Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
J
ens Garðar Helgason fædd-
ist á Eskifirði 15.12. 1976
og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA 1996
og stundaði nám í við-
skiptafræði við HÍ 1997-2000.
Jens Garðar hóf störf hjá Fiski-
miðum ehf. 1999 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri félagsins frá 2002.
Hann hefur setið í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar frá 2006 og hefur ver-
ið formaður bæjarráðs Fjarðabyggð-
ar og oddviti Sjálfstæðisflokksins í
sveitarfélaginu frá 2010. Þá hefur
hann verið formaður Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi frá stofnun,
2014.
Jens Garðar sat í stjórn SUS og
hefur starfað í nefndum fyrir unga
sjálfstæðismenn og Sjálfstæðisflokk-
inn frá 15 ára aldri. Hann hefur átt
sæti á framboðslistum fyrir flokkinn
fyrir alþingiskosningar frá 18 ára
aldri að undanskildum síðustu kosn-
Jens Garðar Helgason framkvæmdastjóri – 40 ára
Með sjómannsblóð í æðum Jens Garðar í fjörunni við Hólmana í Reyðarfirði og synir hans, þeir Thor og Vöggur.
Eskfirðingur í húð og
hár og pólitísk veiðikló
Flottir félagar Frá aðalfundi veiðifélagsins Svarta höndin. Talið frá vinstri:
Egill Örn, Guðjón Þór, Svavar Þór, afmælisbarnið og Einar Andrésson.
Ingimar Einarsson, fyrrverandi
leigubílstjóri, heldur upp á 90 ára
afmæli sitt laugardaginn 17. des-
ember 2016. Af þessu tilefni verð-
ur Ingimar með opið hús á heimili
sínu milli kl. 15.00 og 18.00 að
Laugarnesvegi 87, íbúð 302.
Árnað heilla
90 ára
Jóhann Vignir Gunnarsson var staddur í „Læknishúsinu“ á Fá-skrúðsfirði í gær þegar hann heimsótti Loðnuvinnsluna þar. Ídag eyðir hann hins vegar fertugsafmælinu á norðanverðu Snæ-
fellsnesi þar sem hann heimsækir Hraðfrystihúsið á Hellissandi og
Sjávariðjuna. „Ég er að vinna í sölumálum og framleiðsluferlum hjá
Þorbirni í Grindavík og er nú að heimsækja önnur fiskvinnslufyr-
irtæki og mæla nýtingu á skurðarkerfum í vinnsluvélum í sjávar-
útvegi. Fiskvinnsla er feikilega tæknivædd og framsækin hér á landi
þar sem allt snýst um gæði, nýtingu og hagkvæmni. Því þarf að fylgj-
ast vel með.“
En hefur Jóhann Vignir unnið lengi hjá Þorbirni í Grindavík?
„Það fer nú svolítið eftir því hvernig á það er litið. Strangt tekið
byrjaði ég þar í síld við hliðina á mömmu þegar ég var átta ára, vann
síðan í salfiski hjá Þorbirni og var á sjó, á netabátum og ís- og frysti-
togurum á framhaldsskólaárunum. Ég lauk síðan tölvunarfræði frá
HR, vann í London um skeið og síðan í tölvubransa hér á landi í fyr-
irtæki sem rann inn í annað fyrirtæki sem síðan rann inn í Landsbank-
ann. Við hjónin fluttum svo til Grindavíkur þegar ég hóf aftur störf
hjá Þorbirni og höfum búið þar frá 2013, keyptum þar gamalt hús,
gerðum það upp og erum hæstánægð.
Eiginkona Jóhanns Vignis er Matthildur Gunnarsdóttir sem vinnur
í fjármáladeild Bláa lónsins og eiga þau þrjú börn, Heklu Sóleyju sem
er sjö ára, Snædísi Lilju, fimm ára og Friðrik Hrafn, þriggja ára.
Afmælisbarnið Jóhann vinnur að sölumálum hjá Þorbirni í Grindavík.
Á Snæfellsnesinu
á afmælisdaginn
Jóhann Vignir Gunnarsson 40 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÁrmúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is
Fasteignasalinn þinn
fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda
Sirrý
lögg. fasteignasali
Erna Vals
lögg. fasteignasali
Íris Hall
lögg. fasteignasali