Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16 Erró grafík – sölusýning Sýningar í Gallerí Fold til jóla Ísland fyrir börn og fullorðna Linda Ólafsdóttir Sýning á frumteikningum úr barnabókinni Íslandsbók barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunannna.     Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fréttir af velgengni tónskáldsins Jó- hanns Jóhannssonar eru tíðar, nú síðast að hann hefði verið tilnefndur til Golden Globe-verðlaunanna fyrir tónlist sína í myndinni Arrival, en hann fékk einmitt Golden Globe- verðlaun fyrr á árinu fyrir tónlistina í myndinni The Theory of Every- thing. Það bar og fleira við á árinu, því Jóhann sendi frá sér sólóskífuna Orphée sem þýska stórfyrirtækið Deutsche Grammophon gaf út. Það er því ærið tilefni að ræða við Jóhann og hann tekur þeirri mála- leitan vel þegar ég hringi í hann til Berlínar þar sem hann hefur búið undanfarin ár. Samtal okkar hefst með spjalli um merkimiða sem eru blaðamönnum mjög kærir, en tón- listarmenn kunna alla jafna illa lítt að meta. Jóhann segist til að mynda ekki vel sáttur við það þegar tónlist hans er sögð klassísk tónlist eða ný- klassísk, hvort tveggja sé mjög óná- kvæm lýsing á því sem hann er að gera. „Það eina sem er nákvæmt við þá merkimiða er að ég er að nota samskonar hljómsveitarskipan og notuð er hjá sinfóníuhljómsveitum sem spila oft klassíska tónlist og líka barokktónlist, nútímatónlist og svo framvegis. Fyrir mér eru þessi hljóðfæri þó bara tæki, þetta er bara hluti af minni tónsmíðapallettu, þeim hljóðaheimi sem ég nota og mér finnst það ekki gera mig að klassísku tónskáldið að nota strengjakvart- ett.“ Kategoríur skipti minna „Ég er tónskáld og mér finnst engin ástæða til að upphefja það orð sérstaklega. Bubbi er tónskáld og Megas er tónskáld þótt það sé kannski nákvæmara að kalla þá lagasmiði af því þeir semja líka texta, en Miles Davis er líka tón- skáld. Ég á oft þessar samræður við blaðamenn því það eru allir í vand- ræðum með hvað á að kalla þá tónlist sem ég sem. Mér er í raun alla jafna sama hvað menn kalla tónlistina, en læt það oft í ljós að ég sé ekki sáttur við það þegar menn segja tónlistina klassík eða nýklassík. Ég er bara á mínum bás að gera mitt þó ég finni samhljóm með ákveðnum sam- ferðamönnum. Ég finn til dæmis mikla tengingu við tónlistarmenn eins og Stephen O’Malley úr Sunn O))), ágætur vinur minn og við höf- um unnið vel saman, en síður við Max Richter en okkur er oft líkt saman. Ég held að kategoríur skipti minna máli fyrir fólk dag, það er eitt af því jákvæða við breytingar á dreifingu á tónlist að þegar maður setur iTunes á slembispilun stekkur maður frá strengjakvartett eftir Sjostakovitsj yfir í svartmálm. Mitt tónlistaráhugasvið er mjög vítt og ég hef áhuga á tónlistarmönnum sem eru að gera eitthvað afgerandi, eitt- hvað nýtt og spennandi. Það er heimurinn sem ég hrærist í hvort sem viðkomandi er að semja sam- tímatónlist eða raftónlist eða spuna eða tilraunir. Flokkunin skiptir mig engu máli heldur það hversu áhuga- verð og hversu sterk rödd listmanns- ins er.“ Átta plötur á fjórum árum Jóhann hefur verið iðinn við tón- smíðar á undanförnum árum enda mjög eftirsóttur sem kvikmynda- tónskáld og á síðustu fjórum árum hafa þannig komið út átta plötur með kvikmyndatónlist. Þegar Orp- hée kom út voru aftur á móti fimm ár frá síðustu sólóskífu Jóhanns, The Miners’ Hymns, sem hann vann með Bill Morrison. Sú tónlist heyrðist fyrst með samnefndri kvikmynd, eða kvikmyndaverki, en Jóhann segist líta á plötuna frekar sem sólóplötu en sem kvikmyndatónlist enda var tónlistin samin fyrst og myndin síð- an klippt við hana. „Það má þó kannski segja að The Miners’ Hymns sé á mörkunum, enda var hún samvinnuverkefni, en síðasta hreinræktaða sólóplatan af gamla skólanum var aftur á móti Ford- landia sem kom út 2008.“ Harmónísk stígandi sem flæðir upp á við – Þótt það séu mörg ár frá síðustu sólóskífu hefur þú haft nóg að gera, sem sést til dæmis á því að það hafa komið út átta plötur á síðustu fjórum árum og Orphée er sú níunda. „Ég fer í stúdíóið á hverjum degi, þó að ég vinni kannski ekki allan daginn, alla daga, þannig að ég kemst yfir mikið.“ Jóhann segir að Orphée sé byggð á efni sem varð til 2009 þegar hann samdi helstu hlutana í því verki og átti að verða næsta sólóplata á eftir Fordlandiu. „Svo fóru önnur verk- efni aftur á móti að taka meiri tíma og síðan fór allt þetta Hollywood-dót í gang þannig að ég hafði minni tíma til að sinna þessari plötu. Ég sinnti henni þó alltaf eitthvað á hverju ári þannig að það var stöðug þróun frá 2009 til 2016. Ég notaði líka tækifæri þegar ég var að taka upp orgel fyrir eitthvert verkefni og tók þá upp orgel í leið- inni fyrir eitthvað lag á Orphée. Stundum setti ég upp upptökulotu þegar ég var með eitthvað ákveðið fyrir plötuna sem mig langaði til að taka upp en síðan er þetta eins og vistkerfi hugmynda sem eru tengdar grunnhugmyndinni á plötunni. Grunnmótívið er hljómagangur, harmónísk stígandi sem flæðir upp á við, eins og hún sé á endalausri upp- leið. Það fyrsta plantan og síðan spruttu greinar út frá stofninum sem byggðust á þessari grunnhugmynd.“ Hef ræktað garðinn í sex ár „Á sólóplötum mínum hef ég oft- ast byrjað með grunnhugmynd, en til dæmis eins og IBM 1401, A User’s Manual og Fordlandia. Upp- haf þeirra var ákveðin hugmynd sem mótaðist áður en ég byrjaði að semja tónlistina. Orphée óx aftur á móti og það má segja að ég hafi verið að rækta garðinn í þessi sex ár. Í lok síðasta árs tók ég svo loksins ákvörð- un um að klára plötuna og þá fór líka fullt að gerast, þegar maður fær skilafrest og hlutirnir verða raun- verulegir þá gerist fullt og þá spruttu upp nýjar hugmyndir og nýjar tengingar. Mér þykir mjög vænt um þessa plötu og hún er persónuleg að ýmsu leyti. Óhjákvæmilega er hún eins konar dagbók yfir þessi sex ár, yfir tímabil þar sem ég var hægt og hægt að flytja frá Danmörku hingað til Berlínar, hlutir í mínu persónulega lífi breyttust og sambönd breyttust, gömul sambönd dóu og ný mynd- uðust. Þetta er dagbók að einhverju leyti, eins mikið og hægt er að gera það með leikinni tónlist, en síðan tengdi ég við goðsögnina um Orfeus. Ég veit eiginlega ekki almenni- lega af hverju, það tók mig dálítinn tíma að átta mig á því af hverju ég var að tengja Orfeus við þetta allt Ég er bara á mínum bás  Á síðustu fimm árum hefur Jóhann Jóhannsson samið tónlist við ellefu kvikmyndir  Loks gafst tími fyrir sólóplötu og Orphée kom út í haust Tónskáldið Jóhann Jóhannsson hefur sent frá sér átta plötur á síðustu fjórum árum, Orphée er sú níunda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.