Morgunblaðið - 15.12.2016, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Hröð og góð þjónusta um allt land
Eigum einnig til mikið úrval af
perum og öryggjum í bíla
Áratuga
reynsla
Langstærstir í viðgerðum og sölu á
Alternatorum og Störturum
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rogue One, nýjasta kvikmyndin í
Stjörnustríðsbálknum, verður frum-
sýnd hér á landi á miðnætti í kvöld.
Ólíkt fyrri Stjörnustríðsmyndum er
ekki um eiginlegan „kafla“ í geim-
óperunni að ræða, heldur fjallar
myndin um þá atburði sem gerðust í
aðdraganda fyrstu myndarinnar,
sem kom út árið 1977.
Tilurð myndarinnar má rekja til
þess þegar kvikmyndafélagið Disney
keypti réttinn að Stjörnustríðsmynd-
unum af George Lucas, höfundi
myndanna árið 2012. Þá þegar var
sett af stað áætlun um þrjár fram-
haldsmyndir, kafla sjö til níu, sem
myndu koma út á tveggja ára fresti,
en inni á milli myndu koma út mynd-
ir, sem væru ótengdar hinum að öðru
leyti en því að þær gerðust innan
sama söguheims.
Þessi ákvörðun Disney hefur gefið
vel af sér til þessa því að Force
Awakens, sem kom út í fyrra, var vel
tekið af flestum aðdáendum Stjörnu-
stríðs sem og almennum bíóáhorf-
endum. Hún varð fljótlega söluhæsta
mynd sem Disney hefur gefið út, og
stefnir allt í að Rogue One muni
verða álíka vinsæl. Sem dæmi má
nefna, að forsala á miðum á myndina
vestanhafs hefur gengið framar von-
um, og situr Rogue One nú í öðru
sæti yfir þær myndir sem hafa selt
flesta miða fyrir frumsýningardag-
inn, á eftir Force Awakens.
Meiri stríðsmynd en þær gömlu
Söguþráður Rogue One snýst um
baráttu uppreisnarmanna gegn hinu
illa keisaraveldi, sem öllu ræður í
stjörnuþokunni langt, langt í burtu.
Þeir hafa komist á snoðir um að keis-
arinn sé að láta byggja öflugt vopn,
Helstirnið, sem muni geta gert út af
við uppreisnina í einu vetfangi.
Aðalsöguhetjan að þessu sinni er
Jyn Erso, sem leikin er af Felicity
Jones, en hún er smáglæpamaður,
sem lent hefur ítrekað upp á kant við
ríkjandi yfirvöld, hverju nafni sem
þau nefnast. Uppreisnarmenn sann-
færa hana um að stela áætlununum
um Helstirnið, en ljóst er að faðir
hennar, sem Mads Mikkelsen leikur,
hefur komið þar nærri. Henni til að-
stoðar er einvala lið, leitt af Cassian
Andor, sem Diego Luna leikur.
Leikstjóri myndarinnar er Gareth
Edwards, en hann hefur áður gert
myndirnar Monsters og svo nýjustu
útfærsluna af Godzilla. Í viðtölum
hefur Edwards sagt að áherslan að
þessu sinni hafi verið frekar á „stríðs-
hlutann“ af Stjörnustríði, og á mynd-
in að minna á gamlar stríðsmyndir.
Eitt af því sem gert var til þess að
búa til rétt andrúmsloft var að taka
gamlar ljósmyndir úr seinni heims-
styrjöld og Víetnam-stríðinu og
teikna þær upp á nýtt, þannig að þær
litu út fyrir að gerast á tímum
Stjörnustríðsins, með geimflaugum
og öllu tilheyrandi. „Myndverið elsk-
aði þessar ljósmyndir, allir voru mjög
hrifnir af þessu og þeir sögðu við
mig: „Farðu og gerðu svona mynd,“
og það er það sem við gerðum,“ sagði
Edwards við AFP-fréttastofuna.
Hann játaði þar að það hefði verið
talin nokkur áhætta fyrir Disney að
gefa út mynd af þessu tagi, sem lík-
lega verður seint kölluð fjöl-
skylduvæn. Að sögn þeirra sem séð
hafa myndina minnir hún mest á
framhaldsmyndina Empire Strikes
Back, sem þykir vera nokkuð dökk
miðað við bálkinn í heild sinni.
Á meðal þeirra er George Lucas
sjálfur, og sagði Edwards að hann
hefði verið mjög taugaóstyrkur á
meðan Lucas horfði á myndina. „Ég
get í sannleika sagt að ég geti dáið
ánægður núna,“ sagði Edwards um
einkunnina sem Lucas gaf myndinni.
Hvort Stjörnustríðsfíklar verði jafn-
ánægðir kemur síðan í ljós á næstu
dögum.
Nýr kafli Stjörnustríðsins
Nýjasta Stjörnustríðsmyndin, Rogue One, markar nýja stefnu Disney Hluti myndarinnar var
tekinn upp hér á landi Aðeins Force Awakens hefur selt fleiri miða fyrir frumsýningardaginn
AFP
Heimsfrumsýning Þessi risastóra X-vængja, helsta geimflaug uppreisnarmanna, beið bíógesta á heimsfrumsýn-
ingu Rogue One fyrr í vikunni. Myndin verður tekin til almennra sýninga hér á landi í nótt og á morgun.
Ísland var á meðal helstu tökustaða
fyrir Rogue One og bregður land-
inu vel fyrir í auglýsingastiklum
myndarinnar. Tökur fóru fram hér
á landi um haustið 2015 og var
tökuliðið meðal annars við Hjör-
leifshöfða og Hafursey. Sagði í
fréttum þeirra tíma að tökurnar
færu fram með mikilli leynd.
Danski stórleikarinn Mads Mikkel-
sen var á meðal þeirra sem komu
hingað til lands, en hann leikur föð-
ur aðalsöguhetjunnar Jyn Erso.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að-
standendur Stjörnustríðsmyndanna
leita til Íslands til þess að finna
staðgengla fyrir hinar fjarlægu
reikistjörnur geimævintýrisins, en
tökulið á vegum J.J. Abrams, leik-
stjóra Force Awakens, var hér við
tökur um tíma. Svo virðist þó sem
að þær tökur hafi aðallega verið til
þess að fá bakgrunnsmyndir sem
síðar var tölvuteiknað á. Þó bárust
einhverjar fregnir af því að vákinn
Loðinn hefði sést hér á landi kljást
við hersveitir Fyrstu reglunnar,
arftaka keisaraveldisins.
Keisaraliðar Hersveitir keisaraveldisins fikra sig nær bóndabýli á hrjóstr-
ugri reikistjörnu. Hluti Rogue One var tekinn upp hér á Íslandi 2015.
Landið í stóru hlut-
verki í stiklunum
Tökur voru m.a. við Hjörleifshöfða
„Við hófum forsöluna 29. nóv-
ember og strax á fyrsta degi var
gríðarmikil umferð,“ segir Þor-
valdur Árnason, framkvæmda-
stjóri SamFilm. Hann bendir á að
forsala á miðum hafi almennt séð
ekki verið mikil hér á landi, það
séu helst vinsælar kvikmynda-
seríur eins og Harry Potter og
Lord of the Rings sem trekki að í
forsölu. Í fyrra hafi Force Awak-
ens hins vegar slegið öll met
hvað forsölu varðar. Rogue One
stefnir í að verða næstvinsælasta
myndin í forsölu miða hér á landi
sem og annars staðar í heim-
inum. Til dæmis hafi selst á
fyrsta hálftímanum upp á fyrstu
sýninguna, sem verður á mið-
nætti í kvöld. „Við sjáum yfirleitt
ekki svona stórar tölur í forsölu.
Stjörnustríðsmyndirnar eru
þarna í algjörum sérflokki.“
Í sérflokki
FORSALA Á MYNDUM
AFP
Búningar Loðinn, Lilja Ósk prinsessa og hermenn keisaraveldisins voru á
meðal þeirra sem kíktu á frumsýningu Rogue One í Frakklandi í gær.