Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.02.2016, Qupperneq 19

Læknablaðið - 01.02.2016, Qupperneq 19
LÆKNAblaðið 2016/102 79 verið að slysinu í 12,5% tilvika, í 7,8% tilvika átti bifreið eða bif­ hjól hlut að slysi og í 3,0 % tilvika var annar reiðhjólamaður aðili að slysi. Upplýsingar voru hins vegar ekki skráðar um gagnaðila slyss í 74,9% tilvika. Líkamssvæði áverkastigs og áverkaskor Af líkamssvæðum áverkastigsins reyndist efri útlimur oftast vera slasaður, eða í 47,1% tilfella. Í 27,8% tilvika var um að ræða áverka á mjaðmargrind og neðri útlim en í 30,2% tilfella voru áverkar á höfði eða andliti (mynd 2). Allir sjúklingar sem komu á bráðamóttöku voru áverkaskor­ aðir og reyndust 65,6% þeirra með lítinn áverka (áverkaskor ≤3stig), 29,3% sjúklinga voru með meðaláverka (4-8 stig) og 1,5% sjúklinga var með mikinn áverka (9­15 stig). Samkvæmt stöðluðu áverkaskori voru einungis 0,3% sjúklinga alvarlega slasaðir (16­24 stig) og 0,09% sjúklinga lífshættulega slasaðir eða fengu 25 stig eða meira. Enginn sjúklingur lést eftir reiðhjólaslys á rannsóknar­ tímabilinu. Tíðni alvarlegra áverka (áverkaskor 9+) hélst stöðugt á rannsóknartímabilinu en árið 2005 voru 1,3% þeirra sjúklinga sem leituðu á bráðamóttökuna það árið með áverkaskor 9+ borið saman við 2,0% árið 2010. Flestir sjúklingar með áverkaskor 9+ greindust árið 2007 en þá voru þeir 2,9% þeirra sem leituðu á bráða­ móttökuna það árið. Greiningar Þeir 3472 sem leituðu á bráðamóttökuna eftir reiðhjólaslys hlutu samtals 4876 greiningar. Algengustu greiningar voru sár, mar eða tognun í 71,6% allra greininga. Þar á eftir greindust 22,3% bein­ brot eða liðhlaup en heilaáverkar voru 4,9% og innri líffæra áverkar 1,1% allra greininga. Þegar litið er á greiningar samkvæmt ICD­10 voru yfirborðsáverkar á öðrum hlutum höfuðs og heilahristingur algengasta greiningin en það var jafnframt algengasta greiningin meðal þeirra sem lögðust inn. Frekari skiptingu á greiningum sam­ kvæmt ICD­10 má sjá í töflu I og töflu II. Hjálmur Í einungis 14,2% tilvika var hjálmanotkun skráð en í þeim tilfellum þar sem hún var skráð voru konur með hjálm í 71% tilvika en 29% karla. Þegar sjúklingar lögðust inn var hjálmanotkun skráð í 43,5% tilfella. Innlagnir Alls voru 124 sjúklingar lagðir inn á rann­ sóknartímabilinu, eða 3,6% allra sjúk­ linga sem leituðu á bráðamóttöku vegna reiðhjólaslysa. Innlagnarhlutfall var þó breytilegt á rannsóknartímabilinu, fæstir lögðust inn árið 2005, eða tæp 1,8%, en flestir árið 2010, eða 5,0% sjúklinga. Hjá þeim sjúklingum sem lögðust inn á Landspítala voru 66,9% karlar en 33,1% konur og meðalaldur innlagðra sjúklinga var 24,7 ár en algengast var að sjúklingar á aldrinum 10­14 ára legðust inn (mynd 3). Innlagðir sjúklingar voru í 59,7% til­ vika með meðal áverka, eða áverkaskor 4­8, og mikinn áverka í 23,4% tilvika, eða áverkaskor 9­15 (mynd 4). Meðallegutími sjúklinga voru 5 dagar en 5 sjúklingar lágu inni í yfir 16 daga, Tafla II. Algengustu greiningar skv. ICD-10 hjá innlögðum sjúklingum sem slösuðust í reiðhjólaslysi. Greining - innlagðir sjúklingar % Heilahristingur (S06.0) 22,6 Yfirborðsáverki á öðrum hlutum höfuðs (S00.8) 8,9 Viðbeinsbrot (S42.0) 7,3 Brot á neðri enda sveifar (S52.5) 6,5 Kúpubotnsbrot með eða án heila- og mænuvökvaleka (S02.1) 6,5 Mörg opin sár á höfði (S01.7) 5,6 Dreifður heilaáverki (S06.2) 4,8 Tafla I. Algengustu greiningar skv. ICD-10 hjá öllum sjúklingum sem slösuðust í reiðhjólaslysi og leituðu á bráðamóttökuna í Fossvogi árin 2005-2010. Greining - allir sjúklingar % Yfirborðsáverki á öðrum hlutum höfuðs (S00.8) 6,5 Heilahristingur (S06.0) 6,3 Tognun og ofreynsla á úlnlið (S63.5) 5,8 Mar á hné (S80.0) 5,4 Opið sár á vanga eða kjálkaliðssvæði (S01.4) 4,4 Brot á neðri enda sveifar (S52.5) 4,4 Viðbeinsbrot (S42.0) 3,7 Mynd 3. Aldursskipting og kyn þeirra sem lögust inn á Landspítalann í kjölfar reiðhjólaslyss árin 2005-2010. R A N N S Ó K N

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.