Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 10

Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er ekki hægt að kenna ein- göngu nagladekkjum um svifryks- mengun í Reykjavík. Meginvandinn er að göturnar eru ekki þrifnar og við notum vitlaust malbik,“ segir Ólafur Guð- mundsson, tækni- stjóri EuroRAP á Íslandi, í tilefni fréttar í Morgun- blaðinu í gær af mikilli svifryks- mengun í Reykja- vík sl. laugardag, sem var sextán sinnum meiri en heilsuverndar- mörk segja til um. Þar komu m.a. fram áhyggjur heilbrigðisfulltrúa af aukinni notkun nagladekkja. „Ég er satt best að segja orðinn leiður á þessari umræðu ár eftir ár í sambandi við svifrykið. Alltaf koma sömu fréttirnar um að nagladekkin og tíðarfarið séu sökudólgurinn og svifrykið sé öllu öðru að kenna en því sem raunverulega er um að kenna. Auðvitað eiga dekkin sinn þátt en ég hef séð margar rannsóknir sem sýna að hlutur nagladekkjanna sé ekki nema á bilinu 10 til 15 prósent,“ segir Ólafur. Hann segir vandann mega rekja til þess að malbikað sé með íslensku grjóti þegar ætti að nota kvarts, vit- laust bik sé notað og slitlagið sé of þunnt. „Hingað til lands komu þýskir sér- fræðingar síðastliðinn vetur sem sáu líka að malbikið er of kalt þegar við leggjum það. Við notum ekki ein- angraða malbikunarvagna en þegar bikið kemur út úr vélunum má það ekki vera kaldara en 120 gráður, áð- ur en valtarinn fer yfir það. Ef það er kaldara þá er límingin farin úr því. Þjóðverjarnir sáu það á yfirborði gatnanna hvað hafði verið lagt of kalt og hvað ekki,“ segir Ólafur og nefnir Álftanesveg og hluta Miklubrautar sem dæmi um þetta. Drullunni leyft að safnast upp Hann segir þessi atriði gera það að verkum að malbikið endist mjög stutt. Rásir í götunum séu ekki út af nagladekkjum heldur vegna þess að bikið sé lagt of þunnt, það fljóti út undan sjálfu sér og þunga umferð- arinnar. Ólafur bendir á að ein gata í Reykjavík, gamla Hringbrautin, hafi enst meira en 15 ár. Þar hafi verið notaður afgangur úr Hvalfjarðar- göngunum, norsk möl með hágæða- biki og lagt með réttum hætti. Svip- aða sögu megi segja um slitlagið á Reykjavíkurflugvelli. Þar hafi verið notast við innflutt hráefni og allt gert samkvæmt bókinni. „Annars er aðalvandinn að við þrífum ekki göturnar, borgin leyfir drullunni að safnast upp,“ segir Ólaf- ur en hann hefur ásamt fyrirtækinu Hreinsitækni, Arion banka, Vega- gerðinni og fulltrúum Reykjavíkur- borgar unnið að tilraunaverkefni sem gengur út á að þrífa ákveðna gatnahluta og kanna mengun þar á eftir. Einnig leggja sérfræðingar frá stofnunum og háskólasamfélaginu hönd á plóginn. Fyrstu niðurstöður lofa góðu og telur Ólafur mikilvægt að allir þessir aðilar taki höndum saman til að halda borginni hreinni og finni réttar og skilvirkar aðferðir. Það sé hægt með því að þrífa göt- urnar, minnka salt- og sandnotkun og draga jafnframt úr notkun nagla- dekkja. Tilraunir með rykbindingu hafi ekki gengið eftir og telur Ólafur þetta fyrst og fremst snúast um þrif og betri hráefni í slitlaginu, ásamt aðferðum við lagningu. Ólafur segist hafa orðið var við það á ferðum sínum um Evrópu að götur þarlendra borga séu tandur- hreinar, enda þrifnar reglulega. Nefnir hann Prag sem dæmi. „Göturnar í Reykjavík voru þrifn- ar hér áður fyrr en þessu var hætt fyrir um 10 árum af þáverandi meiri- hluta, eða dregið verulega úr,“ segir Ólafur en hrósar tveimur sveitar- félögum á höfuðborgarsvæðinu, Garðabæ og Hafnarfirði. „Þau létu hreinsa göturnar hjá sér núna um daginn, á meðan Reykjavík gerir ekki neitt. Það er meginástæðan fyr- ir svifryksmenguninni. Það sem þyrlaðist upp síðasta laugardag er bara uppsafnað gamalt svifryk síðan í sumar, af því að það er ekkert þrif- ið. Ef við létum hreinsa göturnar tvisvar eða þrisvar í mánuði þá væri Reykjavík ekki ein skítugasta borg Evrópu.“ Snýst um þrif á götum en ekki nagla  Ólafur Guðmundsson gagnrýnir hve illa götur Reykjavíkur eru þrifnar  Telur óþrif valda svif- ryksmengun en ekki nagladekk eingöngu  Lélegt og of þunnt lag af malbiki dragi úr endingunni Reykjavík Svifryk þyrlast upp við hreinsun á götum Reykjavíkur. Ljósmyndir/Ólafur Guðmundsson Prag Rykinu er ekki fyrir að fara á götum Prag, bendir Ólafur á í fréttinni.Ólafur Guðmundsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sú forgangsröðun stjórnvalda sem birtist í fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021, sem samþykkt var á Al- þingi sl. vor, og í frumvarpi til fjár- laga fyrir árið 2017 er að mati Al- þýðusambands Íslands (ASÍ) hvorki til þess fallin að styðja nægilega vel við hinn efnahagslega né hinn fé- lagslega stöðugleika og verður að óbreyttu ekki grundvöllur sáttar á vinnumarkaði. Kemur þetta fram í umsögn ASÍ um frumvarpið. Er þar bent á að áfram sé gert ráð fyrir miklum umsvifum og uppgangi á vinnumarkaði sem mun auka enn- frekar á spennu í hagkerfinu. „Við slíkar aðstæður er brýnt að hagstjórnin ýti ekki undir ofþenslu og óstöðugleika og vinni á móti pen- ingamálastefnunni. Að öðrum kosti verða afleiðingarnar og viðbrögð Seðlabankans fyrirsjáanleg. Verð- bólguþrýstingur eykst, vextir hækka og þrýstingur á krónuna eykst. Nú þegar er til staðar slaki í ríkisfjár- málunum og sú hagstjórnarstefna sem birtist í fjármálaáætlun og frumvarpi til fjárlaga mun enn auka á hann,“ segir m.a. í umsögn ASÍ. „Þetta er áfall fyrir okkur“ Samkvæmt því fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að 212 milljónir króna renni í hafna- bótasjóð, en í nýsamþykktri sam- gönguáætlun er hins vegar gert ráð fyrir 1.158 milljónum króna í sjóðinn. „Sökum þessa hefur siglingasvið Vegagerðarinnar tjá okkur að ekki verði hægt að hefja framkvæmdir við endurbyggingu á brjótnum í Bol- ungarvík árið 2017 eins og upp var lagt með,“ segir í umsögn Bolung- arvíkurkaupstaðar, en um er að ræða endurnýjun á gömlu stálþili í höfninni í Bolungarvík. Þilið er frá árinu 1963 og er sagt „afar lúið og hættulegt“ og líklegt til þess að brotna, en þegar það gerist mun það hefta aðgengi að höfninni og auka verulega kostnað vegna endurbóta. „Þetta er áfall fyrir okkur í Bol- ungarvík enda höfum við undirbúið þessa framkvæmd um nokkurra ára skeið. […] Ef fjárfestingar í hafnar- mannvirkjum stoppa og höfnin hætt- ir að þróast er framtíð okkar í hættu,“ segir einnig í umsögn. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins segir að „afar erfitt sé að átta sig á niðurstöðum fjárlagafrumvarpsins í heild og einstökum málaflokkum vegna þess að framsetningu frum- varpsins hefur verið breytt og einnig skortir töfluyfirlit um niðurstöðurn- ar og samanburð við fyrri ár.“ Frumvarp til fjárlaga vefst fyrir mörgum  Ekki grundvöllur sáttar, segir ASÍ Morgunblaðið/Þorkell Arnarhvoll Umsagnir eru komnar fram um frumvarp til fjárlaga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.