Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 14
• R-Line ytra útlit og 18” álfelgur • Litað gler • Alcantara áklæði • Webasto bílahitari með fjarstýringu • Hraðastillir • Bluetooth fyrir farsíma og tónlist • Climatronic - 3ja svæða loftkæling • Bílastæðaaðstoð • Aðfellanlegt dráttarbeisli • Bakkmyndavél • Leiðsögukerfi fyrir Ísland • Panorama sólþak Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum Er ekki kominn tími á Tiguan? VW Tiguan R-Line er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að sportjeppa. Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is 5.990.000 kr. Sjálfskiptur og fjórhjóla drifinn Tiguan R-Li ne: Danskir kratar reyna að endurreisa fylgið með „vinsælli innflytjendastefnu“. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Frumvarp um hælisleitendur sem gerir dönskum stjórnvöldum kleift að taka verðmæti af flóttamönn- um, þegar þeir koma inn í landið hefur öruggan meirihluta í danska þinginu eftir að jafnaðarmenn lýstu stuðningi við það. Árni Páll Árna- son, formaður Samfylkingarinnar, segir þetta býsna langt gengið. Sjálf- ur myndi hann aldrei leggja neitt slíkt til. Frumvarpið er afar umdeilt og hefur valdið talsverðum titringi í dönskum stjórnmálum en þó meiri í nágrannalöndunum. Þá hafa Sam- einuðu þjóðirnar einnig gagnrýnt frumvarpið og sagði að það kunni að auka andúð á útlendingum. Margir hafa lýst því að það veki upp hugrenningatengsl við Þýskaland nasismans. „Já, auðvitað koma slík hugrenningatengsl upp,“ segir Árni Páll: „En ég skil líka þá grundvall- arafstöðu jafnaðarmanna að hver og einn, þiggi og leggi að mörkum eftir getu. Þá hafa þeir sagt að frum- varpið hefði orðið grimmilegra og harkalegra ef þeir hefðu ekki verið með á því. Mér finnst slíkar hug- myndir hinsvegar ekki réttlætan- legar við þær aðstæður sem eru uppi í heiminum, þar sem aðgerðir af þessum toga draga upp þá mynd af flóttafólki að það sé almennt vel stöndugt en vilji hafa gott af kerfinu á Vesturlöndum.“ Danskir jafnaðarmenn hafa tap- að fimm kosningum í röð og rekja það til innflytjendamála en Danski þjóðarflokkurinn, sem á núna ráð- herra innflytjendamála, hefur náð dagskrárvaldinu í málaflokknum. Ósigur Helle Thorning Schmidt er þannig rakinn til innflytjendmála en Mette Frederiksen, nýr formað- ur jafnaðarmanna, hefur tekið aðra stefnu og uppskorið betra gengi í skoðanakönnunum. Kalt stríð Meðan ekki sér fyrir endann á straumi f lóttamanna til Norður- landa ríkir kalt stríð milli Dana og Svía, sem eru mjög ósammála um hvernig eigi að nálgast málið. Þeir Flóttamenn Danskir kratar styðja umdeilt frumvarp um innflytjendur við litla hrifningu Árni Páll: Ég hefði ekki lagt þetta til Hælisleitendur á Íslandi Samkvæmt íslenskum útlendinga- lögum er heimilt að krefja hælis- leitanda um að standa straum af kostnaði við dvöl hans í landinu ef hann hefur efni á því. Ákvæðinu hefur aldrei verið beitt. Samkvæmt Útlendingastofnun er þó nokkuð um að hælisleitendur afþakki stuðning, til að mynda hvað varðar húsnæði. Þannig hafa níu hælis- leitendur afþakkað húsnæðisstuðn- ing frá mánaðamótum en þegið aðra þjónustu sem þeim stendur til boða. Alls hafa þrjátíu sótt um hæli það sem af er janúar en þeir voru fimmtán alls í janúar í fyrra. Nýr for- maður jafn- aðarmanna, hefur tekið aðra stefnu og upp- skorið betra gengi í skoð- anakönn- unum. sem búa í Kaupmannahöfn og starfa í Malmö eða öfugt, eru nú helmingi lengur til vinnu en annars, eftir að Svíar tóku upp vegabréfaeftirlit á Eyrarsundsbrúnni. Það gerðu þeir í kjölfar þess að Danir hleyptu flótta- fólki óhindrað áfram til Svíþjóðar þótt landið væri að sligast undan þunganum. Danir hafa tekið við tuttugu þúsund flóttamönnum, en Finnar og Norðmenn hafa tekið við þrjátíu þúsund flóttamönnum. Svíar hafa hinsvegar tekið við 160 þúsund og landið löngu komið yfir þolmörk. Danir brugðust við aðgerð Svía með því að loka landamærunum að Þýskalandi og taka upp vegabréfa- eftirlit. Samkvæmt dagskrá danska þingsins verða greidd atkvæði um frumvarpið í næstu viku en það hef- ur síður en svo bætt andrúmsloftið milli þjóðanna. 47% 16% Hinir ríku verða ríkari en millistéttin blankari Ráðstöfunartekjur eins prósents hinna tekjuhæstu hafa hækkað um 47% frá 1997 en ráðstöfunartekjur fólks með miðlungstekjur um 16%. Byggt á upplýsingum frá Hagstofunni úr skattframtölum á árunum 1997 til 2014. Borin er saman staða eins prósents hinna tekjuhæstu og fólks sem er í þremur tekjutíundum í kringum miðjuna (40, 50 og 60 prósent). Hækkun 558 þús. 1.195 1997 1.754 2014 Þeir tekjuhæstu Hver einstaklingur innan eins prósentsins fékk því sömu hækkun og þrettán einstaklingar með miðlungstekjur. Hækkun 44 þús. 275 1997 319 2014 Miðlungstekjuhópur Þeir tekjuhæstu Miðlungstekjuhópur Hækkun eiginfjáR 72% Lækkun eiginfjáR 26% Frá 1997 Til 2014 Frá 1997 Til 2014 -gse 14 | FréTTaTíminn | Helgin 22. jAnÚAr–24. jAnÚAr 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.