Læknablaðið - 01.02.2016, Side 41
LÆKNAblaðið 2016/102 101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
eru víða miklir. Þar er þekkt að fólk tjái
geðrænan vanda með líkamlegum ein-
kennum og heilbrigðisstarfsfólk nálgast
vandann á þeim forsendum.“
Ekki lengur talað um
móðursýki eða ímyndunarveiki
Varla verður skilið við þetta efni án
þess að nefna upphafsmann nútíma sál
greiningar, hinn austurríska Sigmund
Freud. „Hann taldi þessi óljósu líkamlegu
einkenni stafa af bælingu sálrænna áfalla
sjúklingsins í bernsku og notaði orðið hys-
teria yfir það. Hann taldi að hin flóknu
sálrænu og líkamlegu einkenni sem brjót
ast út síðar á lífsleiðinni eigi rætur sínar í
þessari bælingu í bernsku. Lausnin væri
fólgin í því að leiða sjúklinginn aftur til
upphafsins með sálgreiningarmeðferð.“
Franska leikskáldið Moliére gerði sér
mat úr angist þess er þjáist af heilsukvíða
(hypochondria) í leikritinu Ímyndunarveik-
inni. „Þetta er enn ein tegund þessara
líkömnunarraskana og lýsir sér með því
að fólk telur sig haldið mjög alvarlegum
sjúkdómi þrátt fyrir að hafa lítil eða
engin líkamleg einkenni. Þessu fylgir oft
mikil og stöðug sjúkdómahræðsla, ótti
við smit og eindregin krafa um ítarlegar
rannsóknir þrátt fyrir að einkennin séu
lítil eða í engu samræmi við meintan
sjúkdóm. Aðrir eru sjúklega hræddir við
lækna og sjúkrahús og forðast snertingu
við allt er hugsanlega getur valdið
smiti eða sjúkdómum. Í dag er hypoc-
hondria kallað Illness Anxiety Disorder eða
heilsukvíði og er skilgreind sem ótti við
alvarlega sjúkdóma og kvíðaeinkenni sem
fylgja því.“
Þrátt fyrir að umræða um sjúkdóma
hafi aukist verulega á undanförnum
árum, svo mjög að sumir tala um sjúk-
dómsvæðingu, segir Magnús ekkert
benda til þess að sjúklingum með líkam-
leg einkenni af óljósum toga sé að fjölga.
„Aukning greininga á geðröskunum á sér
aðrar ástæður en þó vegur þungt að í dag
er fólk líklegra til að leita sér aðstoðar við
geðrænum vanda en áður.“
„Læknavísindin eru að átta sig
á því að samspil hins geðræna
og líkamlega er flóknara og sam-
tvinnaðra en lengst af hefur verið
álitið,“ segir Magnús Haraldsson
geðlæknir.
CP REYKJAVÍK er frísklegt og skapandi þjónustu-
fyrirtæki sem skipuleggur viðburði, ferðir og ráðstefnur
fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð
í ógleymanlega upplifun
Suðurlandsbraut 6 - 108 Reykjavík - 510 3900 - www.cpreykjavik.is
VIÐ GERUM ATVINNULÍFIÐ
VIÐBURÐARÍKARA