Læknablaðið - 01.02.2016, Qupperneq 40
100 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á Læknadögum var haldið málþing
undir yfirskriftinni Líkamleg einkenni
af óljósum toga. Þar ræddu geðlæknar,
taugalæknar, verkjasérfræðingar og sál-
fræðingar ýmsar hliðar þessa flókna
vanda. Magnús Haraldsson geðlæknir
reifaði efnið í fyrirlestri á málþinginu.
„Þetta eru mjög algeng vandamál og
margar rannsóknir hafa sýnt að meira en
þriðjungur fólks sem leitar til heilsugæslu
er með einkenni sem ekki er hægt að finna
einhlíta skýringu á,“ segir Magnús í upp-
hafi. „Vandamálið er því stórt og koma
þessir sjúklingar oft við sögu hjá mörgum
sérfræðingum. Í geðlæknisfræði er skil-
greindur flokkur sjúkdóma sem kallaðir
hafa verið líkömnunarraskanir eða somatic
symptom disorders. Sumir, en alls ekki allir,
sjúklingar með einkenni af óljósum toga
falla inn í þá skilgreiningu og eru þá yfir-
leitt með hvorutveggja líkamleg einkenni
og geðræn einkenni. Þessir sjúklingar
tjá yfirleitt mikinn kvíða og ótta við að
þeir séu haldnir alvarlegum líkamlegum
sjúkdómi og viðbrögðin eru gjarnan ekki í
samræmi við það sem telja mætti eðlilegt
miðað við aðstæður.“
Hæpin tvíhyggja
Magnús segir að aðgreining líkamlegra og
sálrænna þátta sé oft og tíðum mjög erfið
og eigi jafnvel ekki rétt á sér. „Þessi tví
hyggja sem hefur verið ríkjandi í langan
tíma er ekki hjálpleg þar sem þetta er mjög
samtvinnað og líkamlegum einkennum
fylgja oft sálrænir kvillar. Geðröskunum
fylgja líka oft ákveðin líkamleg einkenni
og þau eru hluti af greiningarskilmerkjum
til dæmis í þunglyndi og kvíðaröskunum.
Þetta eru einkenni eins og andþyngsli,
verkir, lystartruflanir, svimi og fleira.
Afstaða manna til þessara vandamála
hefur þó verið að breytast talsvert mikið
á síðustu árum því verkur er í rauninni
mjög huglægt fyrirbæri. Það er hvorki
hægt að mæla hann né mynda. Það er því
mjög umdeilt hvernig eigi að skilgreina
verki af óljósum toga. Ýmsar fyrri skil
greiningar eins og að ef verkur samræmist
ekki líffærafræði, eða er ekki í samræmi
við þann áverka sem er til staðar, eða að
enginn áverki er til staðar, eru ekki lengur
notaðar til að greina verki af sálrænum
toga. Við vitum að til eru verkir sem ekki
finnast vefrænar skýringar á en lífeðlis
fræði verkja er mjög flókin og enn margt
á huldu um eðli þeirra. Nýlegar rann
sóknir hafa leitt í ljós ýmislegt sem áður
var ekkert vitað um eins og möguleg
áhrif ónæmiskerfisins á taugakerfið sem
getur tengst ákveðnum verkjum. Annað
dæmi um líkamleg einkenni af óljósum
toga eru starfræn taugaeinkenni eða það
sem nefnt hefur verið conversion á fræði
máli. Dæmi um slíkt er sjúklingur sem
lýsir því að hann sé með lamaðan útlim en
taugafræðileg rannsókn leiðir í ljós að það
fær ekki staðist. Það má hins vegar ekki
líta svo á að sjúklingurinn sé að gera sér
upp einkennin. Þetta er ekki meðvitað og
því er ekki hægt að segja honum að hætta
þessari uppgerð. Þetta er raunverulegt
ástand fyrir sjúklinginn þó ekki finnist
taugafræðilegar skýringar.
Það eru vissulega dæmi um að ein-
staklingar geri sér meðvitað upp einkenni
til að fá einhvers konar athygli eða í þeim
tilgangi að fá bætur, komast hjá vinnu
eða öðrum skyldum og er þetta enn ein
tegundin af líkömnunarröskunum.“
Menningarlegir þættir hafa áhrif
Magnús leggur þó mikla áherslu á að
meðhöndlun sjúklinga með líkamleg
einkenni af óljósum toga snúist alls ekki
um að afhjúpa þá sem ímyndunarveika.
„Taugalæknar, geðlæknar og aðrir sér
fræðingar sem fást við þessi vandamál
eru almennt sammála um að það sé mikil
vægt að nálgast þetta með því að greina
vandamálið og lýsa því sem raunverulegri
röskun fyrir sjúklingnum. Oft er það
mikill léttir fyrir fólk að finna að það sé
tekið mark á því og að einhver trúir því
að sjúklingurinn upplifi raunverulega
einkennin. Læknavísindin eru að átta sig á
því að samspil hins geðræna og líkamlega
er flóknara og samtvinnaðra en lengst af
hefur verið álitið.“
Að sögn Magnúsar er mikilvægt að
leggja ekki óþarfa rannsóknir á sjúkling-
inn þegar greining liggur fyrir. „Í vissum
tilfellum getur verið þörf á meðferð hjá
geðlækni eða sálfræðingi, sérstaklega
þegar mikil geðræn einkenni eru til staðar
eða einstaklingur þjáist jafnframt af geð-
röskunum eins og þunglyndi og kvíða.
Einnig er mikilvægt að hitta sjúklinginn
með reglulegu millibili og fylgjast með
ástandi hans yfir lengri tíma. Oft ganga
þessi einkenni yfir á stuttum tíma, vikum
eða mánuðum, en í vissum tilfellum getur
verið um langvinnan vanda að ræða.“
Magnús nefnir í fyrirlestri sínum að
ýmsir menningarlegir þættir hafi áhrif á
það hvernig fólk túlkar einkenni sín. „Víða
eru miklir fordómar gagnvart sálrænum
veikindum og virðist það geta átt þátt í
því að fólk tjáir vanlíðan sína frekar með
líkamlegum kvörtunum. „Þetta er mjög
algengt í sumum löndum Asíu þar sem
fordómar gagnvart geðrænum sjúkdómum
Flókið samspil sálrænna
og líkamlegra einkenna
– segir Magnús Haraldsson geðlæknir
um líkamleg einkenni af óljósum toga