Morgunblaðið - 15.12.2016, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22
Skemmdir á kirkjunni hafa enn
ekki verið metnar en á morgun kem-
ur forvörður frá Þjóðminjasafninu
til að kanna ýmsa muni í kirkjunni.
Einn þeirra sem komu í Laufás á
mánudaginn er Guðni Sigþórsson,
slökkviliðsstjóri í Grýtubakka-
hreppi. Hann er heimavanur hjá
Bolla Pétri; þeir eru nefnilega sam-
an með kindur á bænum. „Guðni
slökkviliðsstjóri er ráðsmaður hér í
Laufási!“ sagði Bolli Pétur og hló
dátt í samtali við Morgunblaðið.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Prestar hafa mikið að gera um
helgar, ekki síst á aðventunni, og
nota gjarnan mánudaga til að slaka
á. Séra Bolli Pétur Bollason í Lauf-
ási er því oftast heima á mánudögum
og sú venja kom sér vel þegar eldur
kviknaði í Laufáskirkju á mánudag-
inn var. Sannarlega lán í óláni að
hann var heima við.
Séra Bolli segir mikla mildi að
eldurinn kviknað ekki um helgi. „Þá
er mjög ósennilegt að einhver hefði
verið heima og getað stokkið til og
reynt að slökkva.“
Laufásklerkur segir að engu
hafi mátt muna að illa færi. „Hefðu
liðið fimm eða tíu mínútur í viðbót
áður en komið var að, hefði kirkjan
staðið í björtu báli. Loginn var far-
inn að lyfta sér þegar ég kom inn í
kirkjuna. Það sést vel hve eldurinn
var farinn að stíga upp vegna þess
að kóngulóarvefur uppi horninu er
alveg svartur. Þetta stóð því mjög
tæpt.“
Bolli fékk hringingu frá Öryggis-
miðstöðinni í kjölfar þess að örygg-
iskerfi tengt stjórnstöð gerði við-
vart. „Laufás er utan útkallssvæðis
Öryggismiðstöðvarinnar, það var því
fyrst hringt í mig og ég hringdi í 112.
Sem betur fer var ég heima, var með
lykla að kirkjunni við höndina og gat
hlaupið út eins og skot.“
Þegar Bolli kom að kirkjunni
leist honum ekki á blikuna. „Að mér
læddist illur grunur því það var svo
mikil móða á rúðunum og dökkt að
sjá inn. Þegar ég opnaði var reyk-
urinn það mikill að ég hörfaði í
fyrstu, fór svo inn og sá logann í
horninu en fann að reykurinn var
mjög óheilnæmur enda plast að
brenna,“ segir hann.
Bolli áttaði sig strax á því að
hann kæmist ekki að slökkvitæki
kirkjunnar, fór því út og sá þá skóla-
bíl sveitarinnar uppi á vegi. Bílstjór-
inn, Anna Bára Bergvinsdóttir, varð
þess sem betur fer vör þegar klerk-
urinn veifaði til hennar, ók í snatri
niður að kirkjunni og náði fljótt að
slökkva mesta eldinn. Fljótlega kom
einnig á staðinn Benedikt bóndi
Sveinsson á Ártúni, næsta bæ aust-
an Fnjóskár. Hann er í slökkviliðinu,
fékk því boð frá 112 um leið og Bolli
hafði hringt þangað, snaraðist af
stað með öflugt slökkvitæki og
slökkti í síðustu glæðunum.
Slökkvilið Grýtubakkahrepps
kom svo skömmu síðar á staðinn og
hóf að reykræsta. Lögreglan á Ak-
ureyri kom einnig skjótt og slökkvi-
liðið þaðan. Viðbúnaður var mikill
eins og gefur að skilja.
Mörgum var mjög brugðið þegar
fréttir bárust af því að eldur væri
laus í kirkjunni og Bolli hefur fengið
skilaboð víða að. „Mjög mörgum
þykir svo vænt um kirkjuna. Hún er
á vissan hátt þjóðarhelgidómur þótt
hún sé ekki skráð sem slík. Hér er
mikil saga og margir sem tengjast
þessari 150 ára gömlu kirkju. Fyrir
utan hvað þetta er fallegt hús,“ segir
Bolli Pétur, sem sjálfur er alinn upp
á staðnum. Faðir hans, Bolli Gúst-
avsson, var lengi prestur í Laufási.
„Ég hef farið oft í gegnum þetta í
huganum. Ég get varla hugsað það
til enda ef kirkjan hefðu brunnið til
kaldra kola,“ sagði Bolli í gær.
Lengi hafa verið uppi hugmyndir
um að bæta við einni skíðalyftu í
Hlíðarfjalli. Nú virðast meiri líkur á
því en nokkru sinni fyrr að þær
gætu orðið að veruleika.
Vinir Hlíðarfjalls, hópur fyrir-
tækja á Akureyri og víðar, lýstu fyrr
á árinu vilja til þess að taka þátt í að
fjármagna lyftuna og bæjaryfirvöld
hafa lýst því yfir að þau séu reiðubú-
in að skoða þann möguleika fyrir al-
vöru. Gangi allt upp gæti vinna haf-
ist við lyftuna strax næsta sumar. Ef
af verður, verður neðsti hluti lyft-
unnar nokkru ofan við miðja stóla-
lyftu, Fjarkann, og næði hún tölu-
vert upp fyrir Stromp þar sem
Fjarkinn endar núna.
„Þetta myndi gera efri hluta
svæðisins mun skíðavænna fyrir
alla,“ sagði Guðmundur Karl Jóns-
son, forstöðumaður skíðasvæðisins í
Hlíðarfjalli, við Morgunblaðið í gær.
Greinilega spenntur.
Úr Hlíðarfjalli er það annars að
frétta að ekkert er að frétta … Guð-
mundur og aðrir þar á bæ liggja á
bæn og biðja um norðanátt og snjó-
komu! „Það er því miður ekkert bita-
stætt í kortunum. Maður stekkur
hæð sína um leið og sést í bláa tölu í
veðurspánni en þetta hafa bara verið
sýnishorn hingað til. Við bíðum bara
og verðum tilbúin um leið og eitt-
hvað gerist.“
Í kvöld verða félagarnir í Úlfur,
úlfur með tónleika á Græna hatt-
inum. Annað kvöld stígur hljóm-
sveitin Dúndurfréttir þar á svið og á
laugardaginn koma fram Magni Ás-
geirsson, Matthías Matthíasson,
Pétur „Jesú“ Örn Guðmundsson og
Einar Jóhannsson. Í tilkynningu er
lofað miklu gítarpartíi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ráðsmaður! Guðni Sigþórsson, slökkviliðsstjóri í Grýtubakkahreppi, og frístundabóndi með Bolla, í Laufáskirkju.
Lán að Bolli er
jafnan heima
á mánudögum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Upptekinn Séra Bolli Pétur var mikið í símanum eftir að eldur hafði verið
slökktur í kirkjunni. Fjölmiðlar hringdu eðlilega í hann hver á fætur öðrum.
Sunnudaginn 18. desember klukkan 11
verður fjölskylduguðsþjónusta í Dómkirkj-
unni undir yfirskriftinni Þökkum fyrir ljós-
ið og lífið. Í tilkynningu segir að stundin
verði sérstaklega helguð ljósmæðrum.
Guðjón Davíð Karlsson, Gói, les upp og
segir barnasögu, Þórdís Klara Ágústsdóttir
ljósmóðir mun flytja ávarp og fulltrúar ljós-
mæðra lesa ritningartexta og bænir,
sungnir verða aðventu- og jólasálmar. Karlakór KFUM syngur og stjórnandi
kórsins, Laufey Geirlaugsdóttir, syngur einsöng.
Guðsþjónusta helguð ljósmæðrum
Dómkirkjan í Reykjavík.
Viðar Pálsson
sagnfræðingur
flytur erindi í
Háskóla Íslands í
dag um verkið
Útópíu eftir Sir
Tómas More sem
nú er komið út í
íslenskri þýðingu
í flokki Lær-
dómsrita Hins ís-
lenska bókmenntafélags. Erindið
flytur Viðar í stofu 101 í Odda og
hefst fundurinn klukkan 12.15.
Fyrirlestur um Útópíu
Sir Tómasar More
Sir Tómas More
EA-samtökin bjóða upp á sinn
árlega fund um jólakvíða í dag,
fimmtudag, kl. 18 í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Í tilkynningu frá samtökun-
um segir að vaxandi hópur
fólks berjist við kvíða fyrir jól.
Þetta sé til dæmis fólk sem hafi
misst ástvin á árinu, skilið, lent
í fjárhagsörðugleikum eða
veikst.
Gestur fundarins verður sr.
Sigurður Árni Þórðarson, sókn-
arprestur Hallgrímskirkju.
Boðið verður m.a. upp á súkku-
laði með rjóma á fundinum.
Fundur um jólakvíða
STUTT
Ráðhús Reykjavíkur tekur nú þátt í
matarsóunarverkefni Landverndar
og Reykjavíkurborgar. Verkefnið
stendur í viku og var byrjað á því
að vigta matarleifar eftir hádeg-
ismat starfsmanna í mötuneyti Ráð-
hússins. Forrannsókn Landverndar
sem unnin var fyrir styrk frá borg-
inni sýnir að matvælum fyrir 4,5
milljarða króna er hent árlega af
reykvískum heimilum og hendir
hver einstaklingur um 48 kílóum á
ári sem gerir um 150.000 kr. fyrir
fjögurra manna fjölskyldu.
Henda mat og drykk fyrir 4,5 milljarða á ári