Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 79

Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 79
 | 11fréttatíminn | Helgin 22. janúar-24. janúar 2016 auglýsingadeild fréttatímans S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Vetrarfjör Unnið í samstarfi við Fjallakofann Fjallakofinn er útivistarvöruverslun með vörur í háum gæðaflokki. nú yfir vetrartímann er fullt út úr dyrum af öllu tengdu skíðaíþróttinni og þá einna helst gönguskíðunum. „Það má segja að það hafi orðið eins konar gönguskíðasprengja,“ segir Hilmar Már aðalsteinsson skíðasér- fræðingur. „Við höfum fundið fyrir verulega auknum áhuga á bæði fjalla- skíðum en þó sérstaklega göngu- skíðunum,“ segir Hilmar. Sjálfur hefur hann verið á gönguskíðum frá 10 ára aldri og þekkir sportið því vel. „Þetta er alls ekki dýrt sport, mikil útivera og ein besta hreyfingin fyrir skrokkinn. Það besta er að það geta nær allir stundað þetta,“ segir Hilmar. Í Fjallakofanum er hægt að fá göngu- skíði fyrir byrjendur jafnt sem þá sem ætla sér á norðurpólinn. „Byrjendask- íðin eru lang ódýrust og svo geturðu farið í dýrari skíði þegar þú ert kom- inn í keppnishugleiðingar og þar er um margt að velja,“ segir Hilmar. Vöruúrvalið hefur þróast út frá neytendahópnum og er reynt til hins ýtrasta að koma til móts við hann. „Fjallakofinn hefur alltaf verið með fjallaskíði, og svo fyrir nokkrum árum komu inn svigskíði, ferða- gönguskíði og nú eru þar allar teg- undir af gönguskíðum,“ segir Hilmar. einnig er þar að finna breitt úrval af útivistarfatnaði. „Þegar eftirspurnin er mikil þarf að bæta framboðið og við höfum reynt að gera það. Við erum að bæta við nýju finnsku merki, One Way, sem býður upp á gönguskíði og -skó, svo og fatnað,“ segir Hilmar. Ásamt því að bjóða upp á sérhæfðan gönguskíðafatnað er mikið úrval af útivistarfatnaði fyrir öll tækifæri. Fyrsta stopp áður en haldið er á gönguskíði ætti því að vera í verslun Fjallakofans í Kringlunni 7 þar sem skíðaúrvalið er. auk þess rekur Fjalla- kofinn verslanir sem eru á reykja- víkurvegi 64 Hafnarfirði og lauga- vegi 11 reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á www.fjallakofinn.is Ullarföt á alla fjölskylduna í útivistina Baselayer ullarfötin frá Marathon Sportswear eru tilvalinn ullarklæðnaður fyrir fólk á öllum aldri sem stundar útivist af kappi. Unnið í samstarfi við Rún heildverslun Flestir þekkja það að æða út í fallegu gluggaveðri og uppgötva, rétt fyrir utan dyrnar sínar, að veturinn er langt því frá að vera liðinn. Það að sólin skíni skært á fagurbláum himni segir iðulega lítið til um hitastigið utandyra. Það er því nauðsynlegt fyrir okkur að eiga hlý undirföt, sem gera okkur kleift að sinna leik og störfum í því hrekkjótta veðurfari sem við búum við. Baselayer ullarnærfötin hafa fengið góðar viðtökur hér á landi undanfarna mánuði, enda eru þessi ullarnærföt hönnuð með þarfir útivistarfólks í huga. Þau henta því íslensku veðurfari ein- staklega vel. Gæði og þægindi í fyrirrúmi Vefnaðurinn byggir á tveggja laga Baselayerkerfi sem inniheldur annars vegar rafprjónað polyester og hins vegar hreina merino ull. innra lagið er unnið þannig að efnið er gert afar mjúkt en helstu töfrar þess eru að jákvætt hlaðnar fjölliður eða katjónir í efninu flytja allan raka frá líkamanum til ytra lagsins sem inniheldur merino ull. Ullin hefur þá eiginleika að geta tekið til sín allt að 30% raka af eigin þyngd en það þýðir að sá sem klæðist fatnaðinum upplifir aldrei að fatnaðurinn sé rakur, heldur helst líkaminn alltaf þurr og hlýr. Ullarfötin virka best utandyra eða við hitastig frá -20°C til +5°. Fatnaður á alla fjölskylduna línan er fáanleg í stærðum M-Xl2 fyrir karla og stærðum S-Xl fyrir konur. Börnin fá líka pláss í þessari línu en þar er hún fáanleg fyrir aldurinn 6-14 ára. Tvær litatýpur koma fyrir hvern hóp fyrir sig þann- ig að allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Alþjóðlegur klæðnaður jBS Textile group, sem framleiðir fatnaðinn undir merkjum Marathon, er það stærsta í þessum bransa á norðurlöndunum og selur um allan heim. Í kjölfarið á samningi við fót- boltakappann Christiano ronaldo, sem er andlit Cr7 nærfatalínunnar, er fyrirtækið komið inn á alþjóða- markað og selur vörur sínar um allan heim. Frábær merino ullarnærföt sem henta í alla útivist: Göngur – hlaup – veiði – fjall- göngur – skíði – hjólreiðar – útilegur ... og allt hitt líka. Marathon Baselayer ullarfötin eru fáanleg á eftirtöldum stöðum: n Hagkaup n Afreksvörur glæsibæ n Icewear akureyri n Bjarg akranesi n Fjarðarkaup Hafnarfirði n Jói Útherji reykjavík n JMJ akureyri n Hafnarbúðin Ísafirði n Kaupfélag V-Húnvetninga n Kaupfélag Skagfirðinga n Nesbakki neskaupstað n Skóbúð Húsavíkur Húsavík n Blossi grundarfirði n Efnalaug Dóru Hornafirði n Efnalaug Vopnafjarðar n Siglósport Siglufirði n Heimahornið Stykkishólmi n Grétar Þórarinsson Vestm.eyjum Sprengja í áhuga á gönguskíðum Tilvalinn áningarstaður fyrir vetrarfríið Á skíðasvæði Dalvíkur eru brekkur fyrir alla og mikil veðursæld. Unnið í samstarfi við Skíðasvæði Dalvíkur Skíðasvæði Dalvíkur er aðeins rétt fyrir ofan bæinn, nánar tiltekið í Böggvisstaðafjalli. Kári ellertsson, umsjónarmaður svæðisins, segir það afar fjölskyldu- vænt þar sem eru brekkur fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. „Brekkurnar eru vel upplýstar svo hægt er að skíða þó farið sé að rökkva. Þá er einnig skíðagöngubraut sem opin er meðan það er bjart. Skíðaleiga er á staðnum svo allir geta tekið þátt,“ segir Kári. Tilvalið fyrir hópa Á staðnum er einnig veglegur skíða- skáli með veitingasölu. „Við höfum einnig frábæran skíðaskála með aðstöðu fyrir ýmsa hópa í gistingu. Hingað hafa verið að koma skóla- hópar, félagsmiðstöðvar og starfs- mannafélög. Við erum með pláss fyrir allt að 50 manns í gistingu og höfum verið með sveigjanlega opn- unartíma fyrir hópa,“ segir Kári. Opið alla daga eftir 10. febrúar Hann segir mikla veðursæld ein- kenna svæðið og að opnunardag- arnir séu rúmlega 30 síðan í byrjun desember. nú sé opið sex daga vik- unnar en eftir 10. febrúar verði opið alla daga. „Við bjóðum afar hagstæð verð á lyftukortum og ég myndi segja að við værum tilvalinn áningar- staður fyrir vetrarfríið,“ segir Kári. Nánari upplýsingar um opnunar- tíma, verð og svæðið í heild má finna á www.skidalvik.is Hilmar Már í Fjallakofanum finnur fyrir verulegri aukningu á áhuga á fjallaskíðum og göngustígum. Guðmundur í Fjallakofanum

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.