Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 42
Myndir | Hari
Fjölmiðlahjónin Þórhildur
og Sveinn tóku eldhúsið í
gegn þegar þau fluttu í nýja
íbúð. Þórhildur nýtur þess
að horfa á bóndann elda og
láta hann snúast í kringum
sig.
„Í minningunni voru þessar fram-
kvæmdir svolítið eins og að fæða
barn. Þetta virtist endalaust með-
an á því stóð en þegar það var búið
þá man maður ekki hvað þetta var
langt og erfitt,“ segir Þórhildur
Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona
á Rás 1. Þórhildur og eiginmaður
hennar, Sveinn H. Guðmarsson,
fréttamaður á RÚV, fluttu í nýja
íbúð á Seltjarnarnesi í fyrra. Þau
tóku eldhúsið í gegn í flutning-
unum.
Brutu niður burðarvegginn
„Okkur langaði til að opna milli
stofu og eldhúss og sáum strax
möguleikana á því þegar við keypt-
um íbúðina. Við brutum niður
vegg sem samkvæmt teikningum
átti að vera venjulegur veggur en í
ljós kom að var burðarveggur. Þá
vorum við komin af stað og gátum
ekki snúið til baka. Við fengum
Helgu Guðrúnu Vilmundardóttur,
arkitekt og nágranna okkar, til að
kíkja yfir og hún hjálpaði okkur
að vinna úr ýmsum hugmyndum.
Helga kom strax með þá hugmynd
að færa hurðarop til sem hjálpaði
til við að nýta pláss. Hún stakk líka
upp á því að við fengjum skápa
alveg upp í loft sem eru faldir bak
við falskan vegg.“
Mikil vinna liggur að baki því að
velja réttu innréttingarnar í nýtt
eldhús. „Við skoðuðum út um allt
en enduðum á að kaupa HTH-inn-
réttingu. Ég er ekki að segja að við
hefðum kannski farið í eitthvað
annað ef við hefðum endalaus
fjárráð, en þessi innrétting var
bæði innan okkar stíls og fjárhags-
ramma,“ segir Þórhildur.
Innréttingin sem þau völdu er
hvít og höldulaus. „Það er athyglis-
vert að við erum ekki með neinar
hillur, maður þarf aldrei að teygja
sig upp eftir glösum eða diskum,
við opnum bara skúffur.“
Keypti Rolls Royce-inn í vöskum
Framkvæmdir sem þessar taka
gjarnan langan tíma og vinda upp
á sig. Sú varð raunin hjá Þórhildi
og Sveini. „Það þurfti að taka nið-
ur ofna og allt tók þetta lengri tíma
en við bjuggumst við. Við ætluðum
ekki að skipta um gólfefni en end-
uðum á að setja nýtt gólfefni á alla
íbúðina. Svo þurftum við að fá fag-
mann til að spartla veggina,“ segir
Þórhildur.
Þau þurftu að bíða í nokkrar
vikur eftir hinni fullkomnu borð-
plötu en sú er úr hnotu frá Fanntó-
felli. Hugmyndir þeirra um að
nýta gamla vaskinn í nýju innrétt-
inguna voru slegnar út af borðinu
með tilheyrandi kostnaði. „Sölu-
maðurinn sýndi okkur þennan og
sagði að hann væri Rolls Royce-inn
í vöskum. Ég sagðist bara ætla að
fá hann. Við vorum alltaf að horfa
í peningana í þessum framkvæmd-
um en ekki þarna. Týpískt reyndar
að í eina sinn sem ég kaupi Rolls
Royce af einhverju þá þurfi það að
vera vaskur. En hann er skínandi
demantur í þessari eldhúsinnrétt-
ingu, að vísu með ódýrum IKEA-
blöndunartækjum því við vorum
búin að sprengja kostnaðaráætl-
unina.“
Hrædd við minimalískan stíl
Hjónin voru, að sögn Þórhildar,
afar samstíga í þessum fram-
kvæmdum þar til kom að því að
velja flísar á annan eldhúsvegg-
inn. „Ég veit ekki hvað við fórum
margar ferðir í flísabúðir. Ég stakk
upp á perlumóðurflísum sem voru
eins og diskókúla. Sveinn var ekki
til í það og Helga arkitekt varð
hvít í framan þegar ég fór að viðra
þessar pælingar. Við vildum ekki
hvítar flísar því eldhúsið átti ekki
að vera eins og skurðstofa og við
vorum pínu hrædd við þetta míni-
malíska skandinavíska dót. Svenni
fann bláar flísar sem honum
fannst fallegar en ég var hrædd
um að maður fengi ógeð á þeim.
Hann hlustaði ekki á mig en hann
hlustaði hins vegar á stelpurnar í
saumaklúbbnum mínum þegar ég
bar þetta undir þær,“ segir Þór-
hildur en að endingu sættust þau á
gráar flísar.
„Þessi hnota er því kannski það
eina sem stendur eftir af upp-
runalegu hugmyndunum okkar.
Að öllu þessu sögðu er ég rosalega
ánægð með eldhúsið. Og ég er öll
að mildast í afstöðunni gagnvart
skandinavíska stílnum.“
En hvað með notagildið? Hef-
urðu unnið þrekvirki í þessu nýja
eldhúsi?
„Nei, eldhúsið er fyrir Svenna.
Guð, ég kem ekki nálægt þessu. Ég
sit á barstól við borðið og borða
af pönnunni þegar Svenni er að
elda. Ég horfi á hann gera allt og
læt hann rétta mér kaffibolla. Ég
er engin eldhúsgyðja sem sést til
dæmis á því að allar mínar hug-
myndir fyrir þessar framkvæmdir
voru fullkomlega óraunhæfar.“ |
hdm
Bóndinn fékk nýtt eldhús
Týpískt reyndar
að í eina sinn sem ég
kaupi Rolls Royce af
einhverju þá þurfi það
að vera vaskur.
Þórhildur Ólafsdóttir er ánægð með nýtt eldhús sitt í íbúðinni á Seltjarnarnesi.
Eldhús Þórhildar og Sveins er stílhreint og fallegt. Nóg pláss er í tækja- og búrskápum og húsfreyjan situr á barstól meðan bóndinn eldar.
42 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016
Heimili & hönnun