Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 77
| 9fréttatíminn | Helgin 22. janúar-24. janúar 2016
auglýsingadeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Vetrarfjör
Ævintýralegar fjallaskíðaferðir fyrir vestan
Borea Adventures býður upp á fjallaskíðaferð-
ir, dagsferðir og sex daga ævintýraferðir þar
sem skíðað er frá fjallstoppum niður í fjöru.
Unnið í samstarfi við
Borea Adventures.
Borea adventures er ferðaþjónustufyr-
irtæki á Ísafirði. nú yfir vetrartímann
býður það upp á sérhæfðar fjallaskíða-
ferðir sem hljóma hreint ævintýralega.
„Við höfum orðið vör við að fjalla-
skíðamennska hefur tekið rosalega
kipp síðustu árin. Við höfum verið að
halda fjallaskíðanámskeið og þangað
koma aðallega Íslendingar,“ segir
rúnar Karlsson, einn eigenda Borea.
Þá bjóða þau einnig upp á dags-
ferðir svo og lengri ferðir í 6 daga.
„Í dagsferðunum förum við frá
Ísafirði og í firðina í kring. Í lengri
ferðunum þá förum við norður í
jökulfirði á Hornströndum,“ segir
rúnar. eins og flestir vita, eru
Hornstrandir ekki í vegasambandi
og því siglt að eyðibýlinu Kvíum
sem hefur staðið autt síðan 1948.
„Við höfum verið að gera húsið upp
og nú er húsið að breytast í glæsi-
legan fjallaskála með uppábúnum
rúmum, sánabaði og fleiri þæg-
indum. Á morgnana er farið af stað
á báti sem skutlar fólki inn í nær-
liggjandi firði og þar er skíðað yfir
daginn. Síðan er haldið aftur heim
á bæ og borðaður góður matur og
slakað á í sána fyrir næsta dag,“
segir rúnar.
rúnar segir að þessi árstími sé í
raun ótrúlegur, en þessar ferðir eru
farnar síðvetrar, yfirleitt frá mars
og fram í lok maí. „Þarna er nánast
enginn á ferli því aðgengið er erfitt.
Þá er hægt að skíða alveg frá toppi
fjallanna og niður í fjöru. Það eru
mjög fáir staðir í heiminum þar
sem það er hægt. Fólk er að koma
frá bestu skíðastöðum heims til
að upplifa eitthvað alveg einstakt,“
segir rúnar.
Borea býður einnig upp á fjalla-
skíðaleigu með öllu sem til þarf
fyrir fólk sem langar að prófa þetta
skemmtilega sport.
Meiri upplýsingar er hægt að
nálgast á www.borea.is og í síma
456 3322.
Skíðamenn á uppleið í
Hrafnfirði í Jökulfjörðum.
Sá elsti þarna er 72 ára.
Mynd | Rúnar Karlsson
Unnið í samstarfi
við Nítró
nítró er ein stærsta mótorsport-
verslun landsins og að undanförnu
hefur verslunin lagt aukna áherslu
á að bjóða upp á allt tengt vetrar-
sporti. Þar er hægt að fá allt frá
fatnaði upp í sérpantaða varahluti.
Vikulega er boðið upp á sérpönt-
unarþjónustu á vara- og aukahlutum
fyrir allar tegundir vélsleða.
nítró hefur verið starfandi í 12 ár
og verið með umboð fyrir Kawasaki
á Íslandi allan þann tíma. Verslunin
er einnig með umboð fyrir mest
seldu fjórhjólin á Íslandi á síðasta
ári, CF Moto, sem framleiða einn-
ig Buggy bíla sem er nýjasta æðið
í sportinu um þessar mundir. af
öðrum umboðum má nefna Beta
götuskráð enduróhjól, Znen vespur
sem hafa verið vinsælar fermingar-
gjafir, mótor- og fjórhjól fyrir börn
og Z-Tec rafmagnsvespur. að sjálf-
sögðu er allur nauðsynlegur bún-
aður sem fylgir þessu fáanlegur,
hjálmar, fatnaður, skór og auka- og
varahlutir.
af vetrarvörunum sem hafa verið
vinsælar má nefna unglingavélsleða
frá FMC Motors, arctic Cat sleða
og Timbersled beltabúnað fyrir
torfæruhjól. nítró er með umboð
fyrir Camso beltin og á til reimar í
flestar gerðir sleða ásamt meiðum,
karbítum, ísklórum, nöglum, snjó-
flóðabakpokum, hitahandföngum,
snjóflóðaýlum og flestu öðru sem
viðkemur vélsleðaiðkun.
Það þarf engum að verða kalt í
vetrarsportinu, á efri hæðinni er
mikið úrval af fatnaði frá Motorfist
sem er einstök gæðavara, hlý með
bestu öndun sem þekkist í vatns-
heldum fatnaði nú til dags. Frá
sama merki fást hanskar og skór
með sama gæðastuðli. CKX kjálka-
hjálmarnir hafa fyrir löngu sannað
sig fyrir þá sem vilja lokaða og hlýja
hjálma en svo eru til opnir hjálmar
frá CKX, airoh og nox fyrir þá sem
kjósa það heldur. einnig framleiðir
CKX góða sleðagalla sem eru á mjög
góðu verði.
nítró er til húsa við Kirkjulund 17 í
garðabæ en á næstunni flytur versl-
unin í nýtt og glæsilegt 1000 fer-
metra húsnæði að Urðarhvarfi 4, þar
sem verslunin verður á einni hæð.
Verkstæðið verður á sama stað, en
þar er boðið er upp á viðgerðir fyrir
allar tegundir hjóla og sleða.
Allt fyrir vetrarsportið
Verslunin Nítró er ein stærsta mótorsportverslun landsins og þar fæst
allt frá vélsleðum niður í fatnað og hjálma.