt
er meðal sykursjúkra, höfðu in-
súlíngjafir og langvarandi óregla á
blóðsykri valdið skemmdum á líf-
færum í líkama hans. Í ársbyrjun
2011 voru nýru Gísla Ragnars nán-
ast óstarfhæf. „Ég fékk mér hangi-
kjöt um jólin og bólgnaði allur
upp, saltið í matnum hreinsaðist
ekki út og það safnaðist upp mikill
vökvi í líkamanum. Ég fór beint
upp á spítala og var sendur í mína
fyrstu blóðskilun.“ Þegar ljóst var
að Gísli Ragnar væri með nýrna-
bilun á háu stigi þurfti að tengja
hann við vél sem hreinsar blóðið.
Í kjölfarið var hann skráður á biðl-
ista eftir nýra frá líffæragjafa.
Fram að þessu vann Gísli Ragn-
ar langa vinnudaga á sjó og við
þær aðstæður átti hann erfitt með
að passa upp á að blóðsykurinn
héldist jafn. Það reyndist erfitt að
borða reglulega og gefa sér tíma
til að finna út réttar insúlínsgjafir.
„Ég var orðinn mjög máttfarinn
og farinn að fá blóðsykursföll á
hverjum einasta degi. Líkaminn
brást við sykurfalli með svaka-
legum krampaköstum. Átökin
voru svo mikil að ég hafði enga
stjórn. Menn þurftu að setjast ofan
á mig til að koma í veg fyrir að ég
meiddist. Eitt sinn skall höfuðið á
mér svo harkalega í jörðina að ég
var með skakkt bit í langan tíma
á eftir.“
Algengt er að sykursjúklingar
séu í langan tíma að jafna sig eftir
alvarlegt blóðsykursfall. Allt upp
í rúman sólarhring. „Ég hefði nú
alveg þegið að fá að jafna mig í
einhvern tíma eftir svona köst en
oftast var ég kominn út að vinna
hálftíma síðar.“
Eftir að nýrun voru hætt að
starfa þurfti Gísli Ragnar að gefa
sjómennskuna upp á bátinn.
Hann var orðinn háður blóð-
skilun þrisvar í viku og erfiðara
var að stunda vinnu. „Ég ætlaði að
nýta tímann til að fara í skóla og
flutti á Keili til að sækja nám. Það
reyndist hinsvegar ómögulegt. Ég
þurfti að fara þrisvar í viku í blóð-
skilun á Landspítalanum þar sem
ég var tengdur við vélina í marga
klukkutíma. Ég náði ekki að sinna
fullu námi meðfram þessu en tók
þess í stað meiraprófið og vinnu-
vélaréttindi.“
Sykursýki Framfarir í líffæraígræðslum
Nýtt bris breytti lífi mínu
Tveimur árum eftir að nýru
Gísla Ragnars gáfu sig, kom kallið
og hann var sendur til Svíþjóðar.
Fundist hafði líffæragjafi sem talið
var líklegt að passaði. Læknarnir
lögðu það til að hann fengi ekki
aðeins nýtt nýra, heldur líka bris
úr sama einstaklingi. Aðgerðin
hafði verið framkvæmd á nokkr-
um Íslendingum áður og gefið
góða raun.
„Ég hafði aldrei heyrt um bris
ígræðslur áður og fór að hlæja
þegar læknirinn sagði mér frá
þessu. Mig grunaði ekki að það
væri mögulegt að lækna mig af
sykursýki og að ég gæti nokkurn
tíma lifað án þess að vera háður
insúlíni.“
Bróðir Gísla Ragnars fór með
honum til Svíþjóðar þar sem
aðgerðin var framkvæmd á Sa-
hlgrenska sjúkrahúsinu í Gauta-
borg 9. september 2013. Bæði bris
og nýra var grætt úr sama ein-
staklingi í Gísla Ragnar og er óhætt
að segja að árangurinn hafi verið
góður. Hann þarf þó, eins og allir
líffæraþegar, að vera á ónæmisbæl-
andi lyfjum það sem eftir lifir.
„Ég fékk reyndar smávægilega
sýkingu tveimur mánuðum eftir
aðgerðina og þurfti að fara aftur út
til að fá sérfræðiaðstoð. Síðan hef
ég varla orðið veikur og orkan og
mátturinn er öll að koma til baka.
Ég er farinn að geta unnið hluta úr
degi og það hentar mér vel.
Helsti munurinn felst í að þurfa
ekki að vera stöðugt að sprauta
mig. Ég var vanur að gefa mér
insúlín sex sinnum á dag og mér
reiknast til að þá hafi ég sprautað
mig 34 þúsund sinnum um ævina.
Ég hef ekki þurft á insúlíni að
halda síðan daginn fyrir aðgerð.
Líf mitt er allt annað.”
Í brúðarkjólnum stendur Arngerð-
ur María Arnardóttir í lyftunni
hans Spessa ljósmyndara í gömlu
Kassagerðinni á Laugarnesi.
Nýstigin úr brúðkaupsmyndatöku
lýsir tónlistarstjórinn Arngerður
sinni nýlegu hæstu hæð og gam-
alli lægð í lífinu.
„Ég hef gengið í gegnum erfið-
leika, eins og flestir, en það er
oftast eitthvað sem varir stutt og
annað betra tekur við,“ segir Arn-
gerður sem á erfitt með tímasetja
einn botn í lífinu. „Þegar einar
dyr lokast þá opnast aðrar. Ég veit
ekki hver minn botn í lífinu er,
þeir virðast svo smávægilegir eftir
á að hyggja en ég gekk í gegnum
skilnað og það tekur alltaf á.“
Arngerður segir sínar hæstu
hæðir í lífinu vera að eignast
börnin sín tvö og að giftast sínum
heittelskaða. „Við giftum okkur
núna um daginn hjá sýslumanni
og héldum hundrað manna veislu
með nánustu vinum og ættingj-
Frá skilnaði í
brúðarkjólinn
Lyftan #2
Spessi
Arngerður í brúðar-
kjólnum.
um. Það var plötusnúður á staðn-
um, dansað og haft gaman. Veisla í
okkar anda.“
Ég var vanur að
gefa mér insúlín
sex sinnum á dag
og mér reiknast
til að þá hafi ég
sprautað mig 34
þúsund sinnum
um ævina.
Gísli Ragnar Sumarliðason fór að hlæja þegar læknirinn
hans stakk upp á að hann undirgengist brisígræðslu.
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands
verða veitt í 13. skipti þann 5. mars næstkomandi.
Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en
skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 29. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir
eru þessir:
• Besta umfjöllun ársins 2015
• Viðtal ársins 2015
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2015
• Blaðamannaverðlaun ársins 2015
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu
Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma
ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni.
Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ,
www.press.is .
GERÐU
VEL VIÐ
BÓNDANN!
Komdu við og taktu
með þér Bóndasælu
í fallegri g jafaöskju
– aðeins 690 kr. í dag
Austurstræti 16 apotek.is
34 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016