Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 44

Fréttatíminn - 01.04.2016, Síða 44
Unnið í samstarfi við ON Síðan 2014 hefur Orka nátt-úrunnar (ON) stýrt þróunar-verkefni með uppsetningu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla. Jón Sigurðsson viðskiptastjóri hefur haft yfirumsjón með verkefninu. „Við stigum fyrsta skrefið til að byggja upp innviði og hvetja til raf- bílanotkunar á Íslandi. Eftir því sem rafbílum fjölgar verður meiri þörf á hraðhleðslustöðvum,“ segir Jón. Nú þegar eru 10 stöðvar starfræktar, sex á höfuðborgarsvæðinu og svo á Selfossi, Akranesi, Reykjanesbæ og Borgarnesi. Þrjár til viðbótar eru í bígerð, tvær á Akureyri og ein við Hellisheiðarvirkjun. Tekur 20-30 mínútur að hlaða Rafbílaeign Íslendinga hefur vaxið hratt undanfarin ár. „Þegar við settum upp fyrstu hraðhleðslustöðina í mars árið 2014 voru um 100 rafbílar í notkun á landinu en núna er þeir nær 750. Fjölgunin er mun meiri en við áttum von á,“ segir Jón. Það tekur ekki nema um 20-30 mínútur að hlaða bílinn á hraðhleðslustöðvunum á móti 10-12 klukkutímum þegar hlaðið er heima. Hver hleðsla dugir um 100-150 kílómetra. Það er þó að breytast hratt. „Drægni bílanna er að aukast mikið, núna kaupir þú kannski bíl sem fer 200 kílómetra á hleðslu en sama tegund keypt í fyrra hefði kannski drifið 150 kílómetra. Bílarnir verða þó ekki dýrari fyrir vikið, þetta er bara svipað eins og var með þróun tölvunnar á sínum tíma.“ Rekstarkostnaður mikið lægri Virðisaukaskattur og önnur gjöld hafa ekki verið á rafbílum sem hefur gert fleirum kleift að festa kaup á rafbíl. „Stjórnvöld ættu þó að koma miklu meira að þessari þróun með fjármagni og stuðningi við að byggja innviði. Þetta er bara mjög mikið rætt núna, ekki síst eftir loftslagsráð- stefnuna í París þar sem þetta mál var númer eitt, tvö og þrjú, að minnka losun koltvísýrings út í andrúms- loftið.“ Rafbílar eru nú á sambærilegu verði og aðrir bílar en vissulega er rekstrarkostnaður miklum mun lægri þar sem hvorki þarf að hugsa um bensín- eða olíukostnað né olíuskipti. „Rafmagnið kostar bara örlítið brot af bensínkostnaði. Við erum ekki byrjuð að rukka fyrir rafmagnið á hrað- hleðslustöðvunum þar sem þetta er þróunarverkefni. Kynningar | Vistvænir bílar AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is ON í forystu í uppbyggingu innviða Rafbílar það sem koma skal. Hröð fjölgun rafbíla • ON hefur í dag forystu í upp- byggingu innviða fyrir rafbíla og hvetur til notkunar á grænni endurnýjanlegri orku. • Hraðhleðslan er hugsuð sem öryggisventill, flestir hlaða heima hjá sér. • Fjöldi rafbíla hefur meira en sexfaldast frá því fyrsta stöðin var opnuð í mars 2014. • Notkun stöðvanna er mikil og mun meiri en í flestum öðrum löndum. • Það eru mun fleiri hraðhleðslu- stöðvar á hverja 1.000 bíla á Íslandi en t.d. í Noregi. Reglum um raflagnir ábótavant Slæm aðstaða rafbílaeigenda sem búa í fjölbýlishúsum gæti hamlað fjölgun rafbíla á Íslandi. Mjög brýnt er að koma þessu í byggingarreglugerð og að gera kröfu um rafbílastæði við fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði, a.m.k. þeirra sem enn eru óbyggð. Það getur verið ansi snúið og kostnaðarsamt og jafnvel óframkvæmanlegt að koma þessu fyrir þegar mannvirki er þegar byggt. Grunndreifi- kerfið getur að öllum líkindum annað um 40 þúsund rafbílum til ársins 2030, en húskerfin eru yfirleitt alls ekki í stakk búin til að bæta við þessu álagi, bílastæða- hús gera ekki ráð fyrir þessu og lóðarskipulag reiknar ekki með rafbílastæðum á lóð. Það er í valdi þings og ráðuneytis umhverfis- og auð- lindamála að vinna að stefnumótun, setja ný ákvæði í byggingarreglugerð um rafbílastæði og breyttar hönn- unarforsendur til að bregðast við þessari auknu þörf. Ef rafbílum á að fjölga í takt við yfirlýsingar stjórnvalda þá þarf að bæta innviði og aðstöðu og möguleika fólks til að hlaða rafbíla sína heima, í vinnunni, þjónustubygg- ingum o.s.frv. Flestar byggingar á Íslandi, byggðar fyrir árið 2016, hafa ekki þessa möguleika, en eftir 20 ár væru það um 90% allra bygginga á Íslandi ef stjórnvöld bregðast strax við og setja ný ákvæði um rafbíla í bygg- ingarreglugerð. Jón Sigurðsson, viðskiptastjóri ON, við eina af hraðhleðslustöðvunum. Þær má finna á tíu stöðum nú þegar og þrjár til viðbótar eru í bígerð, þar af tvær á Akureyri. Mynd | Rut Vistvæn orka er mun ódýrari en olía og bensín og það verður sífellt auðveldara að reka vistvæna bíla Bensín- eða olíukostnaður við að eiga bíl getur hlaupið á tugum þúsunda í mánuði hverjum, að sjálfsögðu eftir bíltegund og akstri. Margir sem velta því fyrir sér að skipta yfir í vistvænni bíl eru einmitt að horfa í þennan kostnað. En hversu mikið er hægt að spara á því að vera á rafbíl eða öðrum vistvænum kosti? Orkusetur hefur útbúið reiknivél þar sem hægt er að fylla inn allar forsendur og sjá þá svart á hvítu hversu mikið sparast. Á sama stað er hægt að reikna út hversu mikið sparast með að skilja bílinn eftir heima og labba frekar, hversu mikið sparast með því að hjóla og ým- islegt fleira fróðlegt. Sjá á http:// orkusetur.is/reiknivelar/. Vistorkustæðum fjölgar Mörg sveitarfélög eru að setja á oddinn þjónustu við þá sem aka um á vistvænum bílum. Þar stend- ur Akureyri framarlega. Yfirlýst markmið bæjaryfirvalda á Akur- eyri er að hamla eins og kostur er gegn notkun mengandi jarðefna- eldsneytis. Í fyrra voru svokölluð vistorkustæði tekin til notkunar í bænum en þau stæði eru á besta stað og sérstaklega ætluð þeim sem aka um á ökutækjum knúnum rafmagni og/eða metani. Stæðin eru við Glerártorg, Ráðhúsið, Bautann, Menningarhúsið Hof og nú nýlega bættist Háskólinn á Ak- ureyri við en fjögur þeirra stæða eru búin rafhleðslustöðvum. Þessi skref eru hluti af þeirri stefnu sem Akureyrarbær hefur fylgt síðustu 10 ár; að kolefnishlut- leysa bæinn. Aðrir þættir í þeirri vegferð hafa til dæmis verið að bjóða frítt í strætó og efla lagningu hjóla- og göngustíga. Einnig hefur sorpflokkun í bænum verið til eftirbreytni síðustu ár. Af hverju vistvænn bíll? Á Akureyri eru vistorkustæði fyrir þá sem aka um á vistvænum bílum. 44 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.