Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. LA PALMA Netverð á mann frá kr. 120.785 m.v. 2 fullorða og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 159.995 m.v. 2 í herbergi. Hotel La Palma Princess Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Kanaríeyjan Frá kr. 120.785 m/allt innifalið 22. des. í 10 nætur Um jólin 20.000kr. afsláttur á mann v/forfalla Hagsmunatengsl verða birt  Verið að bregðast við gagnrýni á dómstóla, segir formaður Dómarafélagsins Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hæstiréttur ætlar að gera upplýsingar um hags- munatengsl hæstaréttardómara aðgengileg á heima- síðu dómstólsins frá ársbyrjun 2017. Þær upplýsing- ar sem verða birtar eru aukastörf dómara, fasteignir í eigu dómara sem ætlaðar eru til annars en eigin nota, eignarhlutar í hvers kyns félögum, allar skuldir dómara sem ekki tengjast öflun fasteigna til eigin nota og aðild að félögum sem ekki starfa með fjár- hagslegu markmiði. Upplýsingarnar miðast við stöðu í ársbyrjun 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hæstarétti. Hún kemur í kjölfar umfjöllunar um hagsmuna- tengsl dómara við Hæstarétt. Meðal annars hefur verið fjallað um hlutabréfaeign nokkurra dómara í ís- lensku bönkunum fyrir hrun og í peningamarkaðs- sjóðum sem töpuðu talsverðum fjármunum í hruninu. Dæmdu þessir sömu dómarar í málaferlum gegn fyrrverandi starfsmönnum föllnu bankanna. Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Ís- lands, segir að túlka megi ákvörðun hæstaréttardóm- aranna sem viðbrögð við meinbugum á þeim reglum sem settar hafa verið um skráningu og upplýsinga- gjöf um hagsmunatengsl dómara. Hann telur að með þessu sé gengið lengra en annars staðar í heiminum. Spurður hvort í þessu felist viðurkenning á hags- munatengslum dómaranna í umræddum málum tel- ur Skúli að fyrst og fremst sé verið að bregðast við óvæginni gagnrýni á dómara og dómstóla. „Ég held að það sé ekki hægt að líta framhjá því að trúverð- ugleiki dómstóla hefur beðið hnekki vegna þessarar umræðu, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr,“ segir Skúli. Hann segir reglurnar ekki settar í samvinnu við Dómarafélagið og ekki hafi verið rætt hvort dómarar á öðrum dómstigum muni sæta sömu reglum. Í aðsendri grein Hauks Arnar Birgissonar hæsta- réttarlögmanns í viðskiptahluta Morgunblaðsins í dag segir að hann telji að nefnd um dómarastörf hafi gerst sek um brot á stjórnsýslulögum með því að til- kynna ekki dómurum formlega um heimild þeirra til hlutabréfaeignar. „Ég held að það sé ekki hægt að líta framhjá því að trúverðug- leiki dómstóla hefur beðið hnekki.“ Skúli Magnússon „Í augnablikinu eru stjórnarmynd- unarviðræðurnar í pattstöðu. Þar að auki er álag í þinginu við afgreiðslu mála þar, svo fólk hefur ekki mikinn tíma til að tala saman,“ segir Bene- dikt Jóhannesson, formaður Við- reisnar. „Mér finnst ósennilegt að nokkuð gerist fyrr en í fyrsta lagi um helgina. Það eru nokkrir tæknilegir möguleikar í stöðunni. Enn sem kom- ið er tel ég að Viðreisn, Björt framtíð og Sjálfstæðisflokkur séu ekki tilbúin að setjast niður aftur. Ég ætla ekki að útloka neitt stjórnarmynstur, nema að við göngum ekki sem þriðji flokkur inn í núverandi stjórnarsam- starf.“ Hægt miðar í viðræðunum um myndun nýrrar ríkssstjórnar, skv. samtölum Morgunblaðsins í gær- kvöldi við talsmenn flokkanna. Birg- itta Jónsdóttir, forystukona Pírata, skilaði umboði forseta Íslands til stjórnarmyndunar á mánudag. Síðan þá hefur fólk átt í óformlegum við- ræðum, en þær hafa þó ekki leitt af sér neina hreyfingu á málum. Segja viðmælendur Morgunblaðsins sem svo að eftir hverja viðræðulotu þurfi fólk andrúm bæði til að meta stöðuna og safna kröftum fyrir næstu törn. „Fólk talar saman á kaffistofunni á Alþingi, en þar erum við fyrst og fremst að vinna í þingmálum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. „Ég er ekkert endilega bjartsýnn á að stjórnarmyndun náist fyrir jól,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokks. Núverandi starfs- stjórn segir hann skorður settar. Ekki sé hægt að fara í aðgerðir sem þörf sé á, eins og nú þegar gengi krónunnar er að styrkjast, sem geti komið útflutningsgreinunum í vanda. sbs@mbl.is Möguleikar í pattstöðu  Afgreiðsla þingmála tefur stjórnarmyndun Útiloka ekkert, segir Benedikt  Starfsstjórn eru skorður settar Morgunblaðið/Eggert Viðræður Formenn Bjartrar fram- tíðar og Viðreisnar koma til fundar. Veður verður um- hleypingasamt næstu daga en fer síðan kólnandi í næstu viku. Tíu dagar eru til jóla og mörg jólabörn orðin úrkula vonar um að jólin verði hvít. Veður- fræðingur á Veðurstofu Ís- lands segir alls ekki útilokað að snjó- korn falli á allt og alla á jólunum. „Næstu daga verða miklir umhleyp- ingar í veðrinu en lægðirnar koma hver á fætur annarri,“ sagði Theodór Freyr Hervarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is í gær. Í dag er búist við stífri suðaust- anátt um allt land og hvassast verður á Norður- og Ausurlandi. Veður fer kólnandi í næstu viku, spár gera ráð fyrir frosti á höfuðborg- arsvæðinu á þriðjudagskvöld, 20. des- ember. „Í næstu viku er hann heldur að fara kólnandi. Tölurnar verða mikið til rauðar fram í næstu viku en þá gæt- um við farið að sjá einhvern snjó,“ sagði Theodór. Hann segir aðfanga- dag og jóladag ekki komna inn í spá- gluggann en þó sé hægt að sjá ein- hverjar vísbendingar. Aðspurður sagði Theodór möguleika á hvítum jólum. „Það er alls ekki útilokað.“ Hann segir að spám beri ekki saman um hvernig viðra muni á Þorláksmessu. „Það lítur út fyrir að þá verði norðanátt og hún gæti jafnvel verið hvöss. Spám ber einna helst saman um að það verði kaldara í næstu viku en ekki um veðrið frá degi til dags.“ Ekki hægt að útiloka hvít jól Theodór Freyr Hervarsson  Búist við kaldara veðri í næstu viku Flogið var með 28 ríkisborgara frá Albaníu héðan til síns heima á mánu- daginn. „Upphaflegri áætlun var seinkað vegna bilunar í flugvél sem fengin var til að flytja fólkið en öll samskipti við albönsk yfirvöld voru til fyrirmyndar og ekkert sem tafði ferðina vegna þess,“ segir Jón F. Bjartmarz, yfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. „Ferðin gekk vel, brottfarartími stóðst klukkan 19:30 og tekið á móti fólkinu í Albaníu við lendingu. Allar að- gerðir á flugvellinum í Albaníu gengu snurðulaust fyrir sig,“ segir Jón. Flogið heim með 28 Albana Fjölmenni var á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Fundurinn var haldinn vegna ófyrir- séðrar mengunar frá kísilveri United Silicon í Helguvík þar sem umræður um málefnið hafa verið heitar. Íbúar hafa sent ábendingar og kvart- anir til Umhverfisstofnunar og undirskriftalista með mótmælum gegn frekari uppbyggingu kísil- vera í Helguvík. Fulltrúar bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar, United Silicon, Orkurannsókna Keilis og Umhverfisstofnunar fluttu framsögu og í framhaldinu fóru fram pallborðsumræður og tek- ið var við spurningum úr sal. Pallborðsumræður í Stapa vegna mengunarmála á Reykjanesi Ljósmynd/Páll Ketilsson Fjölmenni á fundi um starfsemi kísilvers
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.