Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
saman, en meginviðfangsefni goð-
sögunnar eru mjög mörg og mjög
flókin – það er hægt að túlka hana á
mjög marga vegu sem er ástæðan
fyrir því að margir hafa notað hana
sem efnivið og margir miklu merkari
listamenn en ég. Ég leyfi mér þó að
nota þetta svona enn og aftur og
reyna kannski að finna nýja nálgun.“
Þröskuldar og landamæri
og minningar
„Fyrir mér fjallar Orfeusar-
goðsagan um þröskulda og landa-
mæri milli heima. Í goðsögunni er
það milli lífs og dauða, á milli heims
hinna lifandi og heims hinna dauðu,
milli birtu og myrkurs. Svo er þetta
líka goðsaga sem fjallar um minn-
ingar, finnst mér, minningar um
hina dauðu og hvernig við tengjum
við okkar nánustu sem eru fram-
liðnir. Síðan líka einhvern veginn
þessi þröskuldur þegar ég var hérna
í Berlín, annarskonar þröskuldur
sem birtist í múrnum og þegar Evr-
ópu var skipt í tvennt. Ég bý í húsi
sem er beint fyrir framan þar sem
múrinn var, og það er einhver þrösk-
uldur á milli tveggja hugmynda-
heima eða hugmyndakerfa.“
Tilviljanakennd orð og tölur
„Þá fór ég að hugsa um myndina
Orphée eftir Jean Cocteau og atriði í
þeirri mynd þar sem Jean Marais,
sem leikur Orfeus, er að hlusta á út-
varpsútsendingar í bílnum sínum og
þær eru vélræn rödd sem les upp til-
viljanakennd orð og tölur eins og ab-
strakt ljóð. Þetta eru mjög flott og
súrrealísk atriði sem Cocteau byggði
á útsendingum BBC í stríðinu sem
voru dulmálsskilaboð fyrir flugu-
menn hinum megin við víglínuna.
Síðan héldu þessar útsendingar
áfram í kalda stríðinu og voru mjög
víða, það var mjög auðvelt að hlusta
á þær ef maður var með stutt-
bylgjutæki. Þetta voru oftast kven-
raddir, mjög vélrænar, sem lásu upp
raðir af tölum og bókstöfum og ég
ákvað að nota þennan þátt í plötunni
sem einskonar hyllingu Cocteau-
myndarinnar og líka sem nokkurs-
konar raddir að handan. Þetta er
mjög seiðandi og sterkt, raddirnar
eru mjög ljóðrænar á einhvern und-
arlegan hátt. Það er líka einhver feg-
urð í hljóðinu, stuttbylgjuhljóðinu og
þegar ég blanda því saman við
strengjasveit verður mjög fallegur
kontrastur. Þetta er aðferð sem ég
hef notað áður, notaði í IBM 1401, A
User’s Manual, þar sem ég notaði
líka fundnar raddir þannig að þetta
er kannski ákveðin tenging við eldri
verk.“
Verk fyrir augu og eyru
– Hvað ertu með í gangi núna?
„Núna er ég að vinna að þremur
verkefnum. Ég er að vinna að verk-
efni með Denis Villeneuve, hef verið
að vinna í allt sumar að tónlistinni í
Blade Runner 2049, en við höfum
gert þrjár myndir saman, Prisoners,
Sicario og Arrival.
Annað verkefni er tónlist við kvik-
mynd eftir Darren Aronofsky,
Mother, ný mynd sem hann er að
vinna að sem er mjög spennandi
verkefni.
Þriðja verkefnið er svo nýtt sóló-
verkefni sem verður frumsýnt næsta
sumar, verk fyrir augu og eyru. Ég
vinn það að öllu leyti sjálfur, geri
tónlistina og myndina. Ég gaf út í
fyrra stuttmynd sem heitir End of
Summer sem var í fyrsta skipti sem
ég hef gert eitthvað svona. Byggði
hana á mynd sem ég tók í ferð sem
mér var boðið í til Suðurskautslands-
ins, en sú mynd sem ég er að vinna
að núna er í fullri lengd og minna ab-
strakt. Það eru engir leikarar sýni-
legir í myndinni en það er sögumað-
ur, ég var svo heppinn að fá Tildu
Swinton til þess að lesa inn á hana.
Frásögnin er byggð á bókinni
Last and First Men eftir Olaf Sta-
pelton. Hann var mjög áhugaverður
höfundur, en er eiginlega gleymdur í
dag. Hann var þó mjög merkilegur
og hefur haft mikil áhrif á bók-
menntalegar vísindaskáldsögur.
Last and First Men er saga mann-
kyns frá um 1930 til endaloka sól-
kerfisins, framtíðarsagnfræði og
framtíðarmannfræði og stúdía á
komandi tegundum og þeim teg-
undum af dýrum sem við munum
þróast í til að vera. Það er of snemmt
að segja frá því hvar þetta verður
frumsýnt, ég má ekki tala um það, en
það verður með lifandi tónlist-
arflutningi á stórri tónlistarhátíð.
Verkið verður til sem tónlistarmynd
og mynd sem flutt verður með lif-
andi undirleik.“
að gera mitt
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
Orphée er tíunda sólóskífa Jó-
hanns Jóhannssonar, á undan eru
komnar Englabörn (2002), Virðu-
legu forsetar (2004), Dís (2004),
IBM 1401, A User’s Manual
(2006), Fordlandia (2008), And In
The Endless Pause There Came
The Sound Of Bees (2009), The
Miners’ Hymns (2011) og End of
Summer (2015).
Hann hefur samið tónlist við á
þriðja tug kvikmynda, fyrst Ís-
lenska draumnum árið 2000, en
síðan komu Óskabörn þjóðarinnar
(2000), Maður eins og ég (2002),
Dís (2004), Blóðbönd (2006),
Personal Effects (2009), By Day
and By Night (2010), Dreams in
Copenhagen (2010), The Miners’
Hymns (2011), The Good Life
(2011), For Ellen (2012), Free The
Mind (2012), White Black Boy
(2012), Mystery (2012), McCanick
(2013), Prisoners (2013), I Am
Here (2014), The Theory of
Everything (2014), Sicario (2015),
Arrival (2016) og Lovesong (2016)
og væntanlegar eru á næsta ári
Mother og Blade Runner 2049.
Hljóðrásir við níu myndanna hafa
verið gefnar út á plötum.
Jóhann hefur einnig samið tón-
list fyrir sjónvarpsþætti, tónlist
við á annan tug leikrita og einnig
tvö dansverk.
Hann lék einnig inn á allmargar
plötur með hljómsveitunum Daisy
Hill Puppy Farm, Ham og Orgel-
kvartettnum Apparati.
Afkastamikill og fjöl-
hæfur vinnuþjarkur
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 15/12 kl. 20:00 133. s Fös 6/1 kl. 20:00 138. s Lau 21/1 kl. 20:00 143. s
Fös 16/12 kl. 20:00 134. s Sun 8/1 kl. 20:00 139. s Sun 22/1 kl. 20:00 144. s
Lau 17/12 kl. 20:00 135. s Fim 12/1 kl. 20:00 140. s Fim 26/1 kl. 20:00 145. s
Sun 18/12 kl. 20:00 136. s Lau 14/1 kl. 20:00 141. s Lau 28/1 kl. 20:00 146. s
Mán 26/12 kl. 20:00 137. s Sun 15/1 kl. 20:00 142. s Sun 29/1 kl. 20:00 147. s
Janúarsýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 17/12 kl. 13:00 22.s Lau 14/1 kl. 13:00 26.s Sun 29/1 kl. 13:00 30. s
Sun 18/12 kl. 13:00 23.s Sun 15/1 kl. 13:00 27.s Lau 4/2 kl. 13:00 31. s
Mán 26/12 kl. 13:00 24.s. Lau 21/1 kl. 13:00 28.s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s
Sun 8/1 kl. 13:00 25.s Sun 22/1 kl. 13:00 29.s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 4/1 kl. 20:00 Lau 7/1 kl. 20:00 Síðasta s.
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðasta sýning.
Ræman (Nýja sviðið)
Mið 11/1 kl. 20:00 Frums. Sun 15/1 kl. 20:00 3. sýn Fim 19/1 kl. 20:00 5. sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 2. sýn Mið 18/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 6. sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Jólaflækja (Litli svið )
Lau 17/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 18/12 kl. 13:00 Aukas. Mán 26/12 kl. 13:00 Aukas.
Bráðfyndin jólasýning fyrir börn
Jesús litli (Litli svið )
Fim 15/12 kl. 20:00 7. sýn Sun 18/12 kl. 20:00 9. sýn
Lau 17/12 kl. 20:00 8. sýn Mán 26/12 kl. 20:00 aukas.
Margverðlaunuð jólasýning
Hún Pabbi (Litla svið )
Fös 6/1 kl. 20:00 Frums. Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 5 sýn
Lau 7/1 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/1 kl. 20:00 4. sýn Lau 21/1 kl. 20:00 6. sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Salka Valka (Stóra svið)
Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn
Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn
Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn
Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 15/1 kl. 19:30 34.sýn Fim 26/1 kl. 19:30 36.sýn
Sun 8/1 kl. 19:30 33.sýn Fös 20/1 kl. 19:30 35.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 13/1 kl. 20:00 Akureyri Fös 27/1 kl. 19:30 35.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 Akureyri Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn
Fim 26/1 kl. 19:30 34.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 37.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Þri 20/12 kl. 19:30 Forsýn Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn
Mið 21/12 kl. 19:30
Aðalæfing
Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn
Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn
Mán 26/12 kl. 19:30
Hátíðarsýning
Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 17/12 kl. 11:00 Lau 17/12 kl. 14:30 Sun 18/12 kl. 13:00
Lau 17/12 kl. 13:00 Sun 18/12 kl. 11:00 Sun 18/12 kl. 14:30
Sívinsæla aðventuævintýri Þjóðleikhússins 12 árið í röð
Jólakósí með Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs
(Þjóðleikhúskjallari)
Lau 17/12 kl. 18:00
aukatónleikar
Lau 17/12 kl. 21:00
Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs syngja inn jólin í rólegheitastemningu.
Gott fólk (Kassinn)
Fös 6/1 kl. 19:30 Frums Fim 12/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 19/1 kl. 19:30 5.sýn
Lau 7/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 14/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Fös 13/1 kl. 19:30 Mið 18/1 kl. 19:30
Sun 15/1 kl. 14:00 Fim 19/1 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 16/12 kl. 20:00
Tilraunasýn
Lau 14/1 kl. 20:00 4.sýn Fös 20/1 kl. 22:30 8.sýn
Fim 12/1 kl. 20:00 1.sýn Lau 14/1 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/1 kl. 20:00 9.sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 2.sýn Fim 19/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 21/1 kl. 22:30 10.sýn
Fös 13/1 kl. 22:30 3.sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7.sýn Fim 26/1 kl. 20:00 11.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn
Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan)
Lau 14/1 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Sýningum lýkur í nóvember!