Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Snjóinn burtmeð
Stiga snjóblásara
Askalind4,Kópavogi
Sími 5641864
www.vetrarsol.is
1131 E snjóblásari
1100W rafmagnsmótor
Dreifing 1–4metrar
31 cm vinnslubreidd
Léttur ogmeðfærilegur
Góður við þröngar aðstæður
ST 4851 snjóblásari
48V Lithium-ion rafhlaða, hlaðin
Dreifing 1–6metrar
51 cm vinnslubreidd
Með Led ljósabúnaði
Í léttari snjómokstur
SnowBlizzard snjóblásari
B&Smótor með rafstart, 249cc
Dreifing 1–10metrar
69 cm vinnslubreidd
Með ljósum og á grófum dekkjum
Frábær í mikinn og erfiðan snjó
tölvustýrðrar sjálfsiglingar á höfum
úti. Skipin gætu séð sjálf um einfald-
ari viðfangsefni á leiðinni án afskipta
mannsins. Flóknari stefnubreyt-
ingar og tilfærslur myndu aftur á
móti kalla á inngrip úr landi, segir í
hvítbókinni áðurnefndu. „Á siglingu
á opnu hafi geta skipin verið nær al-
gjörlega sjálfsigld en á hluta ferð-
arinnar þurfa þau á nánu eftirliti og
ákvarðanatöku að halda og jafnvel
fullri stjórn manna úr landi,“ segir
Rolls Royce.
Tæknibúnaður stórra ómannaðra
skipa virðist fyrir hendi því verið er
að prófa nokkur módel fyrir sigl-
ingu. Rolls Royce segir að á vissum
hluta ferðarinnar sé áhöfn nánast
óhjákvæmileg, svo sem við að leggja
skip að bryggju eða varpa akkerum
á legu. Að öðru leyti eigi skipin að
geta klárað ferð milli staða eftir
áfangahnitum á leiðinni. „Snjall-
skipin“ – búin gervihnattafjar-
skiptabúnaði og veðurfarsskynj-
urum – verði einnig fær um það sjálf
að grípa til aðgerða og forða sér úr
háska rísi hættur á leiðinni. „Dæmi
sum slíka hjáhliðrun væri sjálfvirk
aðgerð sjálfsiglandi skips til að
verða ekki fyrir öðrum skipum með
lítils háttar stefnu- eða hraðabreyt-
ingu,“ segir í hvítbókinni.
Siglingalög gætu
raskað áætlunum
Hið eina sem temprar bjartsýni
Rolls Royce á sviði sjálfsigldra skipa
eru siglingalög sem gætu raskað
áætlunum þess, svo og möguleikinn
á sjóránum. Segir fyrirtækið að
engu að síður sé ljóst að rekstur
fjarstýrðra og sjálfsiglandi skipa sé
„að minnsta kosti jafn öruggur og
sigling núverandi skipa“.
Með nýjungum á sviði stafrænnar
fjarskipta- og boðtækni sýnast
möguleikar til nýbreytni í sam-
göngum óþrjótandi, til dæmis til ör-
yggisbóta. Aðeins hugmyndaflug
mannsins virðist takmarka þá. Með-
al annars býður tæknin nú þegar
upp á að fylgst sé úr landi með gang-
verki skipa í rauntíma og að gripið
sé inn í starfsemi þeirra þaðan. Með
vaxandi „skipagreind“ séu skipa-
félög þegar farin að fylgjast með
flotum sínum, en við það minnkar
bilið yfir í sjálfsiglingu stöðugt.
Rolls Royce er til dæmis komið langt
á þessu sviði og sömuleiðis finnska
skipta- og siglingatæknifyrirtækið
Wärtsilä. Allt er þetta í þágu auk-
innar skilvirkni, hagkvæmni og ör-
yggis í siglingum og samþættingar
stöðugt fullkomnari skipa við aðra
starfsemi í landi.
Wärtsilä styður verkefnið með
fjármagni og tekur ásamt Rolls
Royce, Cargotec, Ericsson, Meyer
Turku og Tieto þátt í að skapa sjálf-
stjórnandi sjóflutningakerfi. „Þetta
er mikilvægt og metnaðarfullt verk-
efni sem siglingageirinn allur mun
njóta góðs af. Okkur er það mikil
ánægja að vinna með öðrum að því
og leggja þekkingu okkar til verk-
efnisins,“ segir Mikael Simelius,
markaðsstjóri sjávarlausna hjá
Wärtsilä.
Á Eystrasalti
Í fyrsta áfanga einbeita fyr-
irtækin sér að því að þróa fyllilega
sjálfvirkt flutningakerfi á Eystra-
salti. Ætlunin er að það verði full-
skapað og vöruflutningaskip komin
þar í fullan rekstur árið 2025.
Wärtsilä sér fyrir sér miklar
breytingar í sjávarútvegi og hefð-
bundnum skipasiglingum í framtíð-
inni. Rekstur og starfsemi skipa-
félaga muni breytast. Bæði vegna
aukinnar orkuþarfar að óbreyttu og
einnig vegna stöðugt stífari um-
hverfislöggjafar sem ætlað er að
vinna gegn loftslagsbreytingum.
Það kallar á mikla nýsköpun svo
bregðast megi við og tryggja skil-
virkni vöruflutninga um höfin, segir
Roger Holm, forstjóri Wärtsilä.
Í nýrri framtíðarsýn fyrirtækisins
segir það að með því að notfæra sér
fullkominn stýri- og fjarskiptabúnað
til samskipta milli skipa megi senda
heilu flotana í skipalest milli áfanga-
staða. Vegna áhrifa kjölsogsins
sparist eldsneyti er skip sigli hvert
rétt á eftir öðru í halarófu um höfin.
Með því að nýta sér það til fulls
mætti ná fram miklum eldsneyt-
issparnaði. Og með aukinni sjálf-
virkni segist Wärtsilä sjá fyrir sér að
sigla megi öðrum skipum í lestinni
en því fremsta með færri mönnum í
áhöfn. Framfarir í samskiptatækni
Mannlaus „draugaskip“ flytja
vörur um höf og milli landa
Með nýjungum á sviði stafrænnar fjarskiptatækni sýnast möguleikar til nýbreytni og aukinnar
skilvirkni og öryggis í siglingum óþrjótandi Aðeins hugmyndaflug mannsins virðist takmarka þá
Gervieyjar Hugmyndir eru um gervieyjar við helstu siglingaleiðir þar sem
orka sólarinnar og vindorka verði beisluð til að framleiða vistvæn eldsneyti.
Vísindaskáldsaga Það er engu líkara en að strandstjórnherbergi fjar-
stýrðra og sjálfsiglandi skipa sé sviðsmynd úr vísindaskáldsögukvikmynd.
Sjálfsiglandi skip Framtíð vöruflutninga á sjó gæti falist í því að sjálfsiglandi skip sigla um heimsins höf.
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Breska stórfyrirtækið Rolls Royce
hefur verið að undirbúa áform um
þróun framúrstefnulegra vöruflutn-
ingaskipa sem sigli um heimsins höf
án þess að nokkur maður sé í áhöfn
þeirra. Um er að ræða verkefni upp
á miklar fjárhæðir. Gengur það und-
ir skammstöfuninni AAWA sem út-
leggst sem „þróuð sjálfsiglandi sjó-
flutningatæki“. Tilgangur þess er að
kollvarpa fyrirkomulagi sjóflutn-
inga.
Að sögn Mikael Makinen, for-
stjóra Rolls Royce Marine, þykja
mannlaus skip sem stjórnað er úr
fjarlægð álitlegur kostur til að
stokka upp sjóflutninga. Spáir fyrir-
tækið því, að skipin eigi eftir að hafa
álíka breytingar í för með sér í þeim
geira og snjallsímar höfðu á sviði
samskipta.
Snjallskip
Rolls Royce á sér langa sögu á
sviði sjóflutninga og hefur komið að
hönnun og smíði fjölda flutninga- og
fiskveiðiskipa. Í hvítbók þess um
fjarstýrð flutningaskip, sem fyr-
irtækið sér fyrir sér í siglingum áður
en þessi áratugur rennur út, segir
Makinen að „snjallskipin muni hafa
byltingarkenndar breytingar í för
með sér hvað varðar hönnun og sigl-
ingar flutningaskipa“.
Með öðrum orðum mun floti
tæknilega háþróaðra „draugaskipa“
senn bætast inn í siglingaleiðir um
heimsins höf.
Um þessar mundir fæst Rolls
Royce við útreikninga og mat á því
að hve miklu leyti kippa eigi aðkomu
mannsins úr jöfnunni. Tillaga þess
er að fundin verði „hybrid“-blanda
fjarstýrðrar stjórnunar úr landi og
SJÁ SÍÐU 44