Morgunblaðið - 15.12.2016, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það kepptufjórir fram-bjóðendur á
landsvísu í for-
setakosningunum
í Bandaríkjunum.
Einn af þeim var
Gary Johnson.
Hann var enginn nýgræð-
ingur, hann hafði stundað við-
skipti af nokkrum þrótti og
verið ríkisstjóri í Nýju Mexíkó
í átta ár.
Hann og Jill Stein, fram-
bjóðandi græningja, voru
fremur talin mundu taka fylgi
frá Hillary Clinton en Donald
Trump. Þótt Stein fengi ekki
mikið fylgi fékk hún margfalt
það fylgi í „barátturíkjunum“
sem Trump hafði umfram frú
Clinton.
Gary Johnson þótti koma
ágætlega fyrir og hann hélt
dágóðu fylgi alllengi. En þá
valt hann um eitt orð og varð
úr sögunni. Á blaðamanna-
fundi spurðu fréttamenn hann:
Hvað um Aleppo? Gary John-
son starði stóreygður til baka
og sagði eftir smástund:
„Aleppo?“ „Já,“ sagði frétta-
maðurinn, „Aleppo.“ Ekkert
svar. „Ætlarðu að segja mér
að þú hafir aldrei heyrt um
Aleppo?“ Gary Johnson stað-
festi það. Taldi helst að orðið
væri einhver af þessum
skammstöfunum sem tröllríða
stjórnmálaumræðu. Gary átti
aldrei vinningsvon í þessum
kosningum. Það vissi hann og
það vissu allir aðrir. En hann
talaði fyrir miðjumálstað og
var að skapa sér nafn og vin-
samlega ímynd, sem er mikils
virði á hinum víðlendu gresj-
um þar vestra. En allar inn-
eignir hans þurrkuðust út í
einni svipan.
Slík atvik eru fjarri því að
vera einstök og þau eru sjaldn-
ast sanngjörn. Eitt af forseta-
efnum Repúblikana, Rick
Perry, sem gegnt hafði stöðu
ríkisstjóra í Texas og þótt hafa
staðið sig vel, skaut sjálfum
sér út úr prófkjörsslagnum
með svipuðum hætti. Hann
sagðist lofa því, næði hann
kjöri sem forseti Bandaríkj-
anna, að leggja niður þrjú stór
ráðuneyti í Washington. Hann
nefndi tvö, starði svo framan í
stórfundinn og sagðist ekki
muna hvert þriðja ráðuneytið
væri. „Úff,“ sagði hann svo, og
lauk með því máli sínu og svo
framboðsbaráttunni skömmu
síðar.
Því er haldið fram að Donald
Trump hafi nýverið sannað að
hann sé meiri grínisti ætlað
var. Trump tilkynnti í vikunni
að hann hefði ákveðið að gera
Rick Perry að ráðherra. Hvar?
Í orkumálaráðuneytinu. Ráðu-
neytinu sem Perry
hafði lofað að
leggja niður og
mundi ekki hvað
hét!
Jafnvel vönustu
menn hafa á sínum
ferli lent í því að
orð, heiti eða staðreyndir sem
þeir nauðaþekkja standa í
þeim á vitlausu augnabliki.
Ræðuskólar kenna mönnum
að varast í blaðlausri ræðu að
segja: Ég mun leggja áherslu
á fjögur atriði: … Því líklegast
sé að það myndi á þá pressu,
svo þeir gleymi einhverju
þeirra eða nefni fimm atriði án
þess að taka eftir því. Í hvora
áttina sem mistökin fari þá séu
þau það sem helst sitji eftir í
minni áheyrenda. Ræðumaður
geti sagt án áhættu: Ég legg
aðaláherslu á örfá mikilvæg
atriði: …
Aleppo-gloppa Gary John-
sons var sýnu verri en ráðu-
neytið sem Perry ætlaði að
leggja niður en mundi ekki
nafnið á. Aleppo hefur verið
fyrirferðarmikil í fréttum og
er táknmynd eymdar og
óhugnaðar, þar sem sakleys-
ingja bíða hörmuleg örlög. Það
er bæði satt og rétt að fyrir
fáum árum höfðu fæst okkar
heyrt um Aleppo. En fyrir
stjórnmálamann að þekkja
ekki til Aleppo nú, þótt þrá-
spurður sé, sýnir ekki aðeins
þekkingarleysi eða stund-
arlokun. Það segir hlust-
endum, með réttu eða röngu,
að viðkomandi sé sama. Það
þoldi stjórnmálamaðurinn
ekki.
Nú fylgir fréttunum um
Aleppo að Bashar al-Assad
forseti geti loks hrósað sigri
þar. Það er vafasamt orðalag.
Borgin er rjúkandi rúst.
Hundruð þúsunda hafa fallið.
Hundruð þúsunda hafa flúið.
Það er sjálfsagt ekki hægt að
færa alla sök af þessari ógn-
arógæfu á Assad forseta. Aðr-
ir eiga hlut að máli, misstóran.
En það er nokkuð ljóst að í
Aleppo getur enginn hrósað
sigri og síst forseti Sýrlands.
Ekki getur „Alþjóðasam-
félagið“ gert það heldur. Sýr-
landsuppreisnin kviknaði í
framhaldi af fáránlegum „vor-
hreingerningum“ vestrænna
leiðtoga í Líbíu, Túnis og að
nokkru í Egyptalandi, þar sem
hefðbundnir bandamenn voru
sviknir í tryggðum.
Gary Johnson gleymdi
Aleppo óviljandi og galt þess.
Það er fjöldi leiðtoga sem feg-
inn vill og ætlar sér, af ráðnum
hug, að gleyma Aleppo. Þeir
munu líklega komast upp með
það og gjalda einskis.
Svona er þetta bara.
Stjórnmálalegur
dauði Gary John-
sons var ómerki-
legur hluti af mann-
fallinu þar}
Meðvitað minnisleysi
Þ
að er stundum sagt að Íslendingar
séu arfaslakir neytendur sem láti
bjóða sér hvað sem er. Það gæti
verið rétt að einhverju leyti en
aukin og auðveldari tengsl við al-
heiminn hafa þó breytt þessu síðustu ár. Fólk
er orðið óhrætt við að veita verslunum aðhald
með því að vekja athygli á ósanngjarnri álagn-
ingu. Það sýnir kaupmönnum vonandi að við
látum ekki bjóða okkur hvað sem er lengur,
þeir taka því líka yfirleitt vel en fleiri mættu
svara sannleikanum samkvæmt þegar málið er
borið undir þá í staðinn fyrir koma með
heimskulegar afsakanir sem hver heilvita mað-
ur sér í gegnum. Það bætir ekki ímyndina.
Það er hlutverk neytenda að veita aðhald en
hér á landi eru starfrækt Neytendasamtök sem
eiga líka að tala máli neytenda og berjast fyrir
hagsmunum þeirra við verslunar- og þjónustuaðila. Sam-
tökin hafa verið frekar slakur talsmaður neytenda hingað
til en eitthvað virðist það vera að glæðast nú með nýjum
formanni. En það virðist að Neytendasamtökin séu ekki
talsmaður neytenda nema í sumum málum, í öðrum séu
þau í liði með Félagi atvinnurekenda (FA) og Samtökum
verslunar og þjónustu (SVÞ), tvennra hagsmunasamtaka
verslunarinnar.
SVÞ hafa lengi barist fyrir því að verðkannanir fari frá
verðlagseftirliti ASÍ, því niðurstaðan er sjaldan versl-
uninni í hag, og nú eru Neytendasamtökin farin að kalla
eftir þeim. Það væri eðlilegast að Neytendasamtökin færu
með verðkannanir en það er hætta á að það verði efasemd-
ir um hlutleysi samtakanna nú þegar þau eru
gengin til liðs við grátkór SVÞ og FA í sam-
bandi við hömlur á innflutning á landbúnaðar-
afurðum?
Neytendasamtökin eru farin að tala gegn
innlendri matvælaframleiðslu í takt við SVÞ og
FA, að hún sé óhagstæð fyrir neytendur og
miklu betra væri að flytja allt inn svo verslunin
gæti lagt á matvöruna það sem henni sýndist –
ekkert bendir þó enn til þess að það verði hag-
stæðara þegar verð á öðrum landbúnaðar-
afurðum sem verslunin selur er skoðað. Flest-
ar landbúnaðarvörur eru nefnilega fluttar inn
án tolla, eins og hveiti, sykur, kornvörur,
pasta, hrísgrjón, matarolíur, ávextir og stærsti
hlutinn af innfluttu grænmeti. Þessar mat-
vörur eru dýrari hér en í nágrannalöndunum
og eina ástæðan fyrir því er álagning versl-
unarinnar. Hvers vegna heyrist ekkert í Neytenda-
samtökunum um verðið á þessum landbúnaðarvörum?
Væri ekki nær að berjast fyrir verðlækkun á þeim en gegn
heilli atvinnugrein í landinu? Það hlýtur líka að vera hagur
neytenda að geta keypt innlendar landbúnaðarafurðir.
Neytendasamtökin verða að gæta sín á að vera ekki tal-
in í liði með versluninni og einbeita sér að þeim neytenda-
málum sem skipta máli og skila sér í alvörunni í budduna.
T.d. verða tollar á öllum vörum nema hluta af matvörum
felldir niður 1. janúar næstkomandi og það verður m.a.
hlutverk Neytendasamtakanna að sjá til þess að sú tolla-
niðurfelling skili sér til neytenda af alvöru.
ingveldur@mbl.is
Ingveldur
Geirsdóttir
Pistill
Raunverulegur hagur neytenda
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarfélög eru farin að líta tilþess í auknum mæli, þegarrætt er um stefnumörkun íorkumálum og skipulags-
málum, hvaða tekjur þau geta haft af
virkjunum. Þetta á sérstaklega við
um vindorkugarða sem margir hafa
áhuga á að koma upp víða um land.
Raforkumannvirki eru að stór-
um hluta undanþegin fasteignaskatti
til sveitarfélaga. Við byggingu stórra
vatnsaflsvirkjana eru það aðallega
stöðvarhúsin sem greiddur er fast-
eignaskattur af. Þetta endurspeglast
í mati á vindrafstöðvum. Þannig eru
vindmyllurnar sem Landsvirkjun
reisti við Búrfell aðeins metnar á
broti af raunverulegum stofnkostn-
aði. Skeiða- og Gnúpverjahreppur
fær um hálfa milljón á ári í fast-
eignagjöld en telur að sú upphæð
ætti að vera tífalt hærri. Sveitarfélag-
ið hefur óskað eftir endurmati á vind-
myllunum en niðurstaða liggur ekki
fyrir.
Opna á hlutdeild í tekjum
Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á
að koma upp vindorkugörðum á Suð-
urlandi eða eru komnir af stað með
undirbúning. Meðal þeirra er Arctic
Hydro og eigendur tveggja jarða í
Austur-Landeyjum. Sveitarstjórn
Rangárþings eystra hefur viljað fá
fastara land undir fætur áður en hún
færi að hleypa undirbúningi af stað.
Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri
nefnir að lagaumhverfið sé til skoð-
unar á landsvísu. Þá vilji sveit-
arstjórn fá að hreint hvaða tekjur
hún muni fá af mannvirkjunum. Seg-
ir Ísólfur Gylfi að fyrirtækið hafi opn-
að á það að hugsanlega gæti sveitar-
félagið fengið hlutdeild í
framleiðslutekjum vindorkugarðsins.
Sveitarstjórn hefur boðið fulltrúum
fyrirtækisins á sinn fund til að ræða
þann þátt.
Fjórir aðilar hafa sett sig í sam-
band við Rangárþing ytra til að at-
huga möguleika á uppsetningu vind-
orkugarða í sveitarfélaginu. Eitt
fyrirtækið, Biokraft ehf. sem rekur
tvær litlar vindmyllur í Þykkvabæ,
vinnur að umhverfismati og skipulagi
fyrir 13 stærri vindmyllur til við-
bótar.
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
segir að sveitarfélagið vinni að endur-
skoðun á aðalskipulagi. Mikilvægur
liður í því sé mótun orkustefnu. Þar
verði tekið á álitamálum varðandi
vindmyllur. Eins og fleiri sveit-
arstjórnarmenn vísar Ágúst til þess
að enn vanti stefnumörkun ríkisins í
þessum málum. Gera þurfi ráð fyrir
vindmyllum sem orkukosti. Þá þurfi
sveitarfélögin að vita um mögulegar
tekjur sínar og nefnir í því sambandi
að vindmyllur hafi óneitanlega áhrif á
ásýnd sveitanna.
Þrátt fyrir ágreining um stöðu
vindorkugarða í áætlun um vernd og
nýtingu náttúrusvæða ákvað verkefn-
isstjórn að taka til umfjöllunar tvo
vindorkugarða sem Landsvirkjun til-
kynnti til mats. Blöndulundur lenti í
nýtingarflokki en Búrfellslundur í
biðflokki.
Skattlagning skoðuð
Innanríkisráðuneytið skipaði
starfshóp í júní til að fjalla um skatt-
lagningu mannvirkja sem framleiða
raforku eða flytja hana. Var það gert
að ósk samtaka sveitarfélaga og
orkufyrirtækja sem telja mikilvægt
að „nærsamfélög virkjana- og flutn-
ingskerfa fái sanngjarnar tekjur
m.t.t. umhverfisáhrifa virkjana“.
Samtök orkusveitarfélaga hafa lagt
áherslu á að afnema undanþágu raf-
orkumannvirkja við álagningu fast-
eignaskatts og að sett verði sam-
ræmd löggjöf um vindorku.
Krefjast auðlinda-
gjalds af vindinum
Morgunblaðið/RAX
Hestöfl Áformað er að setja upp fleiri og stærri vindmyllur í Þykkva-
bænum en þar eru fyrir. Margir íbúanna vilja ekki sjá þessa framkvæmd.
Skipulagsnefnd og sveitarstjórn
Rangárþings ytra hyggjast
verða við beiðni lögmanns 63
einstaklinga, sem mótmælt
hafa áformum um byggingu
vindorkugarðs í nágrenni
Þykkvabæjar, um fund til að
gera grein fyrir sjónarmiðum
fólksins. Fundurinn hefur ekki
verið tímasettur.
Í mótmælum fólksins sem
eru íbúar í Þykkvabæ og fleiri
hagsmunaaðilar, kemur það
fram að verði af þessum vind-
orkugarði muni lífsgæði íbúa
skerðast verulega, auk þess
sem áformin brjóti gróflega
gegn nábýlis- og eignarrétti
þeirra. Fasteignaverð muni
lækka auk þess sem frekari at-
vinnuuppbygging verði torveld-
uð og ferðaþjónusta sérstak-
lega nefnd í því sambandi.
Biokraft vinnur að umhverf-
ismati og skipulagi sem er til
umfjöllunar hjá skipulagsnefnd
og sveitarstjórn.
Brýtur gegn
rétti íbúa
63 EINSTAKLINGAR TAKA
SIG SAMAN UM MÓTMÆLI