Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 01.04.2016, Page 48

Fréttatíminn - 01.04.2016, Page 48
Unnið í samstarfi við Sæta svínið Í dásamlega fallegu rauðu bárujárns-húsi við Ingólfstorg hefur verið opn-aður „gastropub“ á fjórum hæðum; Sæta svínið. Ásthildur Bára Jensdóttir er rekstrarstjóri Sæta svínsins. „Við erum með góðan mat, margar tegundir af skemmtilegum bjór og góða kokkteila í léttu barumhverfi,“ segir hún. Matseðillinn samanstendur af réttum með alþjóðlegu ívafi en íslenska matar- hefðin er ekki langt undan. Meðal þess sem er að finna á fjölbreyttum matseðl- inum eru flatkökur með léttgrafinni bleikju, djúpsteiktar saltfiskkrókettur, hrefna og kleinur. Allt er þetta borið fram á nýstárlegan og framandi hátt með fersku hráefni sem kitlar bragðlaukana. Áhersla á létta stemningu á Sæta svíninu er allsráðandi. „Hér eru engar reglur og fólk má hafa þetta eins og það vill. Þú getur komið og fengið þér bjór og barsnakk eða þriggja rétta máltíð og keypt vínflösku með; eða kannski bara einn kokkteil,“ segir Ásthildur. Boðið er upp á hádegismat á Sæta svíninu frá 11.30 til 14.30 og kvöldverð frá 17 til 23.30. Þess á milli er hægt að fá barsnakk og minni rétti. Nafnið á staðnum vekur jafnan athygli. „Þetta byrjaði sem vinnuheiti en festist svo bara við staðinn þannig að það var ákveðið að halda því,“ segir Ásthildur. Sömu aðilar reka Sæta svínið og Tapasbarinn, Sushi Samba og Apotek Kitchen and Bar þannig að innanbúðar er mikil reynsla af happasælum rekstri. Kynningar | Matartíminn AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is Létt stemning á Sæta svíninu Frábær matur og drykkir í fallegu umhverfi Ásthildur segir að gestir sammælist allir um að andrúmsloftið sé einstaklega létt og skemmtilegt á Sæta svíninu. Þetta rauða bárujárnshús sem hýsir svínið sæta er einstök prýði fyrir miðbæinn. Unnið í samstarfi við Massimo og Katia Á Laugarásveginum er að finna ekta ítalskan veitingastað sem hjónin Massimo og Katia reka. Staðurinn ber nafnið Massimo og Katia og þar er boðið upp á ekta ítalskan heimilismat. Hjónin Massimo og Katia reiða fram handgert pasta og heimabakað brauð á hverjum degi. Allt er búið til á staðnum og því er maturinn eins ferskur og helst verður á kosið. „Við gerum bæði pasta fyrir veit- ingastaðinn og svo er hægt að kaupa ferskt pasta í kílóavís og elda heima,“ segir Katia. Þau eru bæði með venju- legt pasta sem og fyllt pasta. Á veitingastaðnum er einnig að finna ýmsar innfluttar vörur, svo sem kex, ólífur, olíur og girnilega osta á borð við parmeggiano og gorgonzola. „Brauðið okkar er einnig allt bakað hér og fylgir með öllum okkar réttum,“ segir Katia. Þá er hægt að fá tilboð hjá þeim fyrir afmæli eða önnur tilefni. „Við sjáum um að reiða fram ekta ítalska veislu fyrir öll tilefni,“ segir Katia áður en hún hverfur aftur til starfa. Ekta ítalskt brauð og pasta Ítalskur matur á frábæru verði hjá Massimo og Katia á Laugarásveginum 2 fyrir 1 á lasagne Næstu 2 vikur er 2 fyrir 1 tilboð á gómsætu lasagne á aðeins kr. 1.450. Hjónin Massimo og Katia reiða fram handgert pasta og heimabakað brauð á Laugarás- veginum. „Við gerum bæði pasta fyrir veitingastaðinn og svo er hægt að kaupa ferskt pasta í kílóavís og elda heima.“ 48 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 1. APRÍL–3. APRÍL 2016 LAGER SALA Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 1.-2. apríl

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.