Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 46
Heimild: Hélène Amieva, Camille Ouvrad, Caroline Giulioli et al. Self-Repor-
ted Hearing Loss, Hearing Aids, and Cognitive Decline in Elderly Adults: A
25-Year Study. Journal of the American Geriatrics Society 2015; Vol 63, Issue
10: 2099-2104.
Það borgar sig
ekki að bíða of
lengi með að fá
sér heyrnartæki
Unnið í samstarfi
við Heyrnartækni
Heyrnarskerðing er þriðja algengasta
króníska heilsufarsvandamálið sem
hrjáir eldri borgara. Um það bil 30%
einstaklinga á aldrinum 65 ára og
eldri eru með einhverja skerðingu á
heyrn og er talið að tíðnin fari upp
í 70-90% hjá þeim sem eru 85 ára
og eldri. Anna Linda segir að fjöldi
rannsókna hafi sýnt fram á að ein-
staklingar með skerta heyrn upplifi
oft einkenni þunglyndis og félagslega
einangrun. „Tvær langtímarannsóknir
hafa sýnt fram á tengsl milli heyrnar-
skerðingar og vitrænnar hrörnunar á
6 ára tímabili,“ segir Anna Linda.
Um 2/3 með skerta heyrn nota ekki
heyrnartæki
Þrátt fyrir algengi og heilsufarslegar
afleiðingar þá er heyrnarskerðing oft
vangreind og þar af leiðandi vanmeð-
höndluð. Um það bil tveir þriðju eldri
einstaklinga með skerta heyrn nota
ekki heyrnartæki. Þar til nú hefur lítið
verið vitað um áhrif notkun heyrnar-
tækja á heilsufar eldri einstaklinga,
sér í lagi á vitræna hrörnun.
Notkun heyrnartækja getur hægt á
vitrænni hrörnun
PAQUID er fyrsta rannsóknin þar
sem sýnt er fram á að heyrnartæki
geta haft fyrirbyggjandi áhrif og
hægt á vitrænni hrörnun hjá einstak-
lingum með skerta heyrn, segir Anna
Linda. „Eldri rannsóknir hafa sýnt
fram á að vitræn hrörnun er mark-
tækt hraðari hjá einstaklingum sem
eru með skerta heyrn og nota ekki
heyrnartæki.“
Samkvæmt PAQUID rannsókninni
eru heyrnarskertir einstaklingar sem
nota heyrnartæki í sömu áhættu á
að fá aldurstengda vitræna hrörnun
og fólk án heyrnarskerðingar. Niður-
stöður úr rannsókninni benda til
þess að þunglyndiseinkenni og
félagsleg einangrun ýti frekar undir
tengsl heyrnarskerðingar og vits-
munahrörnunar. Með því að laga að
einhverju leyti samskiptagetu með
notkun heyrnartækja getur skap
batnað, félagsleg virkni aukist ásamt
þátttöku í samskiptum sem hugsan-
lega getur hægt á vitrænni hrörnun.
Til mikils að vinna að bæta skerta
heyrn
„Þessar rannsóknaniðurstöður lofa
vissulega góðu en flest viljum við
halda vitrænni getu góðri eins lengi
og mögulegt er,“ segir Anna Linda.
„Við vitum nú þegar að notkun
heyrnartækja bætir vissulega heyrn
og hefur veruleg áhrif á lífsgæði.
Að taka virkan þátt í samræðum og
félagslífi er okkur öllum mikilvægt.
Það borgar sig sjaldnast að bíða of
lengi með að fá sér heyrnartæki og
þessar nýju rannsóknaniðurstöður
styðja það að mörgu leyti þó svo að
við viljum gjarnan sjá frekari rann-
sóknir á þessu áhugaverða efni,“
segir Anna Linda.
„Við vitum að það getur tekið tíma
fyrir heilann að venjast því að heyra
aftur hljóð sem hann hefur ekki
heyrt svo árum skiptir en einnig er
mögulegt að færni til að handleika
heyrnartæki sé ekki lengur fyrir hendi
þegar á hólminn er komið og ákvörð-
un um að bæta heyrn er tekin.“
Fá heyrnartæki til prufu
Fyrsta skrefið er að láta mæla heyrn-
ina og athuga hvort tímabært sé að
fara að nota heyrnartæki. „Ef þú ert
farinn að finna fyrir erfiðleikum með
að heyra, t.d. í fjölskylduboðum, á
fundum, í leikhúsi eða kirkjum, þá
er hætta á því að þú dragir smám
saman úr þátttöku í viðburðum þar
sem þú átt erfitt með að heyra,“
segir Anna Linda. „Sumir kvarta
undan því að aðrir tali óskýrt eða
lágt. Allt geta þetta verið merki um
að heyrn sé farin að skerðast.“
Hjá Heyrnartækni í Glæsibæ er
boðið upp á fríar heyrnarmælingar
og tæki til prufu í vikutíma. „Það
hjálpar mörgum að fá að prófa
heyrnartæki, sérstaklega þeim sem
hafa ekki notað heyrnartæki áður.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.heyrnartækni.is
Anna Linda Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur hjá Heyrnartækni í Glæsibæ, segir að
upplýsingar úr stórri rannsókn sýni að notkun
heyrnartækja geti mögulega hægt á vitrænni
hrörnun hjá eldri einstaklingum.
Taktu prófið
Finnst þér fólk muldra eða tala lægra en það var vant
að gera?
Finnur þú fyrir þreytu eftir langt samtal?
Þarft þú oft að biðja fólk um að endurtaka sig?
Átt þú í erfiðleikum með að fylgja samtali í fjöl-
menni eða klið?
Ertu með sjónvarpið eða útvarpið hærra stillt en
áður?
Áttu í erfiðleikum með að heyra hringingu í síma eða
píp í heimilistækjum?
Hafa aðstandendur haft á orði við þig að þú heyrir
illa?
Ef þú svarar einu eða fleiri
atriða játandi þá gæti verið að
heyrn þín sé farin að skerðast
og tímabært að láta mæla
heyrnina.
46 | |47fréttatíminn | HELGIN 30. OkTóbER-1. NóVEMbER 2015 fréttatíminn | HELGIN 30. OkTóbER-1. NóVEMbER 2015
auglýsingadeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Heilsa