Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 66

Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016 Gulltryggðu jólagleðina í Ekkert jólastress, nú getur þú verslað í nýrri glæsilegri netverslun okkar carat.is Sendum frítt um land allt. Gull, hvítagull, rauðagull, rósagull, platína, með eða án demanta. CARAT Haukur gullsmiður O Hátúni 6a O s. 577 7740 O carat.is BÆKUR Margir þekkja tilfinn-inguna góðu sem þvífylgir að fá gæludýr inná heimili sitt. Það er manninum eðlislægt að finna hlýju í sinn garð, en ekki síður að gefa af sér hlýju, kærleika eða hvaða orð svo sem við notum yfir þessa löngun. Þegar börnin eru vaxin úr grasi, a.m.k. orðin sjálfstæð og hændari að jafnöldrum og hinum spennandi um- heimi en foreldrunum, getur gælu- dýr verið eins konar sárabót fyrir það tóm sem myndast. Hver sem hvatinn var í tilviki Hallgríms Helga- sonar hefur hann sagt frá því að tík- in Lukka hafi komið inn í líf hans fyrir þremur árum, og áhrifin sem nýi íbúi heimilisins hafði séu m.a. þau að skáldið sjái umhverfi sitt á aðeins annan hátt; í það minnsta í gönguferðum með Lukku, og ljóð, óbundin, verði ósjaldan til. Og þau séu nú komin út í bókinni Lukka. Á fyrstu síðu er tíkin kynnt til sögunnar; fædd í Árbænum í janúar, fyrst af sjö systkinum og það sagt ástæða nafngiftarinnar „Lucky“, sem Hallgrímur íslenskaði er hund- urinn komst í hans eigu þremur mánuðum síðar. Og útlitslýsingin er svört með hvítar loppur og rauða ól. Á höfundarmynd bókarinnar er skáldið svartklætt með rauðan trefil. Tekur þarna tvífaraminnið í sína þjónustu, því varla er þetta tilviljun. Svo hefst tólf mánaða tímabil gönguferðanna, í október, hjá far- fuglum sem leita á heitari slóðir. Ljóðin í fyrsta fjórðungi bókarinnar eru bundin við höfuðborgarsvæðið, og byrja nánast undantekningar- laust uppi í háloftum– hjá fuglum, skýjum, sólinni – eða bara uppi í tré. Ef ekki í blábyrjun þá er ljóðmæl- andi kominn þangað í línu þrjú eða fjögur, og einatt fallegum línum. En viðsnúningur verður á síðu 32, þegar Lukka fylgir eðli sínu: Hægðir annarra hennar helsta áhugamál Þefar þær uppi metur og vegur [….] Ég bíð eins og illa teiknaður eiginmaður með hatt á eftirstríðsára –skopmynd úti fyrir lífsstykkjabúð í London Í öðru ljóði verður enn ljósara að hundurinn ræður för, eins og líkast kann bestri lukku að stýra þegar þessi besti vinur mannsins er viðr- aður. Skottinu er líkt við veldis- sprota, „eða trommukjuði alheims- trommu / taktur lífsins // Jæja / Ég sigli út í daginn á tvílyftu steinhúsi / knúnu hundskotti“ (48). Sögusviðið hefur þarna víkkað út; tvíeykið gengur mikið um Hrísey, en fleiri staðir heimsins lauma sér þó inn í ljóðin: París, Perth, Siglu- fjörður og Arkansas – jafnvel Malí. Sagt er bæði frá stöðum og fólki sem verða á vegi þeirra, og sem fyrr blandast lýrískar lýsingar við nokk- uð groddalegar. HH og Lukka mæta t.d. öðrum hundaeigendum, fyrrver- andi ráðherra í hlaupaskóm með göngustaf „á hraða ljóðsins“ og stór- stígri stúlku sem gengur „þvert yfir bensínstöðvarplanið / Rauðhærð á þykkbotna skóm / með þykk titrandi læri / Í þröngum svörtum buxum / með SMS-bros á vör // Og heldur á símanum eins og blómvendi“ (95). Ef frá er talin nútímatæknin í þessum línum minna þær á einhvern undar- legan máta á skáldsöguna ljóðrænu og margslungnu, Lolitu, þar sem titilpersónan og Humbert Humbert eru á nokkuð ólíku ferðalagi en Hall- grímur og Lukka, en bensínstöðvar og útlitslýsingar ungra kvenna koma heldur betur við sögu. Öllu augljós- ari nikk, a.m.k. meðvitaðri, eru til annarra skálda en Nabokovs, t.a.m. Jónasar, Heine og Stefáns Harðar. Spurning hvað hinum síðastnefnda fyndist um „sitt“ nikk: Yfir heiðan morgun ortu gömlu mennirnir innanspíraðir og útúrdópaðir Og fengu verðlaun fyrir Hvernig fór maður yfir morg- uninn? spurði ungur maður og lagðist brúnaþungur gegn lyfjabulli í ljóðum (16) Ungi maðurinn virðist eiga að vera Hallgrímur á yngri árum. Og talandi um þann HH þá fer lítið fyrir hinum pólitíska gagnrýnanda sem hann hefur getið sér orð fyrir í gegn- um árin, og jafnvel kallaður á teppið fyrir hjá ráðherra. Það rétt svo glitt- ir í gagnrýnistennurnar í 2-3 ljóðum af þeim rúmlega hundrað sem í bók- inni eru. Frekar að þjóðin fái pillu en pólitíkusarnir, eins og í ljóðinu um konuna sem fór út að viðra stjórn- málaskoðanir sínar því þær „rúmast ekki í einbýlishúsinu / þótt risavaxið sé“. En ljóðmælanda finnst hún samt ekki gera nóg, enda gerum við ekki nóg, sbr. lokalínurnar; „Við erum öll umhverfissinnar / eina mínútu á dag // Ef veður leyfir“. Veðurfar og árstíðir eru yfir og allt um kring, skiljanlega í verki sem verður til útivið á Íslandi á tólf mán- uðum. Skáldið leikur sér með and- stæðurnar dökkt – ljóst í ýmsum út- færslum; snjóinn, mjöllina, dagsbirtu, kvið hundsins; andspænis rökkrinu, myrkrinu og ýmsu svörtu – kjólum, buxum, kalsvörtum trjá- berki. En skvettir einnig öðrum lit- um á ljóðmyndir sínar, þ. á m. í formi blóðs og hundahlands, og al- menningssamganga í þessum bítluðu línum sem sýna hve næmir og skap- andi fingur halda um pennann/ pensilinn: Finnskur kuldi í Reykjavík Og marrar þungt í snjónum í stjörnum og logni Allar hreyfingar hægar dúðaðar líkt og neðansjávar Strætó þokast hjá með kæfðu hljóði gulur kafbátur Við lítum upp til yfirborðsins og sjáum hvar stirnir á sól og sumar (35) Hnjóður á sumum ljóðum finnst mér vera skortur á tálgun. Til að mynda er stundum óþarfur greinir, sem gerir ljóðlínur lengri en þær þurfa að vera og kemur þannig niður á hrynjandi. Dæmi um þetta sést í ljóðinu á síðu 74 („Liðin hafa stillt sér upp í morgunsólinni“ og „Við göngum til baka / alla leið að hliðar- línunni“). Einstaka línur hefði einnig mátt tálga, til dæmis á síðu 55 hefði dugað: „[…] að reist var við hana kirkja og skíðalyfta“ í stað „[…] að búið er að reisa við hana kirkju og skíðalyftu“. Og á síðu 82 veldur orðið ó́neitanlegá bara verri hrynjandi ljóðlínunnar því merkingarlega bæt- ir það engu við. Lukkulegt ljóðalabb Morgunblaðið/Einar Falur Ljóðhundur Hallgrímur Helgason á gönguferð með Lukku í Hrísey . Ljóð Lukka bbbmn Eftir Hallgrím Helgason. Útgefandi: JPV, 128 bls. KRISTJÁN HRAFN GUÐMUNDSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.