Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 64
HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA PÁSKAFERÐ 19. – 30. MARS ALBANÍA WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. Innifalið: Flug, hótel í London, hótel með hálfu fæði í Albaníu, öll keyrsla í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og aðgangur þar sem við á. VERÐ 329.900.- (per mann i 2ja manna herbergi) Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Ég sé mörg hjón í þessum hjónum, bæði hjón sem hafa verið nálægt mér og hjón sem ég hef verið með til meðferðar. Þau eru mjög dæmigerð fyrir óham- ingjusöm hjón sem hanga saman á óhamingjunni. Þau nærast á óhamingjunni og geta ekki án hennar verið. Þetta eru hjón sem geta aldrei skilið.“ En hvað myndir þú ráðleggja þeim ef þau mættu í hjónabands- ráðgjöf til þín? „Í fyrsta lagi ættu þau nátt- úrulega að hætta að drekka, það er alveg á hreinu. Og sennilega myndi maður vilja sjá þau skilja, en það er sjaldgæft að svona fólk taki það skref því þau kunna ekk- ert annað. Er líf þeirra þá tilgangslaust án óhamingjunnar? „Já, algjörlega. Þau sjá engan tilgang utan hennar. Svo eru það líka leyndarmálin sem tengja þau saman og það á líka við um yngri hjónin. Þau eru að koma sér upp þessu sama hegðunarmynstri og eiga eftir að verða alveg eins eftir 30 ár. Það er nefnilega býsna al- gengt að óhamingja verði burðar- aflið í hjónaböndum. Að gagn- rýna hvert annað og gera sig að fórnarlömbum er algengt í þessari stöðu, fólki finnst örlögin hafa úthlutað sér ómögulegum maka en sjá ekkert að sjálfum sér. Þetta eru píslarvottar sem lifa fyrir það í stað þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og skilja. Yngri hjónin eru líka óhamingjusöm þó þau séu alltaf að leika það leikrit að þau séu hamingusöm.“ Hvað veldur allri þessari óham- ingju? „Það er nú það! Þetta er kannski fólk sem laðast að nei- kvæðum kröftum og þrífst á þeim. Orsökin getur verið margvísleg en þessir einstaklingar koma mjög skaddaðir inn í sambandið og eru bæði í leit að einhverju sem þau fá ekki, hún kannski föðurímynd og hann að konu sem getur hjálpað honum.“ Hvaða ráð gefur þú ungu hjón- unum sem eru á hraðri leið til glötunar? „Að hætta að drekka! Alkóhól og brotin sambönd eru ekki góð blanda. Fara svo í meðferð og reyna að læra að tala saman eða skilja. Annars hitti ég Kára Stef- ánsson í leikhúsinu og hann sagði að hvorug hjónin ættu að skilja heldur bara mæta á þorrablót því þar eru allir svona.“ Gott um helgina Tónlistarkonan DJ Flugvél og Geimskip var að gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið Hellirinn bíður. Myndbandið er í leikstjórn Guðlaugar Míu Eyþórs- dóttur. Steinunn hefur hingað til alltaf gert tónlistarmyndbönd við tónlist sína sjálf, en vildi sjá hvað gerðist ef hún setti sköpunina í annarra hendur í þetta skipti. Steinunn og Guðlaug voru sam- mála um að vilja fá dýr til að leika í myndbandinu og tóku þær á það ráð að auglýsa eftir ólöglegum dýrum í Fréttablaðinu. „Okkur tókst meira að segja að hafa upp á afrískri lirfu og snák- um, en þegar til kastanna kom gátu þau ekki verið með í mynd- bandinu. Hins vegar fengum við skjaldbökur, hvíta kanínu og tvo naggrísi til liðs við okkur. Mesti tíminn við gerð myndbandsins fór eiginlega í að passa að dýrin réðust ekki hvert á annað eða skriðu undir eitthvað og týndust. Þetta var ótrúlega skemmtilegur dagur.“ Steinunn segir að myndbandið sé innblásið af raftónlistarmynd- böndum tíunda áratugarins, með þrívíðum mynstrum og öðru konfekti fyrir augað. Lagið sem myndbandið var gert við er af nýjustu plötu Steinunnar, Nótt á hafsbotni. | sgþ Auglýsti eftir ólöglegum dýrum til að leika í myndbandinu Gott að fræðast Hefur Evrópa staðið sig vel í að taka á móti flótta- mönnum? Hugo Brady ræðir viðbrögð Evrópu og er á því máli að okkur hafi tek- ist ágætlega til þegar hundruðum þúsunda mannslífa var bjargað og unnið var úr yfir milljón hælisum- sóknum. Fundurinn fer fram í Odda, 22. janúar klukkan 12. Gott að glápa Það er ekki til neitt sem heitir að sjá Pulp Fiction „of oft“. Svartir sunnudagar í Bíó Para- dís sýna Pulp Fic- tion og er sjaldan sem gefst tækifæri til þess að sjá stórmyndina þar sem hún nýtur sín best, á hvíta tjald- inu. Gott að skoða Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarborg á laugardaginn, klukkan 15. Listmálarinn Kristberg Ó. Pétursson verð- ur með ný olíu- og vatnslitaverk í sýningunni Hraun og mynd. Ragnhildur Jóhanns sýn- ir verkið Diktur, sjónræn ljóð sem verða til við krufningu bóka. Leikhús Virginia Woolf í Borgarleikhúsinu Óhamingja er algengt burðarafl í hjónaböndum Tístarar elda rétt Á nýju ári skal Elda rétt, ef marka má Twitter. Þjónustuna sendir matarpakka fyrir tvo eða fjóra einstaklinga. Með pakkanum fylgir hráefni í réttum hlutföllum við uppskrift og því fljótlegt að útbúa og laust við matarsóun. Grínistinn Halldór Halldórsson þakkar fyrir að vera laus undan veseninu sem fylgir því að rökræða hvað eigi að vera í matinn. Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, var sáttur með sinn pakka og segist aldrei aftur ætla út í búð nema til þess að kaupa snakk og nammi. Á sama tíma hefur markaðsstjórinn Anna Fríða Gísladóttir krýnt sig aðdáanda númer eitt af Eldum rétt. 64 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.