Fréttatíminn - 01.04.2016, Page 6
Laun lögregluþjóna hækka
ekki með aukinni ábyrgð
vegna meðhöndlunar
skotvopna. Byssur eru í 11
lögreglubílum og útlit er
fyrir fjölgun. Landssamband
lögreglumann gerði árið
2012 könnun meðal lögreglu-
manna um vopnaburð. 83
prósent vildu þá skotvopn
læst í bílum.
Atli Þór Fanndal
ristjorn@frettatiminn.is
Ríkislögreglustjóri hefur ítrekað
vitnað í könnuna í skýrslum sínum
sem rökum fyrir auknu aðgengi
að vopnum. „Lögreglumenn eru
verulega ósáttir við að það skref
sem stigið var varðandi skotvopn-
in, með þeirri auknu ábyrgð sem
það hefur í för með sér fyrir hinn
almenna lögreglumann, skuli hafa
verið stigið án þess að þess sjáist
merki í launaumslögum lögreglu-
manna,“ segir Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lög-
reglumanna.
Hvað með launauppbót vegna
þjálfunar við meðhöndlun skot-
vopna?
„Nei, það er ekkert slíkt.“
Sver af sér aukinn vopnaburð
„Aðgengi lögreglumanna að skot-
vopnum hefur ekki verið aukið né
eru uppi áætlanir um breytingar
frá núverandi reglum,“ segir í svari
ríkislögreglustjóra við fyrirspurn
Fréttatímans. Þetta er í andstöðu
við upplýsingar fengnar hjá lög-
regluembættum. Hjá lögreglunni á
Norðurlandi vestra hefur ákvörðun
um hvort vopn verði færð í bíla
ekki verið tekin en er til skoðunar.
Um þá túlkun Jóns F. Bjartmarz,
yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkis-
lögreglustjóra, að ekki felist aukið
aðgengi að skotvopnum með því
að færa þau í læstar hirslur bíla, er
vert að benda á að ólíkt lögreglu-
stöðvum eru bifreiðar gæddar
þeim eiginleika að fara í útköll með
lögregluþjónum. Ríkislögreglu-
stjóri telur hins vegar að aðgengi
sé óbreytt sökum þess að reglum
hefur ekki verið breytt, aðeins
framkvæmd þeirra.
Nítján Glock skammbyssur
Fyrirspurn Fréttatímans sneri að
því hvaða greining, gögn og rann-
sóknir væru lögregluembættum
til stuðnings við að ákvörðunar-
töku vegna skotvopna. Því var ekki
svarað en í upphafi árs svaraði Ólöf
Nordal innanríkisráðherra ítar-
legri fyrirspurn Katrínar Jakobs-
dóttur, formanns VG, um meðferð
lögreglu á skotvopnum. Þar kemur
fram að 19 Glock skammbyssur séu
þegar geymdar í 11 bifreiðum þriggja
lögregluembætta á Vestfjörðum,
Austurlandi og Suðurlandi. Skot-
vopn eru sömuleiðis geymd á 36
lögreglustöðvum. Alls telur vopna-
búr lögreglu um 600 skotvopn.
Ríkislögreglustjóri leggur mat á þörf
lögreglu fyrir vopnun en lögreglu-
stjórar meta staðsetningarþörf.
Ákvörðunin er studd með hættu-
mötum greiningadeildar, þarfa-
greiningu ríkislögreglustjóra og
áhættugreiningu á viðbúnaðargetu.
Tveggja daga námskeið
Á síðasta ári hóf Lögregluskóli
ríkisins, í samstarfi við ríkislög-
reglustjóra, að auka aðgerðar- og
valdbeitingarþjálfun almennra lög-
regluþjóna. „Farið var yfir reglur
um valdbeitingu sem og meðferð
valdbeitingartækja og vopna.“
Námskeiðin voru átta og stóðu
hvert um sig yfir tvo daga í um tutt-
ugu klukkustundir. „Á námskeið-
unum voru m.a. handtökuæfingar,
sjálfsvörn, skotvopnaþjálfun o.fl.,“
segir í svari ríkislögreglustjóra.
Til að hljóta heimild til beitingar
vopna þurfa lögreglumenn að hafa
hlotið „tilskilda þjálfun,“ standast
skotpróf árlega og hljóta samþykki
lögreglustjóra.
Friðsælasta ríki heims
Fjallað er um Ísland í bókinni Hátt-
ur byssunnar – blóðugt ferðalag um
heim skotvopna, eftir Ian Overton
blaðamann. Ísland telst friðsælasta
ríki heims. Rúmlega 72 þúsund
skotvopn eru löglega skráð sam-
kvæmt ríkislögreglustjóra. „Ég valdi
að fjalla Ísland vegna þess að landið
er ótrúlega friðsælt þrátt fyrir tals-
verða byssueign,“ segir höfundur
bókarinnar. Overton kom til Íslands
skömmu eftir að Sævar Rafn Jóns-
son var skotinn af lögreglu.
Stjórnmálin sinni eftirliti
„Mikilvægt er að fólk spyrji hvað
kalli á aukinn vopnaburð lögreglu,“
segir Overton. „Þegar stjórnmála-
menn reyna að setja lögreglu reglur
þá er það sjaldan til að takmarka
vald lögreglu til valdbeitingar.
Ímyndaðu þér stjórnmálamann
sem segir einfaldlega: „Nei, lög-
reglan fær ekki skotvopn.“ Sex
mánuðum síðar er lögreglumaður
skotinn. Ekki þarf mikið ímynd-
unarafl til átta sig á hvað verður
um stjórnmálamanninn sem ekki
vill leyfa lögreglunni að verjast.
Lögreglan verður ósnertanleg stétt
og því er ásetningur lögregluyfir-
valda til að vopnast ekki dreginn of
mikið í efa.“ Í þessi samhengi vekja
ummæli innanríkisráðherra, við
fréttastofu RÚV um tilfærslu vopna
í lögreglubíla, athygli. „Ég held að
þarna sé ekki verið að auka vopna-
Skammbyssur í ellefu lögreglubílum
Ian Overton, blaðamaður og
höfundur bókarinnar Háttur
byssunnar. Í bókinni er fjallað sér-
staklega um Ísland sem friðsælt
ríki með óvopnaða lögreglu en
nokkuð almenna skotvopnaeign.
Ríkislögreglustjóri
240
Gasvopn: 10
Haglabyssur: 29
Hríðskotabyssur: 65
Hríðskotarifflar: 6
Hálfsjálfvirkir rifflar: 17
Rifflar: 13
Skammbyssur: 100
Lögregluskólinn
22
Haglabyssur: 4
Rifflar: 2
Skammbyssur: 16
Höfuðborgarsvæðið
113
Fjárbyssur: 13
Gasvopn: 5
Haglabyssur: 5
Hríðskotabyssur: 5
Hríðskotarifflar: 1
Hálfsjálfvirkir rifflar: 1
Rifflar: 1
Skammbyssur: 82
Suðurnes
70
Fjárbyssur: 4
Haglabyssur: 6
Hríðskotabyssur: 2
Rifflar: 1
Skammbyssur: 57
Vestmannaeyjar
5
Fjárbyssur: 1
Skammbyssur: 4
Suðurland
25
Fjárbyssur: 8
Haglabyssur: 2
Rifflar: 2
Skammbyssur: 13
Austurland
16
Fjárbyssur: 5
Skammbyssur: 11
Skotvopnaeign lögregluembætta Vopnabúr lögreglu telur um 600 skotvopn
6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016