Fréttatíminn - 29.01.2016, Page 8
Eigandi Brotafls
mætti þá bálvitlaus
á svæðið og óð upp
að mér og sagði
hreint út. „Ég hata
þig.“ „Hann tók
mig síðan hálstaki
og ætlaði að henda
mér yfir stigahand-
riðið á húsinu mínu.
Það hefur rignt kvörtunum
yfir lögreglu vegna bygg-
ingarframkvæmda við
nýtt hótel sem á að rísa við
Laugaveg og á baklóð við
Grettisgötu.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Fyrir skömmu var lögregla kölluð
til að skakka leikinn þegar verk-
taki lenti í handalögmálum við
íbúa sem gerði athugasemd við há-
vaða á byggingarlóðinni seint um
kvöld, en ónæði frá framkvæmd-
unum hefur verið mikið utan hefð-
bundins vinnutíma.
Nikulás Úlfar Másson byggingar-
fulltrúi segir að miðbær Reykjavík-
ur sé að fara í gegnum svakalega
erfiða vaxtarverki þessa dagana,
það sé þó líklegt að borgarbúar
verði á endanum ánægðir með
niðurstöðuna. Borgin verði fallegri
á eftir.
Mætti bálvitlaus á svæðið
„Þeir voru að vinna langt fram
yfir lögboðinn tíma og lögreglan
var búin að koma einu sinni og
ég var fúll enda klukkan að ganga
ellefu um kvöld og krafðist þess að
þeir hættu,“ segir íbúi í bakhúsi
við Grettisgötu sem hefur orðið
fyrir margvíslegu ónæði af fram-
kvæmdunum. „Eigandi Brotafls
mætti þá bálvitlaus á svæðið og
óð upp að mér og sagði hreint út:
„Ég hata þig.“ „Hann tók mig síðan
hálstaki og ætlaði að henda mér
yfir stigahandriðið á húsinu mínu.
Bróðir minn og vinur sem voru
staddir hjá mér gátu snúið hann
niður þar til hann róaðist.“
Nágranninn, sem vildi ekki láta
nafns síns getið, lagði ekki fram
kæru hjá lögreglunni. Málið hafi
því endað þarna. „Ég hélt fyrst að
þetta væru bara venjulegir verka-
menn en ekki svona gæjar,“ segir
hann.
Nágrannar sem Fréttatím-
inn ræddi við segja hinsvegar
verktakafyrirtækið, sem nefnist
Brotafl, hafa verið með hávaða og
yfirgang og oft hafi þurft að kalla
til lögreglu. „Þegar ég er að koma
heim, klukkan að ganga tíu, eru
þeir að andskotans hér úti með
rosalegum hávaða,“ segir Halla
Pálsdóttir sem býr á Grettisgötu
13. „Það næsta sem ég veit að þá
er rykkt upp garðshliðinu með
látum og ég hleyp að eldhúsglugg-
anum og sé manninn æða inn í
garðinn og ráðast á nágrannann
Miðbær Íbúar og verktakar takast á um byggingarframkvæmdir
Sýður upp úr á Grettisgötu
Byggingarfulltrúi segir að borgin sé með svakalega erfiða vaxtarverki.
og gefa honum nánast á kjaftinn.
Það þurfti marga til að skilja þá
að. Mér skildist, eftir á, að hann
hefði sprautað á verkamennina
með garðslöngu. Ég kallaði til lög-
reglu en þurfti að hringja þrisvar
sinnum áður en þeir komu.“
Brotafl hugleiddi að kæra
Sigurjón Halldórsson, eigandi
Brotafls, segir aðra sögu og sakar
nágranna um að reyna að tefja
framkvæmdir og valda tjóni.
„Hann réðist á mig og kýldi mig
svo ég fékk glóðarauga.“ Sigur-
jón segist hafa ætla að leggja fram
kæru svo hann fór á slysadeild og
fékk áverkavottorð.
Hann segir ennfremur að ná-
granninn hafi slett skyri á bygg-
ingatæki, hellt vatni í steypu og
slett jógúrti á Range Rover bifreið
sína þegar henni hafi verið lagt
Ítrekað hefur slegið í brýnu milli eiganda verktakafyrirtækisins Brotafls og íbúa við Grettisgötu. Mynd/Hjálmtýr Heiðdal
8 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015