Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Morgunblaðið/Ófeigur
Æskuvinir Davíð Tómas, Daníel Tryggvi og Jón Gunnar ætla að standa
vaktina og þjónusta sína gesti alla daga – og kvöld þegar fram líða stundir.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Einn er löglærður, annarfjármálaverkfræðingur,sá þriðji stundar nám íHáskólanum í Reykjavík
og stefnir á íþróttafræði. Þeir eru 28
ára, ólust upp í Vesturbænum,
æskuvinir frá sjö ára aldri og hafa
lengi átt sér þann draum að skapa
eitthvað saman. Fyrir einskæra til-
viljun fréttu þeir að hætta ætti
rekstri kaffihúss á besta stað í bæn-
um að þeirra mati – í Austurbænum,
nánar tiltekið hverfi 105, austan
Snorrabrautar.
„Við fórum saman á rúntinn,
kíktum á gluggana, leist vel á og lét-
um slag standa,“ segir sá löglærði,
Daníel Tryggvi Thors. Og nú hefur
hann í félagi við vini sína, Jón Gunn-
ar Jónsson og Davíð Tómas Tómas-
son, opnað hverfiskaffihúsið PREPP
við Rauðarárstíg.
Daníel Tryggvi sagði starfi sínu
lausu á lögmannsstofu og Jón Gunn-
ar sínu hjá fjármálafyrirtæki til að
geta gefið sig alla að rekstri fyrir-
tækisins. Davíð Tómas tekur svo til
hendinni þegar hann er ekki í skól-
anum. „Tiltækið er algjör U-beygja
á starfsferli okkar. Sjálfur er ég
þeirrar skoðunar að menntun eigi
ekki að vera eini áhrifavaldur þess
hvað maður leggur fyrir sig. Annars
hef ég alltaf verið mikill matgæð-
ingur og nokkuð liðtækur í elda-
mennskunni, þótt ég segi sjálfur frá.
Stökkið yfir í rekstur kaffihúss er
kannski ekki svo stórt þegar öllu er
á botninn hvolft. Enginn okkar vissi
samt hvað sneri upp og hvað niður,
hvar við áttum að byrja, hvað við
þyrftum að kaupa inn og þvíumlíkt,“
viðurkennir hann. En einhvers stað-
ar þurfti að byrja og því var ekki
annað í boði en að bretta upp ermar
og einhenda sér í verkin.
Handlagnir og praktískir
„Við fengum húsnæðið afhent 1.
nóvember, sex dögum eftir að við
kíktum á gluggana, og höfum síðan
unnið dag og nótt við að þrífa, mála
veggi og pússa og lakka húsgögn og
innréttingar. Okkur fannst óþarfi að
kaupa nýtt og hafa allt samstætt.
Sum húsgögnin fengum við í Góða
hirðinum, önnur keyptum við á net-
inu. Við vildum breyta ásýnd stað-
arins, gera hann bjartari og meira
aðlaðandi án mikils tilkostnaðar. Í
rauninni kom okkur sjálfum mest á
óvart hversu handlagnir við vorum
þegar á reyndi,“ segir Daníel
Tryggvi. „Og hversu vel tókst til,“
bætir hann við, býsna stoltur af ár-
angrinum.
Þeir félagar eru
himinlifandi með stað-
setninguna, enda hafi
hverfið austan mið-
bæjarins tekið miklum
og örum breytingu og
sé óðum að skapa sér
ákveðna sérstöðu í mið-
bænum. „PREPP er
einstaklega vel í sveit
sett miðað við hugmyndir okkar um
kaffihús þar sem mannlíf og listir
blómstra. Steinsnar frá eru Kjar-
valsstaðir, Listaháskóli Íslands og
Gallerí Fold og á næsta ári verður
opnaður matarmarkaður á Hlemmi.
Meiningin er að hér verði menn-
ingarsetur með list uppi um alla
veggi. Við ætlum að bjóða upp á
fyrirlestra, spilakvöld og alls konar
uppákomur – og bestu veitingar í öll-
um austurbænum,“ upplýsir Jón
Gunnar.
Alvöru vertar
Úr því talið berst að veitingum
– hvað er á boðstólum? „Auk gæða-
kaffis verðum við fyrst í stað með
léttar veitingar, nokkrar tegundir af
samlokum, súpur og salat. Allt til-
reitt á staðnum. Við vonumst til að
geta náð til vinnandi fólks í nágrenn-
inu í hádeginu og svo er draumurinn
að bjóða upp á fjölbreyttari rétti á
kvöldin,“ segir Daníel Tryggvi, sem
hefur haft þróun matseðilsins á sinni
könnu með dyggri aðstoð bróður
síns sem er kokkur og nokkurra vina
í kokkastétt.
Eigendurnir hafa hugsað sér að
vera alvöru vertar, standa sjálfir
vaktina og þjónusta gesti sína alla
daga – og kvöld þegar fram líða
stundir og starfseminni vex fiskur
um hrygg eins og þeir efast ekki um
að verði raunin. Enn eiga þeir eftir
að hnýta nokkra lausa enda, sækja
um vínveitingaleyfi og hrinda í fram-
kvæmd stórum sem smáum hug-
myndum sem þeir eru með í koll-
inum til að skapa það andrúmsloft
sem þeir vilja að svífi yfir vötnum.
„Við vorum að setja bókahillur
fyrir ritröð Hins íslenska bók-
menntafélags. Við er-
um með margar
skemmtilegar hug-
myndir á prjónunum
og ætlum að brydda
upp á ýmsum nýj-
ungum. Til dæmis
mætti hugsa sér
myndaskiptamarkað,
en þá myndum við
hengja upp mynd ásamt orðsend-
ingu þess efnis að gestir mættu taka
hana með sér heim gegn því að
hengja upp aðra mynd,“ segir Daníel
Tryggvi og virðist æ hrifnari af hug-
myndinni um myndaskiptin sem
laust niður í huga hans í þessum töl-
uðu orðum.
Listin í hávegum höfð
Þremenningarnir segja mögu-
leikana óþrjótandi. Þeir hafa þegar
tekið upp samstarf við listagyðjuna.
Fyrsta listsýningin verður opnuð á
morgun, en þá sýnir Hallveig Krist-
ín Eiríksdóttir, málari og sviðs-
myndahönnuður, verk sín. Því næst
sýnir Allie Doersch, teiknari frá
Bandaríkjunum, skopmyndir og
landslagsverk. Þeir félagar lofa
menningarviðburðum af ýmsu tagi
og eru samstíga um að aðalatriðið sé
að gestum líði vel og geti slakað á í
notalegu andrúmslofti.
„Undirbúningurinn hefur geng-
ið ævintýralega vel. Við laumuðumst
reyndar til að prufukeyra staðinn
áður en skiltið var sett upp og við
tókum formlega úr lás á laugardag-
inn. Við matreiddum og þjónuðum
þeim sem slæddust inn af götunni til
að fá viðbrögð og ábendingar,“ segir
Daníel Tryggvi.
Þótt æskuvinirnir hafi verið
samstíga um allt sem máli skipti í
undirbúningsvinnunni leið töluverð-
ur tími þar til þeir gátu sammælst
um nafn staðarins. „Við köstuðum
hugmyndum fram og til baka, lágum
yfir orðabókum og þuldum upp alls
konar nöfn. Loks rákumst við á
gamla handbók fyrir starfsfólk á
veitingastöðum þar sem stóð stórum
stöfum orðið PREPP, sem er kokka-
mál, náttúrlega bullandi sletta, en
stendur fyrir preparation og þýðir
undirbúningur. Kokkarnir tala um
að preppa þegar þeir undirbúa mat-
inn og okkur fannst við hafa verið að
preppa og ætlum að halda áfram að
preppa fyrir gesti og gangandi,“ út-
skýrir Daníel Tryggvi og bætir við
að ýmislegt fleira búi að baki nafn-
inu. „Fólk getur bara giskað eða
spurt okkur,“ segir hann.
U-beygja í veitingabransann
Æskuvinirnir Daníel Tryggvi Thors, Jón Gunnar Jónsson og Davíð Tómas
Tómasson áttu sér þann draum að skapa eitthvað saman, jafnvel stofna
fyrirtæki. Draumurinn rættist í hverfiskaffihúsinu PREPP í Austurbænum,
þar sem mannlíf og listir blómstra sem aldrei fyrr að þeirra sögn.
Hverfiskaffihús Nafnið PREPP á rætur í kokkamáli sem félagarnir fundu í handbók fyrir starfsfólk á veitingastöðum sem talar um að „preppa“ þegar það undirbýr viðurgjörninginn.
„Meiningin er
að hér verði
menningarsetur
með list uppi
um alla veggi.“
Jólagjöfin hennar
Tryggvagötu 18 - Sími 552 0160 - Opið alla virka daga kl. 13.00-18.00