Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Við höfum lækkað
vöruverð í samræmi
við tolla og gengi
ÞAÐ ER OPIÐTIL KL. 22ÖLL KVÖLD
TIL JÓLA
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einkasafn Hilmars Foss í húsnæði
sem hann og Ingvar Gissurarson
eru að gera upp í Garði minnir á
ævintýraheim, þar sem sjá má sitt
lítið af hverju. Allt frá flugvélum
niður í bréfaklemmur.
Á gólfi stendur Cessna 150 flug-
vél frá 1969. „Ég hef fengið marga
hluti frá þeim ágæta manni, Jóni
Magnússyni, flugvélstjóra hjá Loft-
leiðum, meðal annars þessa vél sem
hann keypti í Bandaríkjunum,“ seg-
ir Hilmar.
Við vélina stendur uppáklædd
gína sem Hilmar keypti þegar
verslunin Elfur hætti. „Þetta var á
laugardegi og ég þurfti að halda á
henni niður Laugaveginn. Hún var í
rauðum blúndunærbuxum og vakti
ferð okkar töluverða athygli veg-
farenda.“
Heimilismunir
Margt er úr fórum foreldra hans.
Strokkur, sem hestur hefur nartað
í, gnæfir upp úr tækjum og tólum.
„Mamma fann hann einhvers staðar
úti í móa fyrir austan,“ segir Hilm-
ar. „Litið var á hana sem undarlega
konu úr Reykjavík að hirða rusl úti
í sveit.“
Í þar til gerðu boxi er gasgríma,
sem föður hans var gert að hafa á
stríðsárunum í London, en þurfti þó
aldrei að nota hana. Boxið er merkt
honum og heimilisfangi hans í
London.
Fjölskyldan bjó á efstu hæð í
Hafnarstræti 11 í Reykjavík og þar
var amma Hilmars, Elísabet Foss,
með Lífstykkjabúðina á jarðhæð-
inni. Skömmu fyrir jól 1941
skemmdist húsnæðið í eldsvoða.
Mannbjörg varð en nær allt innbú
varð eldi að bráð. Tvær bækur
sluppu að mestu við eldinn og er
önnur þeirra í safni Hilmars, Núma
rímur eftir Sigurð Breiðfjörð. „Eins
og sjá má er kápan sviðin og bruna-
lyktin segir sína sögu,“ segir Hilm-
ar.
Við bókahillurnar er stóllinn sem
langafi Hilmars, Kristján Jónsson,
háyfirdómari og Íslandsráðherra,
sat í þegar hann skrifaði dóma.
„Skrifborðið er heima,“ segir Hilm-
ar. Ritvélin sem Hilmar Foss notaði
í vinnunni er þarna sem og kúlu-
ritvélin sem tók við af þeirri gömlu.
„Þetta er önnur kúluritvélin sem
var seld á Íslandi. Otto Michelsen
fékk þá fyrstu,“ segir Hilmar, en
safnið verður hugsanlega almenn-
ingi til sýnis í náinni framtíð enda
sjón sögu ríkari.
Morgunblaðið/RAX
Blúndan falin Ingvar, gínan og Hilmar framan við Cessna 150 flugvél frá 1969. Skiltin vísa veginn.
Núma rímur Bókin slapp að mestu í brunanum í Hafnarstræti 1941.
Smáhlutir Númerin eiga sér merka sögu í verkamannabústöðunum.
Ævintýraheimur Hilmars í Garðinum
Óvenjulegt safn merkilegra muna
Flugvélar niður í bréfaklemmur
Sögulegir munir Stígvélin og taskan eiga sér merka sögu. Hringir Margt er hringlaga eins og hjól og skilti. Til forsetans Sveinn Björnsson fékk sendar vörur í boxinu.