Fréttatíminn - 29.01.2016, Síða 48
Notar aldrei kreditkort
„Ég spara mest á því að nota aðeins peninga, ekki kreditkort. Þegar
ég fer í búð þá er ég búin að ákveða hve miklu ég ætla að eyða og fer
með þá upphæð með mér í búðina. Þannig kem ég í veg fyrir að ég
freistist til þess að kaupa eitthvað sem ég þarf
ekki á halda eða á ekki fyrir,“ segir Lára Ómars-
dóttir fréttakona.
„Til lengri tíma, eins og til dæmis þegar ég
safna fyrir ferðalögum, stórveislum eða ein-
hverju dýrara, þá legg inn ég inn tiltekna upp-
hæð á mánuði í einhvern tíma inn á bankabók
sem er ekki í sama banka og ég er með önnur
viðskipti, ég hef ekki aðgang að í heimabanka og
er ekki með leyninúmer á. Ég þarf því að gera
mér ferð í bankann til að taka peningana út og kem þannig í veg fyrir
að ég stelist í þá grípi mig eitthvert stundarkaupæði – sem gerist að vísu
eiginlega aldrei nú orðið.“
Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur eytt í?
„Úff, þessi er erfið vegna þess að ég eyði eiginlega aldrei í neitt sem
ég ekki nota eða þarf. Ég eyði alveg peningum í einhverja óhollustu eða
vel stundum að nota peningana í eitthvað sem væri alveg hægt að vera
án en ég verð að viðurkenna að ég man bara ekki eftir neinu sem var
alger peningasóun. Nema þá kannski þegar okkur vantaði sófa fyrir þó-
nokkrum árum og fórum á húsgagnaútsölu og keyptum fallegan drapp-
litan sófa á mjög góðu verði. Við áttuðum okkur hins vegar ekki á því
fyrr en seinna að ljós sófi og fimm börn fór ekki vel saman. Líftími
hans var því frekar stuttur og kaupin þar með ekki mjög skyn-
samleg.“
Keypti sportbíl
„Mér finnst best að búa mér til einhvern þvingaðan
sparnað þar sem hlutir gerast sjálfkrafa. Þá safnast
þetta upp, annars gerist ekkert,“ segir Valgeir Magn-
ússon, framkvæmdastjóri auglýsingastof-
unnar PiparTBWA.
Hvað er það heimskulegasta sem þú
hefur eytt í?
„Það fer eftir því hvernig maður mæl-
ir heimsku. Fjárhagslega var ekki
gáfulegt þegar ég ákvað að eign-
ast 63 módel af sportbíl þegar ég
var 23 ára. Það var ekki ódýrt að
reka hann á sama tíma og maður
var að stofna fjölskyldu. Á end-
anum þurfti hann að víkja fyrir
sementi og mótatimbri. En samt
þegar ég hugsa til baka þá þótti
mér mjög vænt um bílinn þó svo
að hann hafi verið mér dýr.“
Það besta og versta í fjármálum
Einstaklingar Flest þekkjum við baráttuna við að vera réttum megin við núllið í heimilisbókhaldinu. Sú barátta er ekki alltaf
auðveld en með reynslu og góðu skipulagi gengur fólki sífellt betur. Viðmælendur Fréttatímans luma margir á góðum ráðum
um fjármál einstaklinga og sumir bæta við skemmtilegum sögum af líkamsræktarkortum, sportbílum og hrukkustraujárnum.
Spara með því að elda heima
„Ég er nú ekkert sérstaklega góð í því að spara en eitt sem við fjölskyldan
höfum náð góðum tökum á eru matarinnkaup,“ segir Guðríður Erla Torfa-
dóttir, þjálfari í Biggest Loser og framkvæmda-
stjóri Reebok Fitness. „Við kaupum mjög sjaldan
skyndibita heldur eldum heima. Svo reyni ég að
taka með mér nesti í vinnuna eða skýst á salatbar-
inn í Hagkaup en það kostar mig um það bil 500
kall, ein máltíð. Við erum búin að reikna það út
að það er sparnaður fyrir okkur að kaupa eldum-
rett.is þrisvar sinnum í viku. Þá kemur allt tilbúið
og við spörum okkur tíma og peninga með þessu
fyrir utan að fá hollan og góðan mat.“
Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur eytt í?
„Ég lét plata mig í Bandaríkjunum fyrir tíu árum og keypti rándýrar tal-
stöðvar fyrir síma sem áttu að vera svo mikil snilld ef maður yrði batterís-
laus. Þegar ég ætlaði að sýna manninum mínum þessa snilld þá fór draslið
auðvitað ekki í gang og virkaði aldrei. Honum fannst þetta auðvitað mjög
heimskuleg kaup og minnir mig stundum á það áður en ég fer til útlanda.“
Hrukkustraujárn fyrir konuna
„Ég er afskaplega lélegur í að spara yfirleitt,
þannig að ég fékk einhverja bankastofnunina til
að taka af mér fasta upphæð á mánuði í sparnað
og svipti mig þar með að hluta til fjárræði, en það
virkar vel,“ segir Ólafur Þór Jóelsson, tölvuleikja-
sérfræðingur með meiru.
Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur eytt í?
„Maður á auðvitað ekki að segja frá þessu á
opinberum vettvangi, en heimskulegasta fjárfest-
ing mín er þegar ég keypti fyrir nokkrum árum hálfgert „hrukkustrau-
járn“ og gaf konunni í jólagjöf. Það var algjör skellur og fer eflaust á topp
10 yfir mestu afleiki mínu lífi.“
Bara 4.000 krónur í mat á dag
„Ég nota fjölmargar leiðir til að spara og er mjög meðvit-
uð um peningahegðun mína, skrifa niður í hvað
ég eyði og svona og geri áætlanir í hvað ég ætla
að nota peninga næstu mánuði,“ segir Marta
María Jónasdóttir, fréttastjóri dægurmála á
mbl.is.
„Ég hef tamið mér að kaupa ekki neitt
eða eyða peningum nema ég eigi fyrir því.
Ég er til dæmis ekki með bílalán sem
sparar heilmikla peninga á hverjum
mánuði og reyni að borga reglulega
inn á húsnæðislánið. Það felst mikill
sparnaður í því að borga minni vexti
og auðvitað vill maður reyna að
borga inn á höfuðstólinn. Ég pæli
líka mikið í matarinnkaupum og
reyni að eyða ekki meira en 4.000
krónum á dag í mat og kaupi ekk-
ert í matvörubúðinni nema það
sem við erum að fara að borða. Þegar ég borða á veit-
ingastöðum með börnin mín kaupi ég yfirleitt tvo rétti
fyrir okkur þrjú. Svo hika ég ekki við að taka matinn
með mér heim ef ég næ ekki að klára hann. Þegar ég
fer með börnin í bíó kaupi ég einn stóra popppoka
og við borðum hann saman í stað þess að kaupa þrjá
litla.“
Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur eytt í?
„Ætli það sé ekki iðnaðarryksuga sem ég keypti
í byggingavöruverslun í Reykjavík. Á pakkning-
unum stóð að þetta væri tækið sem mig vantaði
og drengurinn sem afgreiddi mig fullyrti að
þetta væri málið. Ryksugan reyndist svo hrylli-
lega kraftlítil sem gerði það að verkum að ég
endaði á því að nota bara heimilisryksuguna í
framkvæmdirnar. Heimilisryksugan bræddi
úr sér á núlleinni. Nú sit ég uppi með iðnaðar-
ryksugu sem gerir eiginlega ekkert gagn og
safnar bara ryki í bílskúrnum.“
Óskynsamur daglega
Bý til matseðla og kaupi aðeins það sem þarf
„Ég spara með því að plana matarinnkaup
mjög vel. Búa til matseðla, kaupa aðeins
það sem þarf. Fara södd í búðina og ekki
þreytt. Tek með mér nesti í vinnuna,“
segir Sigurrós Pálsdóttir, matreiðslu-
maður og rekstrarstjóri framleiðslu-
eldhúss hjá Te og kaffi. Hún kveðst
einnig spara með því að kaupa eng-
an óþarfa, kaupa barnaföt í útlönd-
um og láta aðra koma heim með
það sem hún kaupir á netinu.
„Það heimskulegasta sem ég hef eytt í er mjög erfið
spurning þar sem ég eyði aldrei í neitt nema eftir
mikla umhugsun. Ef ég vil kaupa flík, kaupi ég hana
alltaf nokkrum dögum eftir að ég sé hana fyrst og það
á við um allt sem ég kaupi. En ég man þó eftir einu.
Það var flugferð til London, ein án þess að vera með
hótelherbergi eða peninga, að hitta kærasta sem
komst svo ekki að hitta mig. Það er svo sem
löng saga þarna á bak við, fyndin í dag enda
var ég ung og vitlaus, en allt fór vel á end-
anum því pabbi bjargaði deginum.“
Poppvélin var notuð einu sinni
„Ætli helsti sparnaðurinn felist ekki í því að nýta
mjög vel þau matvæli sem ég kaupi inn og af-
ganga. Mér hefur alltaf fundist agalegt að þurfa
að henda mat,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar-
fulltrúi og sælkeri.
Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur eytt í?
„Líklega poppvélin. Við erum miklir popp-
arar á heimilinu og einhver fékk þá villtu hug-
mynd að fjárfesta í slíkri vél. En hún var einu
sinni notuð. Poppið reyndist bara miklu betra poppað á gamla mátann
í stórum potti og var hin aðferðin ekki einu sinni reynd aftur.“
Með tvær frystikistur
„Eftir að við fluttum í sveit neyddumst við hjónin til
að taka matarinnkaup til endurskoðunar enda langt
í næstu búð,“ segir Berglind Häsler, bóndi, matvæla-
framleiðandi og hljómborðsleikari Prins Póló. „Áður
fórum við í búð nánast daglega og keyptum allskonar
óþarfa. Það var lítið hugsað fram í tímann og í fryst-
inum var í mesta lagi íspinni. Pabbi gaf okkur frysti-
kistu í innflutningsgjöf sem mér fannst galin pæling.
Nú eigum við tvær. Við gerum stór innkaup einu sinni
í viku til hálfs mánaðarlega. Þó við kaupum aðeins
dýrari hráefni, íslensk og lífræn, spörum við helling á
þessu fyrirkomulagi, kaupum minni óþarfa og sóum
minna,“ segir Berglind sem segir tóbak það heimsku-
legasta sem hún hafi eytt í.
„Ég spara ekki. Því miður. Ég bara eyði, stöðugt,“
segir uppistandarinn Dóri DNA sem segist geta
haldið langar ræður um heimskulega hluti sem hann
hafi eytt í.
„Ég versla mikið í Kvosinni af því hún er við hliðina
á heimili mínu. Þar er alltaf um það bil 40%
dýrara en annarstaðar. Svo borgaði ég einu
sinni kort í Sporthúsið í tvö ár. Á sama
tíma bjó ég í útlöndum, var með líkams-
ræktarkort annarstaðar og var ekkert að
spá. Þetta hefur verið svona 200 þús-
und kall þegar upp var staðið. Ég
eyði óskynsamlega daglega. Hef
pantað mér föt fyrir fleiri tugi
þúsunda og ekkert passaði á
mig. Hata peninga. Finnst
bara gaman að kveðja þá.“
48 | fréttatíminn | Helgin 29. Janúar-31. Janúar 2015