Fréttatíminn - 22.01.2016, Side 8
2005 Missti báða fætur fyrir neðan hné á Íslandi
2012 Fannst látinn í íbúð sinni einn og yfirgefinn
Sautjánda ágúst 2012
braust lögreglan inn í íbúð
í Grafarholti, til að kanna af
hverju 46 ára Pólverji sem
þar bjó hafði ekki svarað
í síma undanfarna daga.
Svarið mætti þeim í gætt-
inni. Hann hafði látist í
íbúðinni en þar með lauk
átakanlegri sögu Irenuszar
Gluchowski sem var frétta-
efni á Íslandi í kjölfar
þess að hann missti báða
fæturna.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Árið 2005 voru fleiri erlendir
verkamenn við störf í landinu en
nokkru sinni áður. Mikil bjart-
sýni var ríkjandi í þjóðfélaginu
og fáa óraði fyrir því að efnahags-
kerfi þjóðarinnar myndi hrynja
til grunna þremur árum síðar. Í
apríl sama ár kom hingað til lands
pólski verkamaðurinn Irenusz
Gluchowski, til að vinna. Hann var
myndarlegur, hraustur, tæplega
fertugur og var að flýja atvinnu-
ástandið heima fyrir. Hér var
blússandi góðæri, atvinnuleysi
lítið og fjöldi erlendra verkamanna
í landinu hafði slegið öll met. Árið
2012 var hann fluttur í líkkistu aft-
ur til Póllands, eftir að hafa gengið
í gegnum hörmungar, sem enginn
einn maður ætti að þurfa að þola.
Þegar lífið snerist við
Irenusz var vanur erfiðisvinnu,
búinn að vinna um alla Evrópu
sem farandverkamaður. Hann
fékk vinnu við línulagnir hjá fyrir-
tækinu Jarðvélum og var við störf í
Borgarfirði í júní 2005 þegar hann
veiktist og lífið snerist við. Hann
lýsti deginum örlagaríka ári síðar í
samtali við Friðrik Þór Guðmunds-
son, blaðamann á Eflingarblaðinu:
„Í lok júní komu notaðir gámar
sem átti að nýta undir vinnubúðir.
Gámarnir voru fullir af drasli, til
dæmis flöskum, blöðum, spýtum
og fleira. Ég og tveir aðrir starfs-
menn vorum settir í að þrífa
gámana og gera þá íbúðarhæfa.
Við byrjuðum að koma matsalnum
í stand, þar sem ég þreif meðal
annars ísskáp sem innihélt gamlar
matarleifar, Ég þreif líka aðra
skápa og bakarofn.“
Meðan á þessu stóð hruflaði
hann sig á höndum við störf, en
ekki alvarlega og vafði límbandi
um sárin til að stöðva blæðinguna.
Svartir útlimir
Þann 29. júní veiktist hann hastar-
lega í vinnunni og treysti sér ekki
til að vinna meira. Verkstjórinn
sagði honum að leggja sig í skóla-
húsinu þar sem vinnuhópurinn
hélt til. Síðar um daginn var hann
vakinn og sagt að verkstjórinn
segði að hann ætti að fara heim
til sín í Reykjavík. Samstarfsmenn
hans komu honum heim, þar sem
hann lagði sig.
„Ég vaknaði um sexleytið og
varð skelfingu lostinn þegar ég sá
að hendur mínar og fætur voru
svartir, Þá gerði ég mér grein
fyrir því að ég væri ekki bara með
flensu,“ sagði Irenusz í viðtalinu.
Hafði enga fætur
Hann neytti síðustu kraftanna til
að kalla til hjálp og var fluttur á
spítala. Hann vaknaði ekki fyrr en
tveimur mánuðum síðar. „Þegar
Góðærið Pólski verkamaðurinn var ekki með atvinnuleyfi og því ekki sjúkratryggður þegar hann slasaðist
Hvað
varð um
Irenusz?
ég komst aftur til meðvitundar sá
ég að ég hafði enga fætur.“
En það var ekki það eina. Hann
var heyrnarlaus á vinstra eyra,
með hálfa heyrn á því hægra.
Annað nýra hans var líka óvirkt.
Nágranninn sem hafði aðstoðað
hann við að komast á sjúkrahúsið
hafði fljótlega horfið á braut og
starfsfólkið gat því ekki vitað
nein deili á honum. Sjálfur var
hann of máttlítill til að veita
neinar upplýsingar. Haft var
samband við ríkislögreglu-
stjóra og ræðismann Pól-
lands og smám saman tókst
að bera kennsl á manninn, þó
ekki fyrr en það hafði verið
leitað í íbúð hans í Barmahlíð
þar sem vegabréf hans
fannst.
Réttindalaus all-
staðar
Hinn pólski Irenusz
reyndist ekki vera
með nein félags-
leg réttindi á Ís-
landi. Hann var
að vísu kominn
með kennitölu
en ekki atvinnu-
leyfi.
Stétt-
ar-
félag-
ið
Efling
gekk í hans mál og krafði vinnu-
veitandann svara þar sem Irenusz
hefði ekki verið með atvinnuleyfi.
Þá gagnrýndi félagið að málið
hefði ekki verið tilkynnt til lög-
reglu. Fyrirtækið viðurkenndi
mistök en sagðist hafa talið að það
væri nægilegt að hafa kennitölu.
Allar eftirlitsstofnanir brugðust
í máli hans og það var í raun
heilbrigðisstarfsfólki og
íslenskum almenningi
að þakka að hann var
ekki sendur út á guð og
gaddinn. Síðar kom í
ljós að sjúkleiki hans
stafaði af meningó-
kokkasýkingu, sem
veldur oft heila-
himnubólgu
en getur
líka valdið
losti sem
lýsir sér
með
bólgu í
útlim-
um.
Veik-
indin
þurfa
því ekki
og hafa
mjög
ósenni-
lega
haft
með að-
stæður á vinnustað að gera. Það
varð þó ekki ljóst fyrr en löngu
seinna, þar sem málið var ekki
rannsakað frá byrjun eins og lög
gera ráð fyrir.
Almenningur brást ekki
Torfi Geir Jónsson var í hópi að-
stoðarfólks nunnureglu Móður
Theresu, Kærleiksboðberanna,
sem bauðst til að aðstoða Ire-
nuzs eins og hægt væri. Þótt
hann dytti milli þilja í kerfinu og
væri í raun jafn réttlaus hér og
í Póllandi, segir Torfi Geir að ís-
lenskt samfélag hafi ekki brugðist
honum heldur reynt að rétta út
hjálparhönd. Þótt hann hafi ekki
haft nein réttindi hér á landi vildi
Landspítalinn ekki senda hann út
í óvissuna í Póllandi og taldi það
ekki læknisfræðilega verjandi.
Stoðtækjafyrirtækið Össur færði
honum gervifætur, Félag nýrna-
sjúkra safnaði fyrir nýjum tönnum
fyrir hann og nunnureglan Kær-
leiksboðberar aðstoðaði hann eftir
föngum. Irenusz hafði verið giftur
um hríð í Póllandi, hjónabandið
hafði endað með skilnaði en hann
átti einn son. Starfsfólk Landspítal-
ans efndi til samskota til að hægt
væri að kaupa geislaspilara og föt
fyrir hann og lagði líka drjúgt af
mörkum til að fá son hans og fyrr-
verandi eiginkonu hans í heim-
sókn hingað til lands en þar lagði
Rauði krossinn líka til fé.
Myndir/Friðrik Þór Guðmundsson
Ég ... varð
skelfingu lostinn
þegar ég sá að
hendur mínar
og fætur voru
svartir.
Irenusz var stoltur og einþykkur og þótt margir vildu hjálpa í kjölfar
slyssins fór það svo að hann lést einn og yfirgefinn og fáir fréttu af því.
8 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016