Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í annað sinn á árinu felldu sjómenn
kjarasamninga við útgerðarfyrir-
tæki innan Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi, SFS. Því hófst ótíma-
bundið verkfall sjómanna á fiski-
skipaflotanum klukkan 20 í gær-
kvöldi og átti þá að hætta öllum
veiðum. Valmundur Valmundsson,
formaður Sjómannasambands Ís-
lands, segir niðurstöðuna vera viss
vonbrigði, en reiknar með að deilu-
aðilar verði boðaðir á fund ríkissátta-
semjara fljótlega þangað sem deilan
sé komin á ný. Heiðrún Lind Mar-
teinsdóttir, framkvæmdastjóri Sam-
taka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir
að „ósætti, sem ekki er hönd á fest-
andi, er erfitt að lækna“.
Valmundur segist telja að
óánægja sjómanna snúist um að ekki
hafi verið nóg í samningunum og
laun þeirra hafi lækkað undanfarið
út af breytingum á gengi og sölu af-
urða erlendis. „Sjómenn eru ekki
sáttir við að fá ekki meira og næst
reynum við að fá einhverja breytingu
á þessu,“ segir hann.
Spurður hvort hann eigi þar við
breytingu á hlutaskiptakerfinu seg-
ist hann ekki reikna með að fá slíkt í
gegn, „Einhverja leiðréttingu þurf-
um við að sækja, en ég held að rétt sé
að leyfa nóttinni að líða áður en við
gefum einhverjar yfirlýsingar,“
sagði Valmundur.
Nú er að vinna úr stöðunni
Spurður um stöðu hans sem for-
manns Sjómannasambandsins í ljósi
þess að nú er búið að fella samninga
við útgerðina tvívegis á árinu segir
Valmundur. „Ég var endurkjörinn
formaður fyrir þremur vikum á sjó-
mannasambandsþingi og verð áfram
í mínu sæti sem formaður Sjómanna-
sambandsins. Ég skrifaði undir
samningana og lagði til að þeir yrðu
samþykktir, en við erum 19 í samn-
inganefndinni. Niðurstaðan er viss
vonbrigði, en nú liggur hún fyrir og
þá er að vinna úr því,“ segir Val-
mundur.
Heiðrún Lind segir að útgerðin
hafi komið verulega til móts við
kröfugerð sjómanna og það hafi for-
ystumenn sjómanna einnig sagt
meðan kosning um samninginn stóð
yfir. Erfitt sé að halda núna inn í
mögulegar viðræður þegar óljóst sé
á hvaða forsendum sjómenn felldu
samningana.
Útgerð og sjómenn
deila gleði og sorg
„Eftir því sem við heyrum lýtur
óánægja sjómanna að einhverju leyti
og kannski að verulegu leyti að
styrkingu krónunnar og þar með
lækkun launa. Það er hins vegar eðli
hlutaskipatanna að útgerð og sjó-
menn deila gleði og sorg. Þeir eins og
útgerðin hafa átt góða tíma síðustu
ár en nú eru blikur á lofti og 2016
hefur verið erfitt vegna styrkingar
krónunnar. Óánægja vegna þessarar
stöðu verður ekki læknuð með kjara-
samningum,“ sagði Heiðrún Lind.
Hún segir að þar sem jól og ára-
mót fara senn í hönd sé framundan
sá tími ársins sem skip séu helst í
höfn. Eftir áramót hefðu skip að
óbreyttu hafið sjósókn af krafti og
verkfall muni því setja verulega stórt
strik í reikninginn fyrir útgerðina,
sjómenn og samfélagið allt með fjár-
hagslegu tjóni fyrir alla aðila.
„Niðurstaðan er vonbrigði fyrir
alla hlutaðeigandi,“ segir Heiðrún
Lind.
„Erfitt að lækna ósætti, sem
ekki er hönd á festandi“
Sjómenn felldu kjarasamning og verkfall skollið á Laun hafa lækkað vegna
gengisbreytinga Óánægja vegna slíks verður ekki læknuð með kjarasamningum
Valmundur
Valmundsson
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Verkfall Strax eftir að samningar náðust í nóvember héldu fiskiskipin á sjó og á myndinni gera skipverjar á Höfr-
ungi III klárt fyrir brottför. Nú hefur sá samningur verið felldur og átti að hífa veiðarfæri klukkan 20 í gærkvöldi.
„Gæsastofninn stendur vel um þess-
ar mundir,“ segir Arnór Sigfússon,
fuglafræðingur hjá Verkís. Hann
hélt í gærkvöldi sinn árlega fyrirlest-
ur um ástand og horfur í lífi gæsa- og
andastofna á landinu. Niðurstöður
sínar byggir Arnór á rannsóknum á
vængjum af þessum fuglum og eru
þeir fengnir frá veiðimönnum víða
um landið. Vængirnir og fjaðrirnar
af þeim hafa verið flokkaðar eftir
tegundum og aldurshópum, það eru
annars vegar ungfuglar á fyrsta ári
og hins vegar eldri fuglar. Með þessu
fást miklar heimildir.
Arnór segir að markmið rann-
sókna sinna sé að vakta varpárangur
stofnanna en hlutfall unga í veiði gefi
vísbendingu um varp og viðkomu. Í
gær var greint frá rannsókum síð-
asta árs en einnig fyrstu niðurstöð-
um þessa árs. Þar eru undir væng-
sýni úr alls 9.000 fuglum.
„Í ár er hlutfall unga hjá grágæs-
inni eitt það besta sem ég hef séð í
mörg ár. Árið 2011 var það hins veg-
ar mjög lágt,“ segir Arnór. Heiða-
gæsin hafi hins vegar í ár verið í
svipuðum styrk og undarfarin ár,
það er rétt undir meðallagi.
Stokköndin í meðallagi
„Hlutfall unga í helsingjastofnin-
um hef ég hins vegar ekki séð jafn
hátt og gott í mörg ár. Stokköndin er
í meðallagi sýnist mér,“ segir Arnór,
sem bætir við að sýni af öðrum teg-
undum anda sem hann náði hafi hins
vegar verið svo lítið að það reyndist
ekki marktækt í rannsóknavinnu.
Sitt mat sé því að veiðar á gæsum og
öndum megi vera áfram í þeim mæli
sem verið hefur – en á ári hverju séu
skotnar um 50 þúsund gæsir og 15
þúsund endur. sbs@mbl.is
Sterkir stofnar og vísbend-
ingar um góða viðkomu
Veiði á öndum
og gæsum má vera
óbreytt áfram
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæs Fuglinn er stór og stoltur og
horfir til hafs í Laugarnesinu.
24. júní í sumar var undirritaður
kjarasamningur SSÍ og SFS, en
hann var felldur í atkvæðagreiðslu
sem lauk 10. ágúst. Nýir samn-
ingar SFS við stéttarfélögin voru
undirritaðir 11. til 15. nóvember en
felldir í atkvæðagreiðslu sem lauk
í gær. Reiknað er með að fundað
verði í deilunni hjá ríkissáttasemj-
ara eftir helgi
Á kjörskrá hjá Sjómanna-
sambandi Íslands voru 1.098 sjó-
menn og af þeim kusu 743 eða
67,7% af þeim sem voru á kjör-
skrá. Já sögðu 177 eða 23,82% af
þeim sem kusu. Nei sögðu 562
eða75,64%. Auðir seðlar voru 4
eða 0,54%.
Hjá Sjómannafélagi Íslands var
samningurinn felldur með 86%
greiddra atkvæða.
Á kjörskrá hjá Verkalýðsfélagi
Vestfirðinga voru 120 sjómenn og
af þeim greiddu 70 atkvæði eða
58,3%. Já sögðu 9 eða 13%. Nei
sögðu 61 eða 87%.
Hjá Sjómanna og Vélstjórafélagi
Grindavíkur voru 654 á kjörskrá og
kusu rúmlega 50% félagsmanna.
90 % sögðu nei.
Kosningu vélstjóra lýkur á
föstudag.
Afgerandi niðurstaða
SAMNINGAR SJÓMANNA FELLDIR Í TVÍGANG
Ekki kemur til
þess að íslenskur
drengur sem
senda átti í fóstur
til Noregs á
morgun, föstu-
dag, fari utan
Þetta kemur
fram í yfirlýs-
ingu Oddgeirs
Einarssonar, sem
hefur verið lög-
maður móður drengsins.
Mál þetta var í gær leitt til niður-
stöðu, sem er sú að íslensk barna-
verndaryfirvöld fari nú með forsjá
barnsins og sambærileg yfirvöld
ytra falla frá fullnustu dóms Hæsta-
réttar Íslands um að þeim sé heimilt
að fá barnið afhent.
Drengurinn bjó í Noregi með
móður sinni. Þar í landi svipti barna-
vernd móðurina forræði. Amman fór
þá með barnið til Íslands og með því
hófust viðræður íslenskra og
norskra barnaverndaryfirvalda um
málalok sem nú eru fengin.
Drengur-
inn fer ekki
til Noregs
Samið var um forsjá
Noregur Dreng-
urinn fer ekki.
Matvælastofnun
hefur takmarkað
starfsemi Brún-
eggja ehf. að Teigi
og í Silfurhöll með
þeim hætti að all-
ur frekari flutn-
ingur varphæna í
framleiðsluhúsin er bannaður þar til
loftgæði hafa verið aukin.
Mælingar stofnunarinnar á amm-
óníaki hafa sýnt viðvarandi gildi yfir
leyfilegu hámarki í húsunum og þar
með að úrbætur eru ekki fullnægj-
andi. Ammóníak (NH3) er ertandi
lofttegund sem berst úr fugladriti í
andrúmsloftið í framleiðsluhúsum ali-
fugla. Ef fugladrit er ekki fjarlægt
og/eða loftræsting er ófullnægjandi
eykst styrkur ammoníaks, sem getur
valdið fuglunum vanlíðan, segir á vef
MAST.
Mælingar Matvælastofnunar á
ammóníaki í framleiðsluhúsum Brún-
eggja að Teigi og í Silfurhöll í Mos-
fellsbæ í október og nóvember sl.
sýndu gildi töluvert yfir skilgreindum
hámarksgildum í reglugerð um vel-
ferð alifugla.
Loftgæði
verði aukin
MAST takmarkar
starfsemi Brúneggja
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
þjónustufólk?