Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 73
MINNINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 ✝ Kristín MargrétGuðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 14. maí 1930. Hún lést á deild A6 á Borgarspítalanum 3. desember 2016. Foreldrar Krist- ínar voru Björg Ólafsdóttir, f. 5. apríl 1902 í Reykja- vík, d. 30. júní 1972, og Guðjón Jónsson, f. 10. nóvember 1895, frá Haf- þórsstöðum í Norðurárdal, d. 12. október 1972. Systkini Kristínar: Ásta Sigríður, f. 1928, d. 2009, Halldóra Katrín, f. 1931, Ólafur Hafþór, f. 1932, d. 2010, Hólm- fríður, f. 1937, d. 2015, Ingibjörg, f. 1940. Kristín giftist 1. júní 1952 Ólafi Ásgeir Sigurðssyni frá Vestmannaeyjum, f. 28. október 1929, skrifstofumanni og síðar deildarstjóra sjódeildar hjá Al- mennum tryggingum. Foreldrar Ólafs voru Sigurður Ásgeir Gunnarsson verslunarmaður frá Vík í Vestmannaeyjum, f. 18. febrúar 1902, d. 12. október 1941, og Sigríður Geirsdóttir frá Reykjavík en 1942 flutti fjöl- skyldan að Jaðri við Sundlauga- veg, síðar Brúnaveg 1. Fyrstu tvö ár hjónabandsins bjuggu Kristín og Ólafur í Vestmannaeyjum, næstu fimm árin á Barónsstíg 49. Árið 1959 var aftur flutt á Brúna- veginn, nú á númer 3, þar sem hún ásamt þremur systkinum byggðu húsið Brúnaveg 3 og 5 og bjuggu þar með fjölskyldur sín- ar. Kristín og Ólafur fluttu árið 2012 í Hvassaleiti 56. Kristín útskrifaðist úr Kvennaskóla Reykjavíkur 1948, vann við verslunarstörf í Oculus, undirfata- og nærfataverslun, fór til Noregs og stundaði nám við Riisby Husmorskole, Dokka í Noregi, veturinn 1949-1950, starfaði síðan á skrifstofu Sjúkrasamlags Reykjavíkur þar til hún gifti sig og helgaði sig húsmóðurstörfum og barnaupp- eldi. Hún hafði umsjón með styrktarmannakerfi Sjálfstæð- isflokksins frá upphafi þess 1989 til ársins 2000 er hún hætti fyrir aldurs sakir, áður hafði hún unn- ið árum saman við happdrætti flokksins. Sundlaugarnar stundaði hún frá unglingsaldri fyrst í Sund- deild KR og síðar næstum dag- lega í Laugardalslaug meðan heilsan leyfði. Útför hennar fer fram frá Ás- kirkju í dag, 15. desember 2016, klukkan 13. Kanastöðum í Vest- mannaeyjum, síðar saumakona í Reykjavík, f. 7. júlí 1907, d. 29. nóv- ember 1985. Börn Kristínar og Ólafs eru 1) Björg, f. 6. apríl 1952, maki Þröstur Guðmundsson, þau ættleiddu Kristínu Margréti, sambýlis- kona hennar er Natasha Björk Brynjarsdóttir. 2) Sigurður Ás- geir, f. 18. september 1954, 3) Halldór Gunnar, f. 16. júlí 1958, d. 18. september 2014, börn hans eru Ásgeir, unnusta hans er Ragnhildur Dóra Elíasdóttir og eiga þau dótturina Karítas Öldu, Arndís, sambýliskona hennar er Berþóra Gná Hannesdóttir, Sig- urður, unnusta hans er Kristrún Björg Nikulásdóttir. 4) Ólafur Kristinn, f. 18. apríl 1963, maki Anna María Bjarnadóttir, börn þeirra eru Marey, unnusti henn- ar er Birgir Blöndahl, og Bjarni Valgeir. Kristín fæddist í Reykjavík og bjó fyrstu árin á Öldugötu 47 í Augnablikið er ljúfsárt, það er komið að leiðarlokum, þú hefur lokað augunum, ert laus við súr- efnið, hóstann og verkina í fótun- um og ég hugsa til baka. Eftir að mamma útskrifaðist úr Kvennó lá leiðin á Riisby-hús- mæðraskóla í Noregi þar sem hún óf dúka, prjónaði barnaföt og handsaumaði ungbarnakjóla sem flest börn fjölskyldunnar hafa far- ið í heim af fæðingardeildinni. Þegar ég útskrifaðist sem hjúkka saumaði hún útskriftarkjólinn minn. Nú sit ég í sloppnum henn- ar með kjólinn í höndunum og dá- ist að saumaskapnum. Hún prjón- aði á okkur peysur, saumaði föt, og m.a. fórnaði silkisloppnum í bardagaskikkjur á bræðurna. Því- líkur listamaður, það lék allt í höndunum á henni. Pabbi vann úti, hringdi heim klukkan 13, svo fékk hún koss þegar hann kom heim. Mamma sá um heimilið, smurði nesti í skól- ann, ristað brauð, snúðar og kakó eftir skóla, heitur matur á kvöldin, skrældar skyldu kartöflurnar vera, hún meira að segja tók bein- in úr fisknum fyrir pabba, sem er Vestmannaeyingur. Bakaði á föstudögum, súkkulaðiköku, astraköku og kókósmjölsköku, sem allar voru horfnar á sunnu- dögum þegar við fengum rjóma- tertu eftir hádegissteikina. Þessar uppskriftir eru skyldubakstur í viðburðum fjölskyldunnar. Það var alltaf allt í röð og reglu, hægt og hljótt var þvotturinn brotinn og straujaður, eldhúsið eins og ekkert hefði verið eldað, jafnvel á jólunum. Hárgreiðsla var fastur liður í tilveru mömmu, t.d. hjá Dúdda eða á Brúnó, þegar ég gekk með græjurnar á milli systranna, setti í þær rúllur, túberaði og lakkaði vel yfir. Hún fór í lagningu daginn sem hún fór á spítalann. Eftir að við systkinin uxum úr grasi fór hún að vinna „hjá Flokknum“ og átti þar mjög góð ár. Skrifaði ávísanir sem hún hafði ekki gert áður, því pabbi sá um það, en eins og annað lék það í höndunum á henni. Þegar við fluttum til útlanda skellti hún sér í að læra á tölvu- póst, og síðan á Skype. Ef ég var ekki búin að hringja á ákveðnum tíma hringdi hún: „Ég var að spá hvort Skype-ið væri bilað.“ Hún fylgdist vel með sínu fólki og við hlógum oft að „Tilkynningaskyld- unni“, hún var ekki alltaf „sof- andi“ þegar við komum heim, en sagði aldrei neitt. Ef við fórum eitthvert var alltaf hringt og látið vita um náttstað, henni fannst gott að vita hvar hennar fólk var. Hún hafði ánægju af ferðalögum og var mikill sóldýrkandi. Mamma reykti, og síðustu fjög- ur árin hefur hún verið háð súr- efni allan sólarhringinn. Þau fluttu í Hvassaleiti 56 og systurnar frá Jaðri mættu í bingó og á aðra atburði sem þær hafa notið. Þessi ár hefur mamma farið margar ferðir á sjúkrahús, aldrei kvartað og fengið frábæra þjón- ustu. Það er erfitt að vera hjúkr- unarkona og aðstandandi. Ég er mjög stolt af hjúkrunarsystrum, læknum og starfsfólki fyrir frá- bæra umönnun mömmu, hafið mikla þökk fyrir. Það er skömm að því að það skuli ekki vera búið betur að ykkur. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Björg. Elsku amma mín. Nú þegar þú ert fallin frá eftir erfiða baráttu við veikindi undanfarin ár hugsa ég til baka og minnist þín með gleði í hjarta og bros á vör. Öll skiptin sem ég heimsótti ykkur afa minnist ég þess aldrei að hafa séð þig í vondu skapi. Þú varst alltaf brosandi og glöð, sama hvernig heilsan var. Þegar við barnabörnin vorum yngri gafstu þér alltaf tíma til að leika við okk- ur og eftir að ég eignaðist Karítas Öldu og gerði þig að langömmu hafðirðu alltaf tíma til að leika við hana þó að heilsunni hafi verið farið að hraka. Karítas Öldu fannst alltaf gaman að koma til langömmu. Fá dósina sína með Cheeriosinu og rúsínunum og púsla eða leika sér eitthvað annað með langömmu sinni. Ég hef líka lært að meta það undanfarin ár hversu fallegt samband þú og afi áttuð. Þið leiddust um allt eins og ástfangnir unglingar og voruð greinilega afskaplega hamingju- söm saman eftir 65 ár í hjóna- bandi. Það var yndislegt að sjá. Takk fyrir allt, amma mín, og hvíldu í friði. Ásgeir Halldórsson. Elsku amma mín, það er und- arlegt að hugsa til þess að þú takir ekki á móti okkur lengur í Hvassaleitinu. Þegar ég hugsa til baka koma bara jákvæðar hugs- anir upp, alltaf varstu í góðu skapi og tókst öllum opnum örmum. All- ar heimsóknirnar á Brúnó standa manni efst í huga enda bjugguð þið afi þar frá því að ég man eftir mér. Það eru margar góðar minn- ingar sem við eigum saman, hvort sem það voru jólin, afmæli eða bara heimsóknirnar um helgar eða á virkum dögum – þú varst alltaf svo góð við mig og okkur barnabörnin. Ég veit að afi heldur sínu striki og heldur áfram að vera uppteknasti eldri maður sem ég þekki, þrátt fyrir það að þú sért farin. Hann saknar þín sárt eins og við hin en sem fjölskylda förum við saman í gegnum þessa daga og minnumst þín mikið. Elsku amma, ég veit að þér líður betur núna og ert komin á góðan stað. Í lokin skil ég eftir bænina sem þú kenndir mér og fórst með fyrir mig þegar ég var í pössun hjá ykkur afa á Brúnó. Ég elska þig og sakna þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jóns.) Þín ömmustelpa, Arndís Halldórsdóttir. Ég var fimm ára þegar við fluttum inn á Brúnaveg af Bar- ónsstíg, og þú byrjaðir að fara með mig í gömlu laugarnar í Laugardalnum, sem voru í næsta nágrenni. Ég erfði sjálfsagt sund- genið frá þér, einn systkina, þar sem þú hafðir stundað sund með sunddeild KR þegar þú varst yngri. Ég var samt frekar vatns- hræddur til að byrja með, sér- staklega eftir að fyrsti sundkenn- arinn, hann Eiríkur, var næstum búinn að drekkja mér. Ég náði mér þó smám saman, með þinni hjálp, og fór að æfa með sund- deild Ægis þegar ég var 16 ára. Ég man hvað þú varst stolt af mér, þegar ég fáeinum mánuðum síðar, var kominn í fremstu röð, eins og þú hafðir verið á sínum tíma. Þú sást til þess að ég leið ekki skort í gegnum allan keppnisferil minn, og skipti þá ekki máli á hvaða tíma sólarhringsins æft var, við lítinn fögnuð systkina minna. „Siggi fær alltaf steik eða kjúkling klukkan 10 á kvöldin“ var við- kvæðið hjá þeim þegar þú varst að sinna mér. Ég borðaði víst álíka mikið og þau öll hin til samans, en samt var ég alltaf orðinn svangur fljótt aftur. Svo komuð þið líka alltaf saman, þú og pabbi, á sund- mót þegar ég var að keppa, og var það mér mikil hvatning. Alla tíð síðan hefur aldrei skort á stuðn- ing þinn eða ástúð í minn garð. Nú er komið að leiðarlokum, elsku mamma. Þín verður sárt saknað, og minning þín lifir í hjarta mínu. Sigurður Ásgeir. Kristín Margrét Guðjónsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs sonar míns, bróður, mágs og frænda, EYSTEINS SKARPHÉÐINSSONAR, Heiðarhvammi 3, 230 Reykjanesbæ. Hjartans þakkir færum við starfsfólki D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka alúð og umhyggju. . Anna Margrét Jónsdóttir Hólmfríður Skarphéðinsdóttir Njáll Skarphéðinsson Jón Valgeir Skarphéðinsson Anna Andrésdóttir Sigurður Skarphéðinsson Linda Hrönn Birgisdóttir Rakel Valsdóttir Jón Oddur Guðmundsson og frændsystkini. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát okkar yndislegu MARGRÉTAR SIGURJÓNSDÓTTUR (Maggýjar), til heimilis að Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, áður Brimhólabraut 5, sem lést mánudaginn 21. nóvember. Við erum ykkur þakklát. . Elías Gunnlaugsson, Hjördís Elíasdóttir, Hannes Thorarensen, Björk Elíasdóttir, Stefán Örn Jónsson, Viðar Elíasson, Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. JÓN G. H. GUÐLAUGSSON hlaupari lést 4. desember á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Akureyri. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu, Akureyri, föstudaginn 16. desember klukkan 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, . Margrét Þórhallsdóttir. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma okkar, SÆBJÖRG ÞORGRÍMSDÓTTIR, búsett á Patreksfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar 13. desember. Hún verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 17. desember klukkan 11. . Haraldur Þorsteinsson, Anna Guðmunds, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR MARGRÉTAR SNORRADÓTTUR. Innilegar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða fyrir vinsemd við hana og góða umönnun. . Sigríður Bjarnadóttir, Sigrún Jóhannesdóttir, Jón Sigurðsson, Pálmi Jóhannesson, Soffía Kjaran, Sigurður Jóhannesson, Halla Hafdís Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN TÓMASSON frá Sauðárkróki, Bólstaðarhlíð 31, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 12. desember. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. desember klukkan 13. . Elinborg Jónsdóttir, Valgerður Katrín Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Guðmundur Árni Jónsson, Lára Nanna Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN STEINSSON frá Siglufirði, til heimilis að Sléttahrauni 25, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. desember, klukkan 13. . Anna Sigrún Hreinsdóttir, Þórður Þórðarson, Steinunn Hreinsdóttir, Örn Geirsson, Vilhjálmur Hreinsson, Fríða Rut Heimisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN KARLSDÓTTIR, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 9. desember, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 19. desember klukkan 13. . Karl Blöndal, Stefanía Þorgeirsdóttir, Lárus Blöndal, Anna Kristín Jónsdóttir, Anna Ben Blöndal, Haraldur Hallgrímsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.