Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 01.04.2016, Side 40

Fréttatíminn - 01.04.2016, Side 40
5 góð ráð við kryddjurtaræktun 1Þó það sé gaman að byrja frá grunni og sá sjálfur er vænlegra til árangurs að kaupa græðlinga frá gróðurstöðvum. 2 Ekki spenna bogann of hátt í fyrstu. Byrjaðu á basiliku og svo geturðu unnið þig upp í erfiðari kryddjurtir. 3 Best er að skvetta smá vatni á kryddjurtirnar daglega, en ekki vökva þær vikulega eins og blóm. Auður Rafns segir að gott sé að láta pottinn standa í skál og áríðandi sé að í botni potts- ins sé smá krull eða steinar. 4 Mikilvægt er að klippa krydd-jurtir snemma og oft. Basil- iku er best að klippa ofan frá við efstu laufin. Við það þéttist plantan verulega. Ef hún er ekki klippt nægilega verður hún of hávaxin. Þetta á við um allar kryddjurtir. 5 Það á aldrei að taka neðstu stóru laufin því þau eru mik- ilvæg fyrir upptöku sólarljóss og birtu. Þess í stað á að tína lauf ofan frá enda eru þau nýjust og bragðast best. Heimildir: Leiðbeingastöð heimilanna, Auður Rafns á Spyr.is og fleiri. Þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum ELDHÚSINNRÉTTINGAR styrkur - ending - gæði HÁGÆða DaNSKar Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. til föstudaga kl. 09 til 18 Laugardaga kl. 11 til 15 Handprjónasamband Íslands Skólavörðustíg 19 s. 552-1890 www.handknit.is Aðrir litir í Léttlopa M yn di r | N or di cP ho to s/ G et ty Hönnuðurinn Katie Eary hefur hannað línu borðbúnaðar og ann- arra muna fyrir heimilið í samstarfi við IKEA. Línan sem kemur í sölu nú í apríl og sem ber heitið GILTIG. Hún verður aðeins til sölu í takmark- aðan tíma og því fá þeir sem fyrstir koma. Línan samanstendur af falleg- um og skrautlegum textíl og lifandi og litríkum munstrum. Katie Eary er þekktust fyrir að hanna framúr- stefnulegan og djarfan karlmanna- fatnað þannig að með hönnun sinni í samstarfi við IKEA fer hún vel út fyrir þægindarammann. Það sem er einna skemmtilegast við innanhússpælingar nú til dags er það hversu fjölbreytt flóra er í gangi. Fólk notar nýtt og notað í bland og fer jöfnum höndum í dýrar hönnunarbúðir, IKEA og Góða hirðinn; það er allt leyfilegt. Gráir og hvítir tónar eru alltaf ríkjandi í eldhúsum en blómapottar, eldhús- áhöld og jafnvel stólar eru í öllum regnbogans litum. Pottaplöntur af öllum stærðum og gerðum lífga upp á rýmið og þær er hægt að hafa bæði í glugganum, á bekknum eða hangandi. Opnar hillur þar sem fal- legir munir, bæði gamlir og nýir, fá að njóta sín er mikil prýði í eldhús. Katie Eery og IKEA í samstarf Það er allt leyfilegt Kryddjurtirnar lífga upp á eldhúsið Nú er tími til að huga að kryddjurtum fyrir sum- arið sem fara einkar vel á gluggasyllunni í eldhúsinu, lykta vel og bæta matseldina á heimilinu. Fallegir pottar með kryddjurtum geta heldur betur lífgað upp á eld- húsið. Þar að auki bæta ferskar kryddjurtir matseldina og ferska og skemmtilega lykt leggur yfir eldhúsið. Það hentar raunar einkar vel að rækta kryddjurtir í eldhúsinu, að því gefnu að sólar njóti þar við. Í eldhúsinu er stutt í vatn og þar er stutt að grípa til þeirra við elda- mennskuna. Um þessar mundir er vinsælt að hafa kryddjurtirnar hangandi í pottum en þær njóta sín jafn vel í hefðbundnum blóma- vösum eða bökkum. Nú er akkúrat tíminn til að fara að huga að kryddjurtaræktun fyrir sumarið. Ætli fólk að sá sjálft er tilvalið að gera það í apríl en svo er líka hægt að kaupa græðlinga frá gróðurstöðvum. Þá er rétt að umpotta þeim og vökva og passa að þær fái nóg af sól. Svo þarf að fylgjast vel með þeim, ekki vökva of mikið en um leið varast að láta þær ofþorna. Meðal þeirra kryddjurta sem auðvelt er að rækta heima við eru basilika, oregano, timjan, rósmar- ín, kóríander, dill, salvía, minta og graslaukur. | hdm 40 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.